Leik lokið: Grinda­vík - Valur 109-82 | Grind­víkingar í úr­slit eftir sann­færandi sigur

Siggeir Ævarsson skrifar
Það var kátt í HS Orku höllinni í kvöld
Það var kátt í HS Orku höllinni í kvöld Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það var alvöru oddaleiksstemming í troðfullri HS Orku höll í kvöld. Eftir algjört orkuleysi og lítinn ákafa í síðasta leik komu Grindvíkingar trítilóðir til leiks í kvöld, í það minnsta eftir fyrsta leikhluta og unnu að lokum mjög sannfærandi sigur.

Gestirnir fóru engu að síður betur af stað og virtust vera að ná einhverju taki á Grindvíkingum sem voru að hitta afar illa eins og svo oft áður í þessu einvígi. Valsmenn leiddu 20-28 eftir fyrsta leikhluta og hefur eflaust farið um marga Grindvíkinga eftir hæga byrjun.

Munaði þar mikið um að Jeremy Pargo var einfaldlega farþegi fyrstu tíu mínúturnar og stigalaus. Á því varð þó breyting í 2. leikhluta þar sem hann skoraði 13 stig en Grindvíkingar snéru leiknum algjörlega við og unnu leikhlutann 30-12. Var það ekki síst innkomu Unnsteins Rúnars Kárasonar að þakka sem spilaði frábæra vörn á Kára Jónsson en Grindavík var +15 þær tæpu sex mínútur sem hann spilaði í leikhlutanum.

Staðan 50-40 í hálfleik og Grindvíkingar eflaust nokkuð kokhraustir á þeim tímapunkti og máttu vera það en það gekk eiginlega allt upp hjá þeim næstu tíu mínúturnar. Þeir ýttu muninum upp í 20 stig og voru að spila frábærlega á báðum endum vallarins. Baráttan einkenndi leik Grindvíkinga en þeir voru með 16 sóknarfráköst á þessum tímapunkti, aðeins einu færra en varnafráköst, sem er lygileg tölfræði. Þar af var Kristófer Breki með sjö sóknarfráköst sem er sömuleiðis mögnuð tölfræði.

Grindvíkingar tóku fótinn ekki af bensíngjöfinni í fjórða og leyfðu Valsmönnum aldrei að komast í sinn takt. Ragnar Örn Bragson fór mikinn með skærbleikt hár en hann setti sex þrista áður en hann lauk leik með fimm villur um miðjan fjórða leikhluta. Unnsteinn kórónaði svo sinn leik með þristi sem kom Grindavík í 104-77 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir.

Úrslitin ráðin og bæði lið tæmdu bekkina og leyfðu minni spámönnum aðeins að sprikla. Lykilmenn Grindvíkinga hvíldinni eflaust fegnir enda úrslitaeinvígi gegn Tindastóli framundan.

Nánari umfjöllum og viðtöl á Vísi síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira