Virði Icelandair á bilinu 16 til 25 milljarðar í nýju verðmati 15. apríl 2010 11:42
Þýskur banki verðmetur virði eigin fjár Icelandair Group á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar. Áréttað er að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun.Í tilkynningu frá Icelandair Group hf. þann 25. mars síðastliðinn kom fram að félagið ynni að fjárhagslegri endurskipulagningu í samstarfi við lánveitendur sína. Jafnframt var tilkynnt að stefnt væri að lokuðu hlutafjárútboði með innlendum fagfjárfestum í því skyni að styrkja frekar fjárhagslegan grundvöll fyrirtækisins.Í tilkynningunni var áréttað að í endurskipulagningunni væri gert ráð fyrir aðkomu annarra lánveitenda auk leigusala flugvéla sem dótturfélög Icelandair Group nýta í rekstri sínum. Þar var jafnframt tekið fram að leita þurfi eftir samþykki hluthafafundar samstæðunnar fyrir ákveðnum þáttum endurskipulagningarinnar, auk endanlegs samþykkis lánveitenda.Í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu réði Icelandair Group þýska bankann DVB Bank til að framkvæma verðmat á félaginu vegna mögulegrar aðkomu nýrra fjárfesta að Icelandair Group. DVB var upphaflega ráðgjafi íslenskra fjármálastofnana í endurskipulagningarferlinu og hafa fulltrúar DVB verið þátttakendur í ferlinu frá miðju ári 2009.Við gerð verðmatsins höfðu fulltrúar DVB aðgang að fimm ára fjárhagsáætlunum Icelandair Group og miðar það að því að áætla verðmæti félagsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu þess.DVB byggir verðmat sitt mati á núvirtu frjálsu fjárstreymi og á samanburði við kennitölumargfaldara sambærilegra fyrirtækja. Verðmæti Loftleiða var hins vegar aðeins metið út frá núvirtu frjálsu fjárstreymi. Niðurstöður verðmatsins eru byggðar á meðaltali þessara verðmatsaðferða og verðmetur virði eigin fjár Icelandair Group, fyrir þau áhrif sem útboðið hefur, á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna.Mikilvægt er að árétta að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun. Forsendur verðmatsins byggja á því að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækisins verði til lykta leidd á farsælan máta sem m.a. gerir ráð fyrir verulegum breytingum á efnahagsreikningi Icelandair Group hf, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira