Viðskipti innlent

Athugun á hæfi Gunnars lokið - ekki tilefni til að aðhafast frekar

Gunnar Andersen, forstjóri FME.
Gunnar Andersen, forstjóri FME.

Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur lokið athugun á hæfi Gunnars Þ. Andersen forstjóra og sér ekki tilefni til að aðhafast frekar.

Í tilkynningu frá stofnuninni segir að Andri Árnason hrl. hafi gert sérstaka athugun á hæfi Gunnars Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, að beiðni stjórna, með hliðsjón af umfjöllun í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um viðskipti Landsbanka Íslands hf. og félagsins LB Holding Ltd. með hlutabréf Kaupþings banka hf. á árinu 2001, „og í tilefni af upplýsingum um viðskipti Landsbankans og félagsins NBI Holding Ltd. með hlutabréf í [V] á árinu 2001. Magnús G. Benediktsson, löggiltur endurskoðandi, vann einnig að athuguninni."

Í tilkynningu frá FME segir að Andri hafi nú skilað athuguninni til stjórnar og fjallaði hún um niðurstöður hennar á fundi sínum í dag. „Í ljósi niðurstöðu athugunarinnar tók stjórnin ákvörðun um að ekki væri tilefni til að aðhafast frekar í málinu."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×