Viðskipti innlent

Seðlabankinn með 43% af gjaldeyrisveltunni í október

Velta á millibankamarkaði í októbermánuði 2010 nam 2.175 milljónum kr. sem er 419 milljóna kr. minni velta en í septembermánuði.

Þdetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 934 milljónum kr. eða 42,9% af heildarveltu mánaðarins.

Gengi krónunnar veiktist um 0,15% gagnvart evru í mánuðinum.

Gjaldeyriskaup Seðlabankans í október eru minna hlutfall af veltunni á markaðinum en í september þegar þau námu ríflega 50%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×