Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glitnir horfði fram hjá feðgatengslum Þrátt fyrir skyldleika Werners Rasmussonar við Karl og Steingrím Wernerssyni skilgreindi lánanefnd Glitnis þá ekki sem slíka. Þegar félag bræðranna rauf skilmála við erlenda kröfuhafa veitti Glitnir tuttugu milljarða fyrirgreiðslu. 17.4.2010 03:30
Landsvirkjun er að breytast - forstjóri vill sæstreng til Evrópu Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, upplýsti í fyrsta sinn um raforkuverð til stóriðju á sögulegum ársfundi Landsvirkjunar í dag. Stóriðjufyrirtækin borga aðeins rúmlega fjórðung af þeirri upphæð sem íslensk heimili greiða fyrir raforku. Landsvirkjun er að breytast og vægi framkvæmda mun minnka. Forstjórinn segir sérstaklega áhugavert að leggja sæstreng til Evrópu. 16.4.2010 19:00
Vill aukna sátt um Landsvirkjun - glærukynning Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunnar segist vonast til þess að með nýju hlutverki og breytingum í áherslum fyrirtækisins væri hægt að skapa aukna sátt um starfsemi fyrirtækisins. Með þessari frétt er hluti af glærukynningu forstjórans á ársfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag. 16.4.2010 15:11
Lánafyrirgreiðslur frá Norðulöndum og Póllandi fylgja samþykkt AGS Annarri endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er lokið og lánafyrirgreiðsla að fjárhæð 160 milljónir Bandaríkjadala hefur verið samþykkt. 16.4.2010 20:13
HB Grandi: Óvissa um fiskflutninga ,,Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu," segir Sólveig Arna Jóhannesdóttir, sölustjóri ferskfiskafurða hjá HB Granda. 16.4.2010 17:04
Bakkavör hækkaði um tíu prósent á síðasta degi Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði um tíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta var síðasti dagurinn sem félagið var skráð á markað en Iceland Air tekur sæti Bakkavarar í Úrvalsvísitölunni eftir helgi. 16.4.2010 16:35
Líflegt á skuldabréfamrkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 18,3 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 4,2 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 14,1 milljarða kr. viðskiptum. 16.4.2010 15:54
AGS á dagskrá í dag Endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun ríkisstjórnar Íslands verður tekin fyrir í dag, samkvæmt tilkynningu sem birtist rétt í þessu á vef AGS. Tilkynningarinnar hefur verið beðið með eftirvæntingu enda hefur endurskoðunin tafist mikið. 16.4.2010 14:32
Stóriðja borgar fjórðung af því orkuverði sem heimili borga Stóriðja borgar rúmlega fjórðung af því orkuverði sem heimili landsins borga. Stóriðjan borgar 3,3 kr. á kwst en heimilin borga 11,3 kr. á kwst miðað við gengi dollarans núna. Þetta kom fram í máli Harðar Arnarssonar forstjóra Landsvirkjunnar á aðalfundi félagsins sem nú stendur yfir. 16.4.2010 14:21
Frumtak fjárfestir í Meniga fyfir 90 milljónir Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Umfang viðskiptanna nemur 90 milljónum kr. að því er segir í tilkynningu um málið. 16.4.2010 14:02
Sigurvegari Gulleggsins í viðræðum við stóra framleiðendur Fulltrúar fyrirtækisins ReMake Electric, sem sigraði í nýsköpunarkeppninni Gullegginu 2010, standa í viðræðum við stærstu framleiðendur heims á sviði raföryggis um framleiðslu á nýrri tegund af rafmagnsöryggi sem fyrirtækið hefur þróað. 16.4.2010 12:51
Yfirlýsing frá Alterna um eignarhald félagsins Vegna umræðu í fjölmiðlum um tengsl Alterna og annarra símafélaga vill Alterna koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri: 16.4.2010 12:46
Icelandair tapar milljónum á eldgosinu Icelandair tapar milljónum á dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Ástandið er alvarlegt fyrir félagið en það standur af sér áhrif öskufallsins í einhverja mánuði, segir forstjóri Icelandair Group. 16.4.2010 12:25
Fjöldi kaupsaminga fasteigna undir meðaltali Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 9. apríl til og með 15. apríl 2010 var 44. Þessi fjöldi er nokkuð undir meðaltali s.l. 12 vikna sem er 48 samingar á viku. 16.4.2010 11:59
Icelandair inn og Bakkavör út úr úrvalsvísitölunni Breytingar verða á OMX16 úrvalsvísitölunni eftir helgina þannig að Icelandair Group kemur inn í vísitöluna en Bakkavör fer úr úr henni. Breytingin tekur gildi 19. apríl 2010. 16.4.2010 11:06
Ríkissjóður þarf að leggja milljarða í ÍLS Eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs (ÍLS) er talsvert lægra en samræmist langtímamarkmiðum hans og telja má líklegt að Ríkissjóður muni þurfa að leggja honum til eigið fé á næstunni, enda má enn búast við ágjöf á útlánasafn sjóðsins. 16.4.2010 10:33
Faxaflóahafnir samþykkja viðræður um hótelbyggingu Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt að ganga til viðræðna við Hafnarhótel ehf. um byggingu á 120 herbergja hóteli við Ægisgarð. Samkvæmt hugmyndum forráðamanna Hafnarhótel er m.a. gert ráð fyrir fullkominni sundlaug í hótelinu sem yrði opin almenningi. 16.4.2010 09:38
Áfram fjölgar í hópi langtímaatvinnulausra Í lok mars voru alls 16.482 einstaklingar atvinnulausir og hafði um 52% þeirra verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur sem er nokkuð hærra hlutfall en verið hefur síðustu mánuði. Líkt og við mátti búast þá heldur áfram að fjölga í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár. Í lok mars voru þeir 4.601 samanborið við 4.365 í lok febrúar. 16.4.2010 08:59
Tap breskra flugfélaga vegna öskunnar um 20 milljarðar Lokun lofthelgi Bretlands vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli veldur gífurlegu tapi hjá flugfélögum í norðurhluta Evrópu og víðar um heiminn. Áætlað er að tap breskra flugfélaga gæti numið yfir 100 milljónum punda, eða um 20 miljörðum kr., ef lokunin nær inn í helgina. 16.4.2010 08:39
Vísitala íbúðaverðs í borginni hækkar áfram Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303,5 stig í mars og hækkar um 0,5% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3,3% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 5,9%. 16.4.2010 08:00
Bakkavararbræður með opinn tékka Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir og félög tengd þeim virðast hafa haft ágætt aðgengi að lánsfé úr sjóðum Kaupþings, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 16.4.2010 04:00
ÍLS átti 347 íbúðir í árslok, eiginfjárstaðan hættulega lítil Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs (ÍLS) nam 3.2 milljörðum kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í árslok var rúmlega 10 milljarðar kr. Íbúðir í eigu sjóðsins voru 347 í árslok 2009. 15.4.2010 19:16
Háir vextir og óvissa hamla fjárfestingum Rúmlega sex af hverjum tíu (62%) forsvarsmanna aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) telja að umtalsverð lækkun stýrivaxta og samsvarandi lækkun útlánsvaxta banka myndi hvetja fyrirtæki þeirra til fjárfestinga. 15.4.2010 14:20
SA: Störfum gæti fækkað um 1.500 á almennum markaði Helmingur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggst ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á þessu ári en fjórðungur hyggst fjölga starfsmönnum og sama hlutfall fækka þeim. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar SA meðal aðildarfyrirtækja. Niðurstaðan bendir til þess að störfum á almennum vinnumarkaði fækki um rúmlega 1.500 á árinu. 15.4.2010 14:11
Áfengissalan jókst um 14,4% milli ára í mars Sala áfengis jókst um 14,4% í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 35,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu áfengis í mars 0,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 18,7% hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra. 15.4.2010 13:56
Atvinnuleysið í mars meira en á sama tíma í fyrra Skráð atvinnuleysi í mars var 9,3% eða að meðaltali 15.059 manns og breytist atvinnuleysi lítið frá febrúar, fjölgar um 33 manns að meðaltali. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysi 8,9% eða 14.546 að meðaltali. 15.4.2010 13:53
Horfum fram á sársaukafulla skerðingu á lífeyrisréttindum Fjármálaráðherra segir að landsmenn horfi fram á sársaukafulla skerðingu á lífeyrisréttindum, þar sem tap sjóðanna af efnahagshruninu hér á landi 2008 sé nú að koma fram af fullum þunga. 15.4.2010 13:13
Spennandi hvort gjaldeyrishöftin verða afnumin Spennandi verður hvort dragi til einhverra tíðinda varðandi afnám gjaldeyrishafta í kjölfar annarrar endurskoðunar efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda, en endurskoðunin er á dagskrá sjóðsins á morgun. 15.4.2010 12:44
Skuldatryggingaálag rikissjóðs stöðugt í 380 punktum Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hefur lækkað nokkuð á undanförnum vikum og nú í morgun stóð álagið til 5 ára í 380 punktum (3,82%). Jafnframt hafa sveiflurnar verið mun minni síðustu daga en oft áður, auk þess sem gildi þess hefur haldist í kringum 380 punkta nokkra daga í röð en það hefur ekki gerst síðan í nóvember á síðasta ári. 15.4.2010 12:00
OR og Mitsubishi í samstarf á heimsvísu Fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Mitsubishi Heavy Industries (MHI) undirrituðu í dag í sendiráði Íslands í Tókýó viljayfirlýsingu um samstarf fyrirtækjanna tveggja við jarðhitanýtingu á heimsvísu og innleiðingu visthæfra orkugjafa í samgöngum hér á landi. 15.4.2010 11:48
Virði Icelandair á bilinu 16 til 25 milljarðar í nýju verðmati Þýskur banki verðmetur virði eigin fjár Icelandair Group á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar. Áréttað er að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun. 15.4.2010 11:42
Markaðurinn telur að yfir 100% af Icesave endurheimtist Alþjóðamarkaðurinn með skuldabréf virðist telja að endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans mun nema töluvert meir en sem nemur Icesave-skuldinni. Skuldabréf í Landsbankanum halda áfram að hækka og er gengi þeirra nú komið í 11, það er markaðurinn telur að 11% muni fást upp í kröfur á hendur þrotabúinu. 15.4.2010 11:10
Nýskráningar bíla jukust um 114% milli ára í mars Töluverð aukin var í nýskráningum fólksbíla í mars. Í nýliðnum mánuði voru nýskráðir 156 nýir fólksbílar á móti 73 stk. í sama mánuði árið 2009 sem gerir liðlega 114% aukningu milli ára. 15.4.2010 10:41
Rekstur Árborgar skilaði 449 milljóna tapi í fyrra Rekstur sveitarfélagsins Árborgar, A og B hluti, skilaði tapi upp á 449 milljónir kr. á síðasta ári. Er það nokkuð minna tap en áætlun fyrir árið gerði ráð fyrir. 15.4.2010 09:42
Innlendar matvörur hafa hækkað um 35,6% frá ársbyrjun 2007 Innlendar matvörur, utan búvara og grænmetis, hafa hækkað um 35,6% frá ársbyrjun 2007 en innfluttar matvörur hafa hækkað um 62,8% á sama tíma. Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur vísitala neysluverðs hækkað frá ársbyrjun 2007 til mars 2010 um 35,3%. 15.4.2010 08:48
LV lækkar lífeyrisgreiðslur um 10% frá júlí Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hefur ákveðið að leggja til við aðildarsamtök sjóðsins að lækka greiðslur til lífeyrisþega um 10% frá og með 1. júlí 2010 og að áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga verði lækkuð um 10% frá 1. janúar 2010. Þessi ráðstöfun er bein afleiðing yfirstandandi fjármálakreppu sem því miður hefur komið niður á ávöxtun eigna sjóðsins. 15.4.2010 08:00
Tap hagkerfisins sagt gífurlegt Bankarnir tóku ekki að fullu tillit til gjaldeyrisáhættu vegna lána í erlendri mynt, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 15.4.2010 02:45
Auðkýfingur með rússnesk mafíutengsl fékk lán frá Kaupþingi Kaupþing lánaði rússneskum auðkýfingi sem sakaður er um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi um þrjátíu milljarða króna rétt fyrir bankahrunið. 14.4.2010 20:07
Kaupþingsmenn vildu „taka út pening strax“ Ráðabrugg lykilstjórnenda Kaupþings banka um lántöku út á hækkandi hlutabréfaverð lýsir þeirri fyrirætlun stjórnendanna að auðgast með því að taka "út peninginn strax," svo vitnað sé orðrétt í tölvupóst sem birtur er í rannsóknarskýrslu Alþingis. 14.4.2010 19:55
Hagnaður Íslandsbanka nam 24 milljörðum króna Hagnaður Íslandsbanka á síðasta ári nam 23,9 milljörðum króna og er tekjuskattur ársins áætlaður 4,7 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall bankans nam 19,8%. Arðsemi eiginfjár var 30% en enginn arður verður greiddur til eigenda bankans, eftir því sem fram kemur í afkomutilkynningu frá bankanum. 14.4.2010 16:24
Exista hagnaðist um 90 milljarða á gjaldeyrisviðskiptum Rannsóknarnefnd Alþingis metur hagnað Exista af gjaldeyrisviðskiptunum við Kaupþing upp á tæpa 90 milljarða íslenskra króna á á árunum 2007 og 2008. Eins og kunnugt er var Exista stærsti eigandi Kaupþings á þessu tímabili en samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar átti félagið í gífurlegum gjaldeyrisviðskiptum við Kaupþing fram að hruninu um haustið 2008. 14.4.2010 14:44
Skilanefnd Kaupþings hefur skoðað öll málin í skýrslunni Í kjölfar birtingar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa skilanefnd Kaupþings og starfsmenn hennar farið yfir og greint þær upplýsingar úr skýrslunni er snúa að Kaupþingi og metið hvort allt sem þykir athugavert við starfsemi Kaupþings í skýrslunni hafi verið skoðað af skilanefnd. Niðurstaðan er sú að öll mál sem tengjast Kaupþingi og tekin eru fyrir í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa verið í athugun hjá skilanefnd Kaupþings. 14.4.2010 14:11
Hlutabréf Century Aluminum hækkuðu um 2,66 prósent Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, hækkaði um 2,66 prósent í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa eitt prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,53 prósent. 14.4.2010 17:03
CNN semur við Mílu um að sýna frá gosinu Forsvarsmenn fréttastofu CNN höfðu samband við Mílu í dag, þar sem farið var á leit við fyrirtækið að fá aðgengi að vefmyndavélunum til að geta sýnt beint frá gosstöðvunum á Íslandi á fréttavef CNN. Það leyfi var veitt og er nú myndavélin sem staðsett er á Valahnúk aðgengileg á fréttavef CNN. 14.4.2010 16:52
Lítilsháttar lækkun á GBI skuldabréfavísitölunni Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 10 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 0,8 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 9,2 milljarða kr. viðskiptum. 14.4.2010 16:01