Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjóðsstjóri og miðlari ákærðir fyrir markaðsmisnotkun Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Þá hefur Stefnir Agnarsson, sem þá starfaði sem miðlari í skuldabréfamiðlun Kaupþings, einnig verið ákærður fyrir sama brot. 6.3.2009 12:48
Glitnir nær samkomulagi um dótturfélagið í Lúxemborg Skilanefnd Glitnis og Seðlabanki Lúxemborgar hafa undirritað samning um hvernig staðið skuli að uppgjöri skulda vegna dótturfélags Glitnis í Lúxemborg. Seðlabankinn í Lúxemborg er hluti af neti Seðlabanka Evrópu. 6.3.2009 11:43
Breskur fasteignalánasjóður tapar stórt á íslensku bönkunum Breski fasteignalánasjóðurinn Newcastle Building Society (NBS) tapaði stórum fjárhæðum á hruni íslensku bankanna á síðasta ári. Tapið nemur tæplega 36 milljón pund eða tæpum 6 milljörðum kr.. 6.3.2009 11:15
Kreppan í Austur-Evrópu veldur Actavis erfiðleikum Fjármálakreppan í Austur-Evrópu og miðhluta álfunnar veldur Actacvis erfiðleikum en um 40% af sölu félagsins er á þessum svæðum. 6.3.2009 10:37
Makaskipti halda uppi fölsku verði á fasteignamarkaði Makaskipti hafa færst verulega í aukanna en það er þegar fasteignir eru notaðar í skiptum fyrir hið keypta. Í slíkum viðskiptum er hinu eldra skipt upp í á yfirverði en þannig fæst hærra lán á hina keyptu eign. 6.3.2009 10:35
Straumur einn á hreyfingu í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 1,18 prósent í Kauphöllinni í byrjun dags. Þetta er eina hreyfingin það sem af er. 6.3.2009 10:19
Raunlækkun launa 7,5% á fjórða ársfjórðungi í fyrra Raunlækkun launa nam 7,5% á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Laun hækkuðu um 8,3% á fjórðungnum m.v. sama tímabil árið áður. Verðbólgan mældist hinsvegar 17% og því nam launalækkun í raun 7.5%. 6.3.2009 10:08
Landsframleiðslan jókst um 0,3% í fyrra Landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.465 milljarðar króna og jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,5% vaxtar á árinu 2007. 6.3.2009 09:29
Novator gerir kröfu um breytingar á stjórn Amer Sports Novator, í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, hefur gert kröfu um að breytingar verði gerðar á stjórn íþróttaverslunnarkeðjunnar Amer Sports í Finnlandi. Hefur Novator farið fram á aukahluthafafund af þessum sökum. 6.3.2009 09:15
ECB tapaði 800 milljörðum á íslensku bönkunum og Lehman Evrópski seðlabankinn (ECB) tapaði 5,7 milljörðum evra eða rúmlega 800 milljörðrum kr. á hruni íslensku bankanna í haust, á gjaldþroti Lehman Brothers og hollenska bankanum Indover NL. 6.3.2009 08:54
Mosaic Fashions hf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum Mosaic Fashions hf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hér á Íslandi og verður beiðni um það send til Héraðsdóms Reykjavíkur á næstu dögum að því er segir í tilkynningu. 6.3.2009 08:47
Húsgögn Baugs boðin starfsmönnum til sölu Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, býður nú húsgögn af skrifstofum félagsins í London til sölu en þau eru metin á um 15.000 pund og eru mörg hver verk frægra húsgagnahönnuða. 6.3.2009 08:25
Bréf lækka í Asíu Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í verði í morgun í kjölfar lækkunar á Wall Street í gær en þar féllu bréf Citigroup-bankans svo langt niður að verðið á hlut fór niður fyrir einn dollara í fyrsta sinn í sögu bankans. Í Japan varð lækkunin einna mest hjá bílaframleiðandanum Honda, 5,3 prósent, enda dregst sala nýrra bíla nú saman um allan heim. Eins lækkuðu bréf Billington-námafyrirtækisins um tæp þrjú prósent. 6.3.2009 08:15
Hlutabréf lækkuðu verulega á Wall Street Töluverðar lækkanir urðu á Wall Street vegna ótta um stöðu stærstu banka Bandaríkjanna og vanda General Motors sem talinn er fara vaxandi. Dow Jones lækkaði um 4,09%, S&P 500 lækkaði um 4,25 og Nasdaq lækkaði um 4%. Lækkunin í dag étur upp þá hækkun sem varð á mörkuðum í gær. 5.3.2009 21:13
Allir þurfa að færa fórnir fyrir bílaiðnaðinn Allir sem hlut eiga að máli varðandi bílaiðnaðinn í Bandaríkjunum verða að færa fórnir til þess að þessi iðngrein geti náð fyrir styrk. Þetta sagði talsmaður Hvíta hússins í dag. „Allir hlutaðeigandi verða að gefa af sér til þess að nauðsynlegar endurbætur geti átt sér stað," sagði Robert Gibbs, 5.3.2009 21:08
Með bónuskerfum fela stjórnendur fjármálafyrirtækja vátíðindi Afkomutengd bónuskerfi geta orðið til þess að stjórnendur fjármálafyrirtækja reyni að fela slæmar fréttir, segir prófessor. Æðstu stjórnendur Kaupþings fengu tugi milljóna króna bónusgreiðslur í hittiðfyrra, fyrir hagnað, enda þótt þá hefði verið viðbúið að milljarða undirmálslán yrðu færð sem tap. 5.3.2009 20:47
Seðlabankastjórastaðan auglýst Þeir sem ganga með seðlabankastjórastöðuna eða stöðu aðstoðarseðlabankastjóra í maganum þurfa að fara að huga að umsókn því forsætisráðherra hefur, í samræmi við ný lög um 5.3.2009 17:16
Stjórnarformaður Byrs lætur af störfum Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, hefur tilkynnt að hann sjái sig knúinn til að láta tímabundið af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn fram að næsta aðalfundi hans. Við stjórnarformennsku Jóns Þorsteins tekur Jón Kristjánsson sem verið hefur varaformaður stjórnar Byrs. 5.3.2009 14:21
Segir aðalfundi bankanna hugsanlega ólöglega Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í morgun að allir aðalfundir nýju ríkisbankanna, stjórnir þeirra og ráðstafanir kynnu að vera ógildar þar sem ekki hefði verið fylgt lögum um opinber hlutafélög. 5.3.2009 12:36
Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri Englandsbanki lækkaði í dag stýrivexti og standa þeir nú í hálfu prósenti. Þeir hafa aldrei verið lægri. 5.3.2009 12:02
Hagnaður bjórrisa dragast verulega saman Bjórrisinn Anheuser-Bush Inbev hagnaðust um 62 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði sjö milljarða króna, á síðasta ársfjórðungi. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára. 5.3.2009 11:53
Helgi endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins Iðnþing Samtaka iðnaðarins stendur nú yfir á Grand hótel. Helgi Magnússon var í dag endurkjörinn formaður samtakanna með 92,42% greiddra atkvæða. Engir aðrir fengu atkvæði. Helgi verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2010. 5.3.2009 11:40
Gengi Marel Food Systems hækkar um 1,3 prósent Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgja bréf Færeyjabanka, sem hefur hækkað um 1,01, prósent, og bréf Bakkavarar, en gengi þeirra hefur hækkað um 0,53 prósent. 5.3.2009 10:10
Asíubréf á uppleið Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf framleiðslu- og byggingarfyrirtækja sem hækkuðu mest. Bréf námufyrirtækisins Billington hækkuðu um tæplega fjögur og hálft prósent og bréf japanska bílaframleiðandans Mazda hækkuðu um 11 prósent eftir veikingu jensins en stór hluti Mazda-bíla er fluttur úr landi og seldur á erlendum mörkuðum. 5.3.2009 08:17
Afskrifuðu ekki tugmilljarða tap Stjórn gamla Kaupþings fegraði stöðu bankans með því að afskrifa ekki tug milljarða tap vegna skuldabréfa. Lögmenn segja almenning sem fjárfesti í bankanum hafa verið blekktan en því hafnar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. 4.3.2009 18:30
Allar helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street Allar helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street hækkuðu í dag. Dow Jones hækkaði um 2,23% en er enn undir 7000 stigunum. S&P 500 hækkaði um 2,38% og fór yfir 700 stigin. Þá hækkaði Nasdaq um 2,48%. 4.3.2009 21:13
Ari Edwald: Sala á Senu ekki í uppnámi Ari Edwald, stjórnarformaður Íslenskrar afþreyingar, segir það af og frá að salan á Senu sé í uppnámi vegna 750 milljóna króna kröfu 365 miðla á hendur Senu. Hann segir kröfuna ekki koma Senu við. 4.3.2009 19:03
Þriggja milljarða skuld Senu fer á flakk Tæplega þriggja milljarða skuld vegna afþreyingafyrirtækisins Senu fer á flakk við sölu á fyrirtækinu. Sena á meðal annars Skífuna og kvikmyndahús. 4.3.2009 18:27
Salan á Senu í uppnámi vegna 750 milljóna skuldar Sala Íslenskrar afþreyingar á Senu til Garðarshólma sem tilkynnt var um í dag fyrir 500 milljónir er í uppnámi samkvæmt heimildum Vísis. Ástæðan ku vera 750 milljóna króna krafa sem 365 miðlar eiga á hendur Senu. 4.3.2009 17:18
Eimskip með ítök í siglingum á Miðjarðarhafi Containerships í Finnlandi sem að hluta til er í eigu Eimskip hefur yfirtekið rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í Miðjarðarhafinu. 4.3.2009 16:03
FSA staðfestir viðræður um Icesave Fréttastofan hefur fengið það staðfest hjá breska fjármálaeftirlitinu (FSA) að viðræður áttu sér stað milli FSA og Landsbankans um að koma Icesave-reikningunum í breska lögsögu s.l. haust. 4.3.2009 15:40
Tvö eða fleiri bankaútibú í 11 landsbyggðarkjörnum Í ellefu landsbyggðarkjörnum fyrir utan höfuðborgarsvæðið er að finna tvö eða fleiri útibú á vegum stóru bankanna þriggja. Og í fjórum stærstu bæjum landsins eru allir bankarnir þrír með útibú. 4.3.2009 15:22
Kröfuhafar vilja Baug í gjaldþrot Gjaldþrotabeiðni Baugs hf, sem var tekinn fyrir klukkan eitt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, var frestað fram á mánudag. 4.3.2009 14:18
Sigurður Einarsson farin úr stjórn Storebrand Sigurður Einarsson er farin úr stjórn norska tryggingarrisans Storebrand. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 4.3.2009 14:14
Segir Actavis íhuga að búta félagið niður fyrir sölu Bloomberg fréttaveitan segist hafa heimildir fyrir því að eigendur Actavis íhugi nú að búta félagið niður og selja það í pörtum. Slíkt geti verið auðveldara en að selja félagið í heilu lagi. 4.3.2009 13:46
Sena seld til Garðarshólma Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur, að undangengu formlegu söluferli, gengið að tilboði Garðarshólma Rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu. 4.3.2009 12:30
Uppsveifla í kauphöllinni Nokkur uppsveifla hefur verið í kauphöllinni í morgun og hefur gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkað um 5,4%. Stendur hún núna í rúmlega 274 stigum. 4.3.2009 11:29
Stjórnendur Ísfélagsins reknir Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyjavar sagt upp störfum í gær. Á fréttavefnum Eyjar.net segir að ástæða uppsagnarinnar sé tap félagsins af afleiðusamningum við íslenska banka. 4.3.2009 11:03
Sparisjóðirnir með ánægðustu viðskiptavinina 10 ár í röð Viðskiptavinir sparisjóðanna eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum mælinga Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynnt var í morgun. 4.3.2009 10:45
Irish Life tapaði stórt á Íslandi en þarf ekki ríkisaðstoð Irish Life & Permanent, stærsti fasteignalánasjóður Írlands tapaði stórum fjárhæðum á hruni íslensku bankanna s.l. haust. Hinsvegar segist Irish Life ekki þurfa á ríkisaðstoða að halda eins og fjöldi annarra fjármálastofnanna og banka á Írlandi. 4.3.2009 10:29
Baugur óskar eftir áframhaldandi greiðslustöðvun Baugur Group hf mun óska eftir frekari greiðslustöðvun í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan eitt í dag. Félagið hefur verið í greiðslustöðun í þrjár vikur. 4.3.2009 10:17
Viðræður hefjast í dag um atvinnutækifæri í Kanada Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, tekur á móti Nancy Allan, atvinnu- og innflytjendamálaráðherra Manitoba í Kanada í dag og munu ráðherrarnir funda um möguleg atvinnutækifæri Íslendinga í Kanada. 4.3.2009 10:09
Krónubréfamiðlari: Loksins koma jákvæðar fréttir frá Íslandi Beat Siegenthaler sérfræðingur í nýmörkuðum hjá TD Securities og stærsti miðlari krónubréfa segir að loksins séu að koma jákvæðar fréttir frá Íslandi. Á hann þar við brottvikningu Davíðs Oddssonar úr Seðlabankanum og skipan hinnar nýju Peningamálanefndar. 4.3.2009 09:52
Kreditkortavelta heimila minnkaði um 18% í janúar Kreditkortavelta heimila í heild dróst saman um 18,0% í janúar í ár miðað við janúar í fyrra. Debetkortavelta dróst saman um 3,6% á sama tíma. 4.3.2009 09:39
Vöruskiptin i febrúar hagstæð um 6 milljarða Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir febrúar 2009 nam útflutningur rúmum 32,3 milljörðum króna og innflutningur rúmum 26,4 milljörðum króna. Vöruskiptin í janúar, voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 4.3.2009 09:31