Viðskipti innlent

Icelandair og SAS í samstarf

Á myndinni eru Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og Lars Sandström, forstöðumaður samstarfsmála hjá SAS við undirritun samningsins í Stokkhólmi í gær
Á myndinni eru Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og Lars Sandström, forstöðumaður samstarfsmála hjá SAS við undirritun samningsins í Stokkhólmi í gær

Icelandair og SAS tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli um margháttað samstarf sem einkum snýr að samkenndum flugum og gagnkvæmum réttindum fyrir vildarklúbbsfélaga.

Í tilkyningu segir að samningurinn felur í sér að frá og með 8. nóvember verður flug SAS frá Kaupmannahöfn og Stokkhólmi til Berlínar, Gautaborgar, Hamborgar, Mílanó, Munchen, Vilnius, Zurich og Varsjár samkennt með Icelandair, sem tryggir þægilegri tengingar og þjónustu milli Íslands og þessara áfangastaða.

Í samningnum er einnig kveðið á um samstarf vildarklúbba félaganna og stefnt að því að snemma árs 2011 muni félagar í Vildarklúbbi Icelandair geta nýtt vildarréttindi sín í EuroBonus klúbbi SAS, jafnframt því sem viðskiptavinir SAS öðlist samskonar réttindi í Vildarklúbbi Icelandair.

"Samkomulagið tryggir þægilegri tengingar og hagstæðari fargjöld milli Íslands og Evrópu í gegnum tengistöðvar SAS í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi", segir Robin Kamark, framkvæmdastjóri sölumála SAS.

"Þessar bættu tengingar og þjónusta eru góðar fréttir fyrir viðskiptavini Icelandair. Við getum nú boðið betri þjónustu og við fögnum því að auka samstarf okkar við SAS með þessum hætti", segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×