Fleiri fréttir

Þýska aflvélin í góðum gír

Afgangurinn af viðskiptajöfnuði Þýskalands jókst úr 5 milljörðum evra í ágúst og upp í 14 milljarða evra í september sem eru um 2.200 milljarðar kr.

Gjaldþrotum fækkar í Danmörku

Gjaldþrotum fyrirtækja í Danmörku fækkaði um 5% í október miðað við sama mánuð í fyrra. Er þetta í fyrsta sinn á liðnu ári sem slíkt gerist.

Málaferli gætu dregist á langinn og skaðað Ísland

Kröfuhafar stóru föllnu bankanna þriggja segja að málaferli þeirra á hendur íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna gætu dregist á langinn árum saman og orðið mjög skaðleg fyrir Ísland. Þeir hyggjast hnekkja því ákvæði neyðarlaganna sem kveður á um forgangsrétt innstæðueigenda, en greint er frá þessu á vef breska dagblaðsins The Guardian.

Segja gögn sanna bein afskipti Hannesar

Slitastjórn Glitnis telur sig búa yfir gögnum sem sanna að Hannes Smárason, fyrrum stjórnarformaður FL Group sem var stærsti hluthafi bankans, hafi haft bein áhrif á lánveitingar Glitnis á sínum tíma. Hefur Hannes sjálfur og reyndar velflestir sjömenninganna sem stefnt er af hálfu slitastjórnar neitað öllu slíku hingað til.

Flutti 631 tonn af langreyðum til Japans

Hvalur hf. flutti 631 tonn af langreyðum til Japan fyrstu níu mánuði þessa árs og heildarútflutningurinn gæti numið svipuðu magni og flutt var snemma á tíunda áratug síðustu aldar, að því er fram kemur í vefútgáfu Japan Today. Í Japan eru um fjögur þúsund tonn af hvalkjöti, aðallega hrefnu sem veidd er í „vísindaskyni," sett á markað í Japan á ári hverju.

Smálánafyrirtæki Bjarna Ármanns selt á þrjá milljarða

Smálánafyrirtækið Folkia, sem var að hluta í eigu Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis, var nýlega selt bandarísku fyrirtæki fyrir þrjá milljarða. Gera má ráð fyrir að Bjarni hafi fengið 300 milljónir fyrir sinn snúð, en 800 milljóna króna skuld hans við skilanefnd Glitnis stendur þó enn ógreidd.

Til verði yfir 50 þúsund ný störf

Bandarísk stjórnvöld hafa gengið frá viðskiptasamkomulagið við Indland að andvirði 10 milljarða dollara. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, greindi frá þessu í dag en hann kom til Indlands í opinbera heimsókn í morgun. Lögð verður aukinn áhersla á útflutning og vonast Obama til þess að samkomulagið verði til þess að um 54 þúsund störf verði til í Bandaríkjunum.

Aldrei fleiri íslensk skáldverk gefin út

Aldrei fleiri íslensk skáldverk hafa verið gefin út en í ár en 85 titlar eru skráðir í Bókatíðindi íslenskra bókaútgefenda. Þetta er tólf titlum fleira en fyrra metárið 2007 að því fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Þótt íslenskum skáldverkum fjölgi eru titlar sem rata í Bókatíðindin í heild lítið eitt færri en metárið 2007. Nú eru titlarnir 747, um fimmtíu færri en árið 2007. Ævisögurnar gefa mest eftir. Þær eru 31 talsins og hafa ekki verið færri síðan 1999.

Tæpir 90 milljarðar á veltureikningum

Landsmenn eru með um 89 milljarðar króna inni á veltureikningum, en vextir á þeim eru lágir og í öllum tilvikum skila þeir neikvæðri raunávöxtun. Bankarnir bjóða hins vegar upp á reikninga með litlum binditíma sem bera jákvæða raunvexti auk veðtryggðra reikninga, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Höftin eiga að hverfa

Stjórn efnahagsmála verður að bregðast illilega til þess að gjaldeyrishöftum verði hér við haldið um lengri tíma. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi Viðskiptaráðs Íslands í gærmorgun. Hann sagði höftin hafa gegnt hlutverki í að ná stöðug

Bagalegt að greiðslukort skuldara séu klippt

Umboðsmaður skuldara segir bagalegt að vita til þess að greiðslukort einstaklinga í greiðsluaðlögun hafi verið klippt í verslunum. Upplýsingum um skilyrði greiðsluaðlögunar verður aftur komið á framfæri til þeirra sem eiga inni umsókn.

Skipti selja Já

Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Já upplýsingaveitum ehf. Í tilkynningu frá Skiptum segir að kaupandinn sé fyrirtæki í meirihlutaeigu Auðar 1 fagfjárfestasjóðs. Kaupverð er trúnaðarmál en söluhagnaður Skipta af viðskiptunum nemur 1,3 milljörðum króna. Greitt er fyrir hlutinn með reiðufé.

Seðlabankastjóri: Gjaldeyrishöftin verða mögulega framlengd

Seðlabankastjóri segir að það gæti orðið hluti af nýrri áætlun um gjaldeyrishöftin sem kynnt verður fyrir mars næstkomandi að leggja til að höftin verði framlengd, en samkvæmt gildandi lögum rennur heimildin til þeirra út í ágúst 2011.

Frumtak kaupir hlut í Mentor fyrir 200 milljónir

Frumtak hefur fest kaup á hlut í Mentor ehf. Mentor var stofnað árið 1990 og hefur frá upphafi unnið með grunnskólum og er því komið með 20 ára reynslu af þróun og rekstri upplýsingakerfa. Kaup Frumtaks nema 200 milljónum kr.

Erlendar krónueignir geta sloppið út gegnum íbúðabréf

Greining Arion banka veltir því fyrir sér afhverju erlendir krónueigendur nýti sér ekki íbúðabréf til að losna við krónur sínar yfir í gjaldeyri. Þetta er vel hægt einkum með því að nýta sér stysta íbúðabréfaflokkinn. Með kaupum í honum þurfa erlendu krónubréfaeigendurnar ekki að bíða eftir afnámi gjaldeyrishaftanna.

Seðlabankinn rannsakar skuldabréfamarkaðinn

Seðlabankinn mun rannsaka það sem gerðist á skuldabréfamarkaðinum í ágúst og september en þróunin á markaðinum þá hafði á sér ásýnd bólu. Þetta kom fram í ræðu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á ráðstefnu Viðskiptaráðs Íslands sem nú stendur yfir.

Vextir í sögulegu lágmarki en svigrúm til frekari lækkunnar

Már Guðmundson seðlabankastjóri segir að Seðlabankavextir séu nú í sögulegu lágmarki og hafi ekki verið lægri í 50 ára sögu bankans. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra á ráðstefnu Viðskiptaráðs Íslands sem nú stendur yfir.

Greiðslukortavelta heimila jókst um 5,6% milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 7,5% í janúar–september í ár miðað við janúar– september í fyrra. Debetkortavelta jókst um 3,7 % á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–september 2010 um 5,6%.

SÍF snuðaði kanadískan fiskverkanda

Fiskverkanda frá Nova Scotia í Kanada hafa verið dæmdir 180 þúsund dollarar, jafnvirði um 20 milljóna króna, fyrir vangreidda ráðgjafarþóknun frá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda (SÍF). Sagt er frá málinu í blaðinu The Chronicle Herald.

Nær öll bankahólf Íslandsbanka í notkun

Næstum öll bankahólf Íslandsbanka eru í notkun samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Viðskiptavinur bankans hafði samband við Vísi og greindi frá því að hann hefði sótt um bankahólf hjá bankanum.

Simmi og Jói eru markaðsmenn ársins

Íslensku Markaðsverðlaunin voru afhent í hádeginu í dag. Tvíeykið Simmi & Jói voru saman valdir Markaðsmaður ársins. Markaðsfyrirtæki ársins er Borgarleikhúsið.

Telur hagspá Seðlabankans full bjartsýna

Greining Arion banka telur Seðlabankann enn nokkuð bjartsýnan, bæði hvað varðar einkaneyslu og fjárfestingu í nýjustu hagspá sinni. Hagspáin var kynnt í Peningamálum í gærdag en þau komu út í tengslum við stýrivaxtaákvörðun bankans.

Icelandair og SAS í samstarf

Icelandair og SAS tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli um margháttað samstarf sem einkum snýr að samkenndum flugum og gagnkvæmum réttindum fyrir vildarklúbbsfélaga.

Ísland hrapar niður lífskjaralista SÞ

Ísland hefur hrapað niður lífskjaralista Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) í ár og vermir nú 17. sæti listans. Í fyrra var Ísland í 3. sæti listans og árið 2007 var Ísland á toppi hans.

Nær fertug jómfrú færir sig um set

Ein ástsælasta smurbrauðsjómfrú landsins, Oddrún Sverrisdóttir, hefur gengið til liðs við veitingahúsið Nauthól í Nauthólsvík. Oddrún mun leiða smurbrauðsgerð Nauthóls, en hún hefur starfað í faginu í hartnær fjóra áratugi, þar af síðustu tvo áratugina hjá smurbrauðsgerðinni Brauðbæ.

Alcoa reisir nýja kersmiðju fyrir austan

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, tók í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri fjögur þúsund fermetra kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð. Stefnt er að því að hún verði tekin í notkun eftir rúmt ár, í byrjun árs 2012.

Miklar afskriftir setja svip á uppgjör BankNordik

Miklar afskrifir á útlánum setja svip sinn á uppgjör BankNordik (áður Færeyjabanki) fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Námu þær rúmum 150 milljónum danskra kr. eða yfir 3 milljörðum kr. en á sama tímabili í fyrra voru afskriftir þessar 19,5 milljónir danskra kr.

Útiloka ekki skemmdarverk í kauphöllinni í London

Forráðamenn kauphallarinnar í London vilja ekki útiloka að skemmdarverk hafi verið fram í kauphöllinni s.l. þriðjudagsmorgun en þá hrundi eitt af helstu viðskiptakerfum kauphallarinnar í tvo tíma.

Skattrannsókn skilar 80 milljörðum í Danmörku

Embætti ríkisskattstjórans í Danmörku telur að það geti náð aftur um fjórum milljörðum danskra króna eða um 80 milljörðum króna af skattaundanskotum til aflandseyja á undanförnum árum.

Hafna aldrei fresti á uppboði

Íbúðalánasjóður frestar nauðungarsölum hjá fólki sem óskar eftir því og reynir að koma í veg fyrir nauðungarsölu. Nóg er að gera slíkt símleiðis. Staðfesting frá umboðsmanni skuldara dugar til að fresta uppboði á fasteignum.

Sjá næstu 50 fréttir