Auðkýfingur með rússnesk mafíutengsl fékk lán frá Kaupþingi Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. apríl 2010 20:07 Hreiðar Már segir Rússann hafa greitt sín lán að fullu.
Kaupþing lánaði rússneskum auðkýfingi sem sakaður er um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi um þrjátíu milljarða króna rétt fyrir bankahrunið. Kaupþing gerði tæplega þrjátíu milljarða króna lánasamning í ágúst 2008 við Gallagher Holdings Limited, sem var í eigu rússneska kaupsýslumannsins Alisher Usmanov. Undirliggjandi hlutabréf í þeim viðskiptum var Mmc Norilsk Adr, alþjóðlegt námufyrirtæki upprunnið í Rússlandi. Usmanov skuldaði íslenskum bönkum samtals 237 miljónir evra eða ríflega 40 milljarða kr. Langstærstur hluti upphæðarinnar var við Kaupþing. Í umfjöllun Wikipedia um Usmanov kemur fram að hann sat um sex ára skeið á níunda áratug síðustu aldar í fangelsi í Uzbekistan í Rússlandi eftir að hafa verið dæmdur fyrir mútur og fjárkúgun. Dómur hans hljóðaði upp á átta ára harða refsivist í þrælkunarbúðum. Hæstiréttur Uzbekistan snéri þessum dómi við árið 2000 og sagði að málaferlin hefðu verið tilbúningur. í viðskiptaheimi Rússlands var Usmanov þekktur sem harðhaus Rússlands eða „the hard man of Russia" eins og það er orðað á vefnum Wikipedia. Árið 2007 birtist nafn hans í málsskjölum í Denver í Bandaríkjunum þar sem hann var sakaður um fjársvik og skjalafals. Usmanov eignaðist árið 2007 hlut í enska knattspyrnuliðinu Arsenal. Hann hefur aukið hlutdeild sína smátt og smátt og er nú stærsti hluthafinn, en aðdáaendur liðsins hafa opinberlega mótmælt þátttöku hans. Fréttastofa óskaði í dag eftir upplýsingum hjá Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, um hvers vegna bankinn hefði lánað Rússanum svo háa fjárhæð svo skömmu fyrir hrun. Hreiðar Már svaraði í gegnum almannatengslafulltrúa sinn og sagði að lán Rússans hefði verið greitt upp að fullu, enda væri hann einn ríkasti maður í heimi, eins og það var orðað.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira