Viðskipti innlent

Segja gögn sanna bein afskipti Hannesar

Hannes Smárason.
Hannes Smárason. Mynd/Anton Brink
Slitastjórn Glitnis telur sig búa yfir gögnum sem sanna að Hannes Smárason, fyrrum stjórnarformaður FL Group sem var stærsti hluthafi bankans, hafi haft bein áhrif á lánveitingar Glitnis á sínum tíma. Hefur Hannes sjálfur og reyndar velflestir sjömenninganna sem stefnt er af hálfu slitastjórnar neitað öllu slíku hingað til.

Slitastjórn Glitnis hefur farið fram á að leggja gögnin fram fyrir dómstól í New York þar sem hún hefur stefnt fyrrverandi stjórnendum og hluthöfum Glitnis og viðskiptafélögum þeirra og krafist 250 milljarða króna í skaðabætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×