Íslendingar borga lægstu tekjuskattana á Norðurlöndum samkvæmt skýrslu Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. nóvember 2010 12:04 Íslendingar greiða í sjálfstæða lífeyrissjóði til að tryggja sér lífeyri, en á hinum Norðurlöndunum greiðir fólk hærri skatta og ríkið sér alfarið um slík lífeyrismál. Mynd/Pjetur
Þrátt fyrir skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru tekjuskattar lægstir á Íslandi og Noregi af öllum Norðurlöndunum, samkvæmt skýrslu KPMG um skattamál. Í Noregi eru tekjuskattar einstaklinga ásamt tryggingagjöldum 47,8 prósent en hæst 46,3 prósent á Íslandi. Af öllum Norðurlöndunum eru Norðmenn og Íslendingar með lægstu tekjuskattana, að því er fram kemur í alþjóðlegri samantekt KPMG á tekjusköttum ríkja. Tekjuskattar verða hæst 46,3 prósent á Íslandi með tryggingagjaldi en 47,8 prósent í Noregi. Í þessu samhengi er rétt að minna á að fyrir skattahækkanir núverandi ríkisstjórnar fóru tekjuskattar einstaklinga á Íslandi hæst í 37,2 prósent með tryggingagjaldi. Ef bornir eru saman tekjuskattar ásamt tryggingagjaldi meðal OECD-ríkja kemur það ekki sérstaklega á óvart að Svíar tróna á toppnum með hæstu skattana en launþegar þar í landi greiða 56,6 prósent tekjuskatta. Inni í þeirri tölu eru þó ekki bara skattarnir, heldur einnig lífeyrissjóðsgreiðslur sænskra launþega og margvísleg önnur réttindi. Danir fylgja Svíum fast á eftir með 55,4 prósent tekjuskatt, en þar sér hið opinbera einnig um greiðslur í lífeyrissjóði fyrir launþega. Meðal OECD-ríkja koma Hollendingar á eftir Dönum með 52 prósenta tekjuskatt og Englendingar með 50 prósent. Austurríki, Belgía, og Japan deila þessari tekjuskattsprósentu með Englendingum en þar eru skattarnir einnig 50 prósent. Tekjuskattar ásamt tryggingagjaldi í Finnlandi eru 49,6 prósent og 47 prósent á Írlandi. Í umræðu um skattamál má í þessu samhengi geta þess að í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenska skattkerfið, sem AGS vanna að beiðni íslenskra stjórnvalda og kynnt var í júlí síðastliðnum, kom fram að AGS teldi það skekkja verulega samanburð á íslenska skattkerfinu og kerfinu á hinum Norðurlöndunum að Íslendingar greiða í sjálfstæða lífeyrissjóði til að tryggja sér lífeyri, en á hinum Norðurlöndunum greiðir fólk hærri skatta og ríkið sér alfarið um slík lífeyrismál.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira