Sparisjóðirnir með ánægðustu viðskiptavinina 10 ár í röð 4. mars 2009 10:45 Gísli Jafetsson, til vinstri, frá sparisjóðunum tekur við viðurkenningunni úr hendi Einars Þórs Bjarnasonar frá Stjórnvísi.
Viðskiptavinir sparisjóðanna eru ánægðustu viðskiptavinir íslenskra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum mælinga Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynnt var í morgun. Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem sparisjóðirnir hreppa þá viðurkenningu. Í tilkynningu um málið segir að vaxandi ánægja er með þjónustu sparisjóðanna á milli ára en að sama skapi hafa bankarnir fallið í áliti í kjölfar hruns þeirra í haust. Að Íslensku ánægjuvoginni standa Stjórnvísi, Samtök iðnaðarins og Capacent. Íslenska ánægjuvogin hefur gert mælingar á ánægju viðskiptavina fjármálafyrirtækja allt frá árinu 1999 eða í áratug. Sparisjóðirnir hafa ævinlega lent ofar bönkunum í þessari mælingu en munurinn ekki verið ýkja mikill á milli þeirra. Nú bregður svo við að ánægja með þjónustu sparisjóðanna eykst á milli áranna 2007 og 2008 en ánægja með þjónustu bankanna þriggja fellur verulega í kjölfar hruns þeirra sl. haust. Að sögn Gísla Jafetssonar hjá Sambandi íslenskra sparisjóða er þetta afar kærkomin viðurkenning á því starfi sem unnið er hjá sparisjóðunum í landinu. „Mér hefur alltaf verið ljóst að fólk kann vel að meta þá góðu og persónulegu þjónustu sem starfsfólk sparisjóðanna veitir. Okkar viðskiptamenn eru ánægðir með að sparisjóðirnir hafa lagt áherslu á að sinna fyrst og fremst einstaklingum og fyrirtækjum á heimamarkaði," segir Gísli. Í kjölfar þessarar viðurkenningar munu sparisjóðirnir á Íslandi standa að kynningarátaki næstu vikur þar sem athygli verður vakin á þeim gildum sem sparisjóðirnir standa fyrir og hlutverki sparisjóðanna í íslensku samfélagi.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira