Fótbolti

Ekkert gengur hjá Gerrard í Sádi-Arabíu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Steven Gerrard er nýtekinn við Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu.
Steven Gerrard er nýtekinn við Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. getty/Robbie Jay Barratt

Sádi-arabíska félagið Al-Ettifaq hefur ekki farið af stað með neinum látum undir stjórn Stevens Gerrard.

Í gær tapaði Al-Ettifaq fyrir Lokomotiva Zagreb í æfingaleik í Króatíu, 1-0. Al-Ettifaq hefur ekki enn unnið leik undir stjórn Gerrards; tapað tveimur og gert eitt jafntefli.

Allt voru þetta þó æfingaleikir en keppni í sádi-arabísku úrvalsdeildinni hefst 11. ágúst.

Gerrard var ráðinn þjálfari Al-Ettifaq í sumar. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Aston Villa en var rekinn þaðan í október. Þar áður stýrði Gerrard Rangers með góðum árangri og gerði liðið meðal annars að skoskum meisturum.

Al-Ettifaq er nálægt því að kaupa manninn sem tók við fyrirliðabandinu hjá Liverpool af Gerrard; Jordan Henderson. Al-Ettifaq mun greiða Liverpool tólf milljónir punda fyrir Henderson. Talið er að hann fái sjö hundruð þúsund pund í vikulaun hjá Al-Ettifaq.

Á síðasta tímabili endaði Al-Ettifaq í 7. sæti sádi-arabísku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×