Viðskipti innlent

Alcoa reisir nýja kersmiðju fyrir austan

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, tók í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri fjögur þúsund fermetra kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð. Stefnt er að því að hún verði tekin í notkun eftir rúmt ár, í byrjun árs 2012.

Gert er ráð fyrir því að á bilinu sextíu til áttatíu manns muni vinna við að reisa smiðjuna að jafnaði, þegar mest láti um 160 manns. Reksturinn mun skapa um sjötíu störf til framtíðar, að því er segir í tilkynningu. Áætlað er að heildarfjárfestingin nemi 3,5 milljörðum króna.- jab








Fleiri fréttir

Sjá meira


×