Viðskipti innlent

Miklar afskriftir setja svip á uppgjör BankNordik

Miklar afskrifir á útlánum setja svip sinn á uppgjör BankNordik (áður Færeyjabanki) fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Námu þær rúmum 150 milljónum danskra kr. eða yfir 3 milljörðum kr. en á sama tímabili í fyrra voru afskriftir þessar 19,5 milljónir danskra kr.

Nettótap BankNordik á ársfjórðungnum nam tæpum 76 milljónum danskra kr. eða um 1,5 milljarði kr. Á sama tímabili í fyrra nam tapið 47,5 milljónum danskra kr.

Samkvæmt uppgjörinu minnkaði eiginfjárhlutfall bankans niður í 17,2% en það var 25,3% á þriðja ársfjórðungi í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×