Viðskipti innlent

Tekjur Faxaflóahafna áætlaðar 2,3 milljarðar á næsta ári

Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2011. Áætlunin verður síðan tekin fyrir af borgarstjórn Reykjavíkur sem afgreiðir hana ásamt áætlunum annarra B-hluta fyrirtækja borgarinnar.

Áætlunin gerir ráð fyrir að tekjur Faxaflóahafna sf. verði tæpir 2,3 milljarðar kr., sem er 2.0% hækkun á milli ára, en rekstrarútgjöld verða rétt liðlega 2.0 milljarðar kr., sem er um 1,8% hækkun á milli ára.

Fjallað er um málið á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að framkvæmdir ársins 2011 eru áætlaðar 720 milljónir kr. auk þess sem sérgreind viðhaldsverkefni hafnarmannvirkja og fasteigna, sem færast undir rekstur, eru um 100 milljónir kr.

Helstu framkvæmdir Faxalfóahafna sf. á árinu 2011 munu verða uppsetning flotbryggja í Gömlu höfninni í Reykjavík ásamt endurnýjun hluta bryggju á Ingólfsgarði. Verkefnin í Sundahöfn lúta að áframhaldandi landþróun utan Klepps og undirbúningi fyrir viðlegumannvirki þar.

Á Grundartanga verður unnið að lengingu hafnabakka um 120 - 150 metra og á Akranesi sett niður ný flotbryggja og hluti hafnarinnar dýpkaður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×