Kjartan Henry skoraði er Esbjerg tapaði Íslendingaslagnum Alls komu þrír Íslendingar við sögu er Silkeborg lagði Esbjerg í stórleik dönsku B-deildarinnar í kvöld. Nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum í öðru og þriðja sæti deildarinnar. Fótbolti 25. febrúar 2021 20:16
Björn Bergmann í byrjunarliðinu er Molde komst áfram Landsliðsframherjinn Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde er liðið vann 2-0 útisigur á Hoffenheim í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Fótbolti 25. febrúar 2021 20:01
Aubameyang hetja Arsenal í endurkomusigri Arsenal vann 3-2 sigur á Benfica er liðin mættust í Grikklandi í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli og Arsenal því komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Fótbolti 25. febrúar 2021 19:45
Henry hættir hjá Montreal vegna fjölskyldunnar Franska goðsögnin Thierry Henry hefur sagt starfi sínu hjá CF Montréal í MLS-deildinni í knattspyrnu lausu. Ástæðan er einföld, kórónufaraldurinn og starfið hefur haft of mikil áhrif á fjölskyldu kappans. Fótbolti 25. febrúar 2021 18:16
Blikar kláruðu Eyjamenn undir lok leiks Breiðablik vann ÍBV 2-0 er liðin mættust á Kópavogsvelli í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Heimamenn eru því með þrjá sigra í þremur leikjum á meðan ÍBV hefur tapaða öllum þremur leikjum sínum. Íslenski boltinn 25. febrúar 2021 17:31
Stjóri Atalanta segir dómarann hafa eyðilagt leikinn Gian Piero Gasperini, knattspyrnustjóri Atalanta, segir að dómarinn Tobias Stieler hafi eyðilagt leik liðsins gegn Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 25. febrúar 2021 16:01
Sjö útisigrar í sextán liða úrslitunum Sjö af átta leikjum í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu enduðu með sigri útiliðsins. Fótbolti 25. febrúar 2021 15:30
Gummi Ben: Hef oft áhyggjur af geðheilsu þeirra sem styðja Arsenal Guðmundur Benediktsson segist ekki vera viss á hvaða leið Arsenal sé, réttri eða rangri. Hann var gestur Sportsins í dag þar sem hann ræddi meðal annars um Skytturnar. Enski boltinn 25. febrúar 2021 13:32
Tekst að knýja fram breytingar á Pepsi Max deild karla? Hugsanlega mun aðeins ein tillaga af fjórum standa eftir um breytingar á úrvalsdeild karla í fótbolta, Pepsi Max-deildinni, þegar fulltrúar knattspyrnufélaga landsins ganga til kosninga á laugardaginn. Óvissa ríkir um hvort nokkur breyting verði samþykkt. Íslenski boltinn 25. febrúar 2021 12:31
Byrjun Mesut Özil í Tyrklandi átti að vera draumur en er líkari martröð Það er óhætt að segja að Mesut Özil sé ekki að byrja vel með Fenerbahce í Tyrklandi. Hann skilar litlu inn á vellinum og er meira að segja gagnrýndur fyrir það sem hann gerir fyrir leikina. Fótbolti 25. febrúar 2021 11:31
Solskjær heldur sambandi við Haaland: Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér Ole Gunnar Solskjær segist enn vera í sambandi við Erling Braut Haaland, markahrókinn magnaða sem að Solskjær stýrði hjá Molde í Noregi á sínum tíma. Fótbolti 25. febrúar 2021 11:00
Tryggvi flytur á Blönduós og snýr aftur í þjálfun Tryggvi Guðmundsson, markahæsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi, er orðinn þjálfari á nýjan leik en hann verður búsettur á Blönduósi í sumar og mun stýra liði Kormáks/Hvatar í 4. deild karla. Fótbolti 25. febrúar 2021 10:00
Sjáðu hvernig Mendy fór með Atalanta og mörk City í Þýskalandi Ferland Mendy fiskaði mann af velli með rautt spjald og skoraði glæsilegt mark í sigri Real Madrid gegn Atalanta í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 25. febrúar 2021 09:01
Faðir Alissons hjá Liverpool drukknaði í Brasilíu Alisson Becker, markvörður Englandsmeistara Liverpool, fékk hræðilega fréttir frá heimalandi sínu í gær. Enski boltinn 25. febrúar 2021 08:01
BILD: 68% líkur á að Klopp hætti með Liverpool árið 2022 og taki við þýska landsliðinu Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gæti hætt með Liverpool sumarið 2022 til þess að taka við þýska landsliðinu. Þýska dagblaðið BILD segir frá þessu á forsíðu sinni og segir að þetta sé ein af fjórum möguleikum Klopp í náinni framtíð. Fótbolti 25. febrúar 2021 07:01
Henderson sagður frá í þrjá mánuði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er sagður vera á meiðslalistanum næstu þrjá mánuði vegna meiðsla á nára eftir að hafa meiðst í 2-0 tapinu gegn Everton um helgina. Enski boltinn 24. febrúar 2021 23:00
Souness elskar að horfa á Leeds Graeme Souness, Liverpool goðsögn og nú spekingur Sky Sports, segir að Leeds sé uppáhaldsliðið hans í deildinni þetta árið og hann elski að horfa á læirsveina Marcelo Bielsa spila. Enski boltinn 24. febrúar 2021 22:31
Þrumufleygur Mendy lykillinn gegn tíu mönnum Atalanta Real Madrid er með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn gegn Atalanta í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en liðin mættust í Bergamó. Fótbolti 24. febrúar 2021 21:54
Þægilegt hjá City í Búdapest Manchester City er í góðri stöðu eftir fyrri leikinn gegn Borussia Mönchengladbach í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Lokatölur 2-0. Fótbolti 24. febrúar 2021 21:53
Messi skaut Börsungum nær Atletico Lionel Messi var einu sinni sem oftar í aðalhlutverki hjá Barcelona er þeir unnu 3-0 sigur á fallbaráttuliði Elche. Fótbolti 24. febrúar 2021 19:51
Sjáðu glæsimark Alli, markið hans Bale og tvennu Vincius Tottenham vann öruggan 4-0 sigur á Wolfsberger í síðari leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Fótbolti 24. febrúar 2021 19:33
Frábært mark Alli og Bale skoraði einnig í stórsigri Það var aldrei spurning eftir fyrri leikinn á milli Tottenham og Wolfsberger í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar að Lundúnarliðið væri komið áfram. Þeir unnu síðari leik liðanna í kvöld 4-0. Fótbolti 24. febrúar 2021 18:50
Tvö stórlið bíða eftir Henderson yfirgefi hann Man. United í sumar Dean Henderson, markvörður Manchester United, verður væntanlega ekki í vandræðum með að velja sér lið í sumar ákveði hann að yfirgefa uppeldisfélagið. Enski boltinn 24. febrúar 2021 18:30
Hefur ekki áhuga á að ræða við Chelsea um nýjan samning eltist þeir við Håland Hinn 23 ára framherji Tammy Abraham hefur engan áhuga á að ræða við Chelsea um nýjan samning ætli þeir að eltast við framherja Dortmund Erling Braut Håland. Enski boltinn 24. febrúar 2021 18:01
Þessir komust í æfingahópinn mánuði fyrir EM Davíð Snorri Jónasson, nýr þjálfari U21-landsliðs karla í fótbolta, hefur valið 26 leikmenn í sinn fyrsta æfingahóp nú þegar mánuður er í að Ísland spili í lokakeppni Evrópumótsins. Íslenski boltinn 24. febrúar 2021 15:08
Ísak eins dýr og Norrköping kýs Fyrrverandi formaður sænska knattspyrnufélagsins IFK Norrköping segir ekkert hæft í því að Ísak Bergmann Jóhannesson sé með klásúlu í samningi sínum við félagið, sem geri honum kleyft að yfirgefa það fyrir ákveðna upphæð. Fótbolti 24. febrúar 2021 14:00
Gleðileg sjón á æfingu Liverpool liðsins í dag Portúgalski framherjinn Diogo Jota er byrjaður að æfa aftur með Liverpool liðinu en hann var á æfingu liðsins í dag. Enski boltinn 24. febrúar 2021 13:01
Thomas Tuchel um hetju Chelsea í gær: Eins og hann sé ennþá tvítugur Thomas Tuchel, knattspyrnspyrnustjóri Chelsea, var auðvitað mjög sáttur með hetju kvöldsins en franski framherjinn Olivier Giroud tryggði Chelsea 1-0 sigur á Atletico Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 24. febrúar 2021 12:00
Ungur leikmaður Atalanta lést úr krabbameini Willy Ta Bi, 21 árs leikmaður Atalanta, lést í gær eftir baráttu við lifrarkrabbamein. Fótbolti 24. febrúar 2021 11:31
„Súrt í broti fyrir stuðningsmenn Liverpool sem eru búnir að bíða allan þennan tíma“ Væntanleg sigurhátíð Liverpool fólks í sumar var til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Sportsins í dag en Liverpool missti í fyrra af möguleikanum til að halda upp á fyrsta enska meistaratitil sinn í þrjátíu ár. Enski boltinn 24. febrúar 2021 10:31
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti