Orkuveita Reykjavíkur fær íslenskt lánshæfismat upp á B+ 5. nóvember 2010 09:44
Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. birti í dag lánshæfismat fyrir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í fyrsta skipti. Einkunnin er B+ með stöðugum horfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR. Þar segir að einkunnagjöf Reitunar er lítillega frábrugðin þeirri aðferðafræði sem almennt þekkist. Ríkissjóður myndar grunn að einkunn til viðmiðunar við útgefendur. Einkunnaflokkar eru A,B,C og D. Undirflokkar eru +,0,-. Samtals eru 12 flokkar. Til viðbótar er tilgreint hvort horfur séu jákvæðar, stöðugar eða neikvæðar. Orkuveita Reykjavíkur gerði samning við Reitun í haust um greiningu og mat á lánshæfi fyrirtækisins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Markmiðið er að gera fjárfestum kleift að fá álit óháðra aðila á fjármálum fyrirtækisins. Reitun er dótturfélag IFS Greiningar og var stofnað fyrr á þessu ári. Í mati Reitunar um Orkuveitu Reykjavíkur segir: „Efnahagur OR stendur veikt í dag. Ójafnvægi í myntsamsetningu tekna og skulda hefur komið sér illa fyrir fyrirtækið vegna gengisfalls íslensku krónunnar. Hins vegar hefur verðmætasköpun rekstrar haldist óbreytt, sjóðsstreymi er stöðugt og fer vaxandi. Þegar hefur verið gripið til aðgerða til að styrkja fjárhagsstöðu OR. Dregið hefur úr pólitískri áhættu með tengingu gjaldskrár smásölu við verðlagsþróun auk þess sem sett verður arðgreiðslustefna til framtíðar sem endurspeglar afkomu OR. Gert er ráð fyrir að skuldir greiðist niður um 25% næstu sex árin. Mikilvægt er að OR nýti allt laust fé sem reksturinn skapar til niðurgreiðslu lána þar sem líklegt er að lánsfjármögnun verði dýrari næstu árin. Fyrirtækið ræður þó vel við hækkun vaxtakostnaðar tímabundið. Að teknu tilliti til bakábyrgðar Reykjavíkurborgar, leiddi mat okkar til lánshæfis OR í flokki B+ með stöðugum horfum. Standist fyrirliggjandi fjárhagsáætlun til 2016 og gangi lækkun skulda eftir mun það leiða til hækkunar lánshæfis. Ytri þættir, s.s. styrking krónunnar, lægri vextir, og batnandi fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar myndu að öllum líkindum einnig hafa áhrif til hækkunar. Verulegar vaxtahækkanir á lánasafnið, fjárfestingarþörf umfram áætlun án nýrra verkefna, og frekari gengislækkun íslensku krónunnar hefðu að öllum líkindum áhrif til lækkunar lánshæfismats að öðru óbreyttu."
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira