Skilanefnd Kaupþings hefur skoðað öll málin í skýrslunni 14. apríl 2010 14:11 Athugun skilanefndar Kaupþings hefur meðal annars beinst að lánum til tengdra aðila og stærri viðskiptamanna bankans, óreglulegum viðskiptum og viðskiptum við eða í gegnum dótturfélög bankans erlendis.
Í kjölfar birtingar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa skilanefnd Kaupþings og starfsmenn hennar farið yfir og greint þær upplýsingar úr skýrslunni er snúa að Kaupþingi og metið hvort allt sem þykir athugavert við starfsemi Kaupþings í skýrslunni hafi verið skoðað af skilanefnd. Niðurstaðan er sú að öll mál sem tengjast Kaupþingi og tekin eru fyrir í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa verið í athugun hjá skilanefnd Kaupþings.Í tilkynningu um málið segir að samkvæmt lögum er meginmarkmið skilanefndar að hámarka endurheimt fjármuna sem tilheyra Kaupþingi og kröfuhöfum hans. Í þeim tilvikum þar sem skilanefnd hefur í störfum sínum öðlast vitneskju um atvik sem geta gefið tilefni til rökstudds gruns um refsivert athæfi ber henni lögum samkvæmt að tilkynna það yfirvöldum.Frá því skilanefnd Kaupþings tók til starfa 9. október 2008 hefur hún átt gott samstarf við yfirvöld og afhent mikið magn gagna er varða tugi mála sem hafa verið í athugun hjá yfirvöldum. Um er að ræða ýmis viðskipti sem í einhverjum tilvikum hlaupa á tugum eða jafnvel hundruðum milljarða króna.Athugun skilanefndar Kaupþings hefur meðal annars beinst að lánum til tengdra aðila og stærri viðskiptamanna bankans, óreglulegum viðskiptum og viðskiptum við eða í gegnum dótturfélög bankans erlendis.Skilanefnd Kaupþings hefur í öllum tilvikum upplýst þar til bær yfirvöld jafnóðum um atvik sem geta gefið tilefni til rökstudds gruns um refsivert athæfi. Rétt er að benda á að skilanefnd er óskylt að leita eftir slíkri vitneskju umfram það sem leiðir af upplýsingaöflun í störfum hennar.Skilanefnd Kaupþings hefur veitt aðilum sem unnið hafa að rannsókn mála í kjölfar bankahruns, þ.m.t. Sérstökum saksóknara, Fjármálaeftirlitinu, Rannsóknarnefnd Alþingis, Ríkisskattstjóra og Skattrannsóknarstjóra alla þá aðstoð sem óskað hefur verið eftir við rannsókn mála. Jafnframt hefurskilanefnd fúslega veitt fyrrgreindum aðilum greiðan aðgang að öllum gögnum og upplýsingum sem óskað hefur verið eftir. Skilanefnd hefur svarað öllum erindum frá þeim og m.a. útbúið sérstaka aðstöðu til að auðvelda þeim störf sín.Skilanefnd hefur notið aðstoðar færustu sérfræðinga við athuganir sínar, þ.m.t. sérfræðinga í réttarrannsóknum (e. forensic auditors) frá Grant Thornton í Bretlandi og lögmanna frá alþjóðlegulögmannsstofunni Weil, Gotshal & Manges. Þessir aðilar hafa fjölþætta og alþjóðlega reynslu af meðferð gjaldþrotamála og rannsóknum og úrvinnslu mála á því sviði. Þá hefur skilanefnd boðið rannsóknaraðilum aðgang að upplýsingum og gögnum sem hún hefur aflað og unnið með aðstoð erlendra ráðgjafa sinna.Haustið 2008 réð skilanefnd Kaupþings, alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækið Pricewaterhouse Coopers (PwC) til að framkvæma ítarlega skoðun á atburðum síðustu vikna fyrir fall bankans. Skýrsla um niðurstöður rannsóknarinnar lá fyrir í desember 2008 og var henni skilað til Fjármálaeftirlitsins.Í ágúst 2009 réð slitastjórn Kaupþings PwC til að rannsaka aðgerðir Kaupþings banka fram að greiðslustöðvun og kanna sérstaklega í nánu samstarfi við eftirlitsnefnd skilanefndar Kaupþings möguleika á riftunum gjörða bankans tvö ár aftur í tímann og meta hvort bankinn ætti rétt á bótakröfum vegna viðskiptagjörninga.Slitastjórn hefur þegar vísað málum til viðkomandi yfirvalda á grundvelli rannsóknarinnar og fjöldi riftunarmála og annarra mála eru í farvegi og munu líta dagsins ljós á næstunni.
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira