Skipti selja Já 5. nóvember 2010 16:07 Brynjólfur Bjarnason.
Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Já upplýsingaveitum ehf. Í tilkynningu frá Skiptum segir að kaupandinn sé fyrirtæki í meirihlutaeigu Auðar 1 fagfjárfestasjóðs. Kaupverð er trúnaðarmál en söluhagnaður Skipta af viðskiptunum nemur 1,3 milljörðum króna. Greitt er fyrir hlutinn með reiðufé. „Í ágúst 2005 stofnaði Skipti sérstakt félag um starfsemi Já," segir í tilkynningu. „Símaskráin hefur verið gefin út hér á landi síðan 1906 en starfsemin hefur þróast í takt við tækninýjungar. Þannig hefur Já bætt almennri upplýsingagjöf í gegnum 118 við starfsemi sína og þróað og markaðssett vefinn Já.is, sem er ein mest sótta vefsíða á Íslandi. Já vinnur náið með öllum fjarskiptafyrirtækjum á Íslandi." Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta segir að ákvörðunin um að gera Já að sérstakri rekstrareiningu innan Skipta hafi reynst farsæl. „Tekjur og arðsemi fyrirtækisins hafa vaxið og fyrirtækið hefur náð góðri stöðu á íslenskum markaði. Starfsfólk og stjórnendur hafa unnið frábært starf og fyrirtækið hefur breyst úr því að vera deild innan Símans í það að vera upplýsingaveitufyrirtæki sem þjónar öllum fjarskiptafyrirtækjum á Íslandi." Brynjólfur segir söluverðið mjög ásættanlegt og að það sé afar jákvætt að hagnast um 1,3 milljarða króna af fjárfestingu á þessum tímum. „Við munum nýta þá fjármuni sem fást við söluna til að styrkja fjárhagsstöðu Skipta enn frekar og greiða niður skuldir."
Mest lesið Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Viðskipti innlent BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Atvinnuleysi minnkar lítillega Viðskipti innlent Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira