Fleiri fréttir

Erlendir bankar vilja breyta skuldum í hlutafé hjá SPB

Erlendir bankar sem eru lánadrottnar Sparisjóðabankans (SPB) hafa sýnt því töluverðan áhuga að skuldum þeirra verði að einhverju marki breytt í hlutafé í SPB. Nú er að störfum sérstakur stýrihópur á vegum erlendu bankanna þar sem þetta er m.a. til umræðu.

Kauphöll breytir viðmiðum fyrir viðskiptarofa

Viðmiðum fyrir viðskiptarofa í kauphöllinni hefur frá og með 2. desember 2008 verið breytt úr 10% í 15% fyrir hlutabréf félaga sem flokkast undir smáhluti og hluti sem lítill seljanleiki er með.

Geir Haarde leitaði til Rússa um lán í byrjun ágúst

Samkvæmt frásögn í Fortune, sem birt er á vefsíðu CNNMoney.com, leitaði Geir Haarde til Rússa um lán í byrjun ágúst. Aðstoðarmaður Geirs fór þá til viðræðna við rússneska sendiherrann. Skilaboðin voru einföld: Bjargið okkur.

Noregsbanki fjallar um Ísland í stöðugleikaskýrslu sinni

Seðlabanki Noregs, Norges Bank, fjallar m.a. um Ísland í fjármálastöðugleikaskýrslu sinni sem komin er út fyrir þetta ár. Bankinn nefnir þar vandamál vegna hinna Norðurlandanna og telur Financial Times augljóst að þar sé átt við Ísland.

Tvöfaldur gjaldeyrismarkaður er nú staðreynd

Tvöfaldur gjaldeyrismarkaður er nú staðreynd því samhliða gjaldeyrisuppboðum Seðlabankans hefur myndast aðskilinn markaður m.a. í miðlarakerfi Reuters. Munur á gengi krónunnar á þessum tveimur mörkuðum er gífurlegur.

Erlendir kröfuhafar fái hlutafé í nýju bönkunum

Geir Haarde forsætisráðherra segir að eitt af þeim atriðum sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun var að erlendir kröfuhafar gæti breytt kröfum sínum í hlutafé í nýju bönkunum þremur.

Kaupþing vildi fá íslenska greiðslustöðvun viðurkennda

Kaupþing banki hf. lagði þann 30. nóvember 2008 inn beiðni samkvæmt 15. kafla bandarísku gjaldþrotalaganna, í þeim tilgangi að fá greiðslustöðvun bankans, sem veitt var af Héraðsdómi Reykjavíkur, viðurkennda í Bandaríkjunum.

Marel hækkar mest í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 1,83 prósent, í stoðtækjaframleiðandanum Össur um 1,22 prósent og í Bakkavör 0,88 prósent. Þetta eru einu hækkanir dagsins.

Fasteignamarkaðurinn í Osló hefur hrunið í haust

Það er víðar en á Íslandi þar sem frost ríkir á fasteignamarkaðnum. Í Osló í Noregi hefur fasteignamarkaðurinn hrunið í haust. Sala á eignum hefur minnkað um 33% frá því í október og um 60% frá því á sama tíma í fyrra.

Arnold lýsir yfir efnahagslegu neyðarástandi í Kaliforníu

Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu hefur lýst yfir efnahagslegu neyðarástandi í Kaliforníu. Kassinn er tómur og skuldirnar gríðarlegar. Arnold hefur af þeim sökum kallað stjórnmálamenn ríkisins saman á sérstakan neyðarfund.

Kaupþing óskar eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum

Gamla Kaupþing hefur óskað eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum. Þingfesti bankinn svokallaða Chapter 15 gjaldþrotabeiðni þess efnis við gjaldþrotadómstólinn í Southern District í New York síðdegis í gær.

Aston Martin dregur saman seglin

Ekki er nóg með að HSBC-bankinn hafi tilkynnt um uppsagnir 500 breskra starfsmanna í gær heldur sér nú framleiðandi Aston Martin-sportbílanna nafntoguðu fram á að segja upp tæpum þriðjungi allra starfsmanna sinna í Bretlandi en þar starfa nú 1.800 manns.

Krónan yfir 250 stig í fyrsta sinn

Gengi krónunnar veiktist um fjögur prósent í gær. Ný gjaldeyrislög eru sögð draga úr líkum á hraðri og mikilli lækkun. Viðskiptin eru öll í Seðlabankanum.

Viðskiptaráðuneytið skoðar gjaldfellingu erlendra lána hjá SPRON

Líkt og Vísir hefur greint frá hefur Spron verið að gjaldfella erlend lán hjá stærstu viðskiptavinum bankans. Margir viðskiptavinir eru afar ósáttir við þessar aðgerðir og telur einn þeirra að verið sé að mismuna fyrirtækjum í landinu, eftir því hvar þau séu í viðskiptum. Forstjóri Spron segir bankann vera í þeirri stöðu að hafa ekki aðgang að erlendu fé og því neyðist hann til þess að umbreyta erlendum lánum í íslenskar krónur. Hann segist ekki hræddur við að missa stærstu viðskiptavini bankans.

Yfirlýsing vegna fréttaflutnings Stöðvar 2

Vegna fréttar um málefni Stíms ehf og gamla Glitnis banka hf. skal tekið fram að ekki er rétt það sem fram kom að Stím ehf. hafi keypt 0.87% í Glitni banka hf. fimm sinnum heldur er þarna um misskilningi fréttamanns að ræða sem var að skoða opinbera hluthafalista yfir 20 stærstu hluthafa bankans.

Talsvert fall á bandarískum hlutabréfamörkuðum

Snörp lækkun hefur verið á hlutabréfum frá því viðskipti hófust í Bandaríkjunum í dag. Helsta ástæðan fyrir fallinu er staðfesting bandarísku hagstofunnar á því að kreppa hafi byrjað í Vesturheimi fyrir ári og standi enn yfir.

Kauphöllin tekur upp nýja vísitölu um áramótin

Kauphöllin mun frá og með 1. janúar 2009 hefja útreikning á nýrri hlutabréfavísitölu, OMXI6. Vísitalan mun innihalda þau sex félög sem tekin eru til viðskipta í kauphöllinni og hafa hvað mesta veltu og seljanleika.

Blóðug byrjun á Wall Street

Það var blóðrauð byrjun á mörkuðunum á Wall Street í dag. Dow Jones vísitalan lækkaði um 3,3% á fyrsta korterinu, Nasdaq um 3,4% og S&P um 3,5%.

Kauphöllin fundar með SÍ um færeysku félögin

Þórður Friðjónsson forstjóri kauphallarinnar segir að óskað verði eftir fundi með Seðlabankanum (SÍ) í vikunni vegna þess vanda sem færeysku félögin eru komin í sökum nýju gjaldeyrisreglnanna.

Vogunarsjóður tekur skortstöðu gegn Bretlandi

Hugh Hendry forstjóri vogunnarsjóðsins Ecletica Asset Management ætlar að taka skortstöðu gegn Bretlandi. Hendry ætlar að veðja á að það verði verðhjöðnun í Bretlandi, sem er andstæða verðbólgu, næstu 12 mánuði.

Nova eins árs í dag

Samskiptafyrirtækið Nova er eins árs í dag. ,,Óhætt er að segja að samkeppni á símamarkaði hafi sjaldan eða aldrei verið fjörugri," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Bayern LB segir um sex þúsund manns

Þýski bankinn Bayern LB, sem hefur farið illa út úr fjármálakreppunni og meðal annars tapað á viðskiptum við íslenska banka, tilkynnti í dag um fyrirhugaðar uppsagnir á tæplega 6000 starfsmönnum. Tæplega tuttugu þúsund manns vinna hjá bankanum um allan heim og því verður um fjórða hverjum starfsmanni sagt upp.

Erlendir fjárfestar með 60 milljarða frosna í desember

Erlendir fjárfestar munu frjósa inni með rúmlega 60 milljarðar kr. nú í desember í kjölfar hinna nýju gjaldeyrisreglna Seðlabankans. Talsvert framboð er í farvatninu af nýjum ríkisbréfum á næstu dögum. Tilgangur þess er fyrst og fremst að mæta eftirspurn vegna gjalddaga ríkisbréfa í desember sem eru að miklu leyti í erlendri eigu.

Carnegie kærir sviptinguna á starfsleyfi bankans

Stjórn móðurfélags Carnegie bankans í Svíþjóð hefur ákveðið að kæra ákvörðun sænska fjármálaeftirlitsins um að svipta bankann starfsleyfi sínu. Verður málið sent fjármáladómstól landsins, Länsrätten, fyrir áramót.

Sviss finnur fyrir sama sársaukanum og Ísland

Sviss finnur fyrir sama sársaukanum og Ísland þessa daganna. Að vísu hefur þessi háborg fjármála heimsins ekki hrunið en tapið af bankastarfsemi landsins er gríðarlegt og fer versnandi.

Kauphallarmínus á mánudegi

Gengi hlutabréfa í Atorku Group féllu um 32,58 prósent í einum kaupum upp á rúmar 401 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins. Samkvæmt uppgjöri félagsins á föstudag tapaði Atorka 2,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi.

Ódýrt dósaöl flæðir yfir Danmörku frá Þýskalandi

Ein af afleiðingum kreppunnar í Danmörku er að ódýrt dósaöl flæðir nú yfir landamæri landsins frá Þýskalandi. Hefur þetta komið verulega við kaunin á kaupmönnum í Danmörku sem krefjast nú aðgerða af hendi stjórnvalda.

Ryanair skoðar aftur yfirtöku á Aer Lingus

Stjórnendur írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair áforma að leggja fram tilboð í landa þeirra, Aer Lingus. Verði tilboðið að veruleika er þetta í annað sinn á tveimur árum sem Ryanair reynir við Aer Lingus en það lagði fram yfirtökutilboð í flugfélagið í kringum áramótin 2006.

Kröfuhafar Kaupþings í London funda á Café Royal

Kröfuhafar í þrotabú Singer & Friedlander (S&F), banka Kaupþings í Bretlandi, munu funda í dag á Café Royal í London um hve miklu er hægt að bjarga úr lánasafni S&F. Eins og fram hefur komið á visir.is er stór hluti safnsins lán til kaupa á snekkjum og einkaþotum.

Athyglin á gjaldþroti Woolworths eykur söluna um 20%

Athyglin sem gjaldþrot Woolworths hefur vakið í Bretlandi hefur leitt til þess að viðskiptavinir flykkjast í búðir verslunarkeðjunnar. Frá því að Deloitte tók við stöðu skiptastjóra í Woolworths hefur salan aukist um 20%.

Hlutabréf lækka á Asíumörkuðum

Lækkun varð á verði hlutabréfa á Asíumörkuðum í morgun og munaði þar mest um bréf fyrirtækja í byggingariðnaði og bílaframleiðendur.

Mikið gert úr þætti Davíðs

Fjallað er um hrun íslenska fjármálakerfisins í nýjasta hefti bandaríska viðskiptatímaritsins Fortune. Blaðið gerir mikið úr þætti Davíðs Oddssonar í hruninu og lýsir honum sem gríðarlegum örlagavaldi í íslenskri samtímasögu.

Hindruðu sölu samheitalyfja

Lyfjakaupendur í Evrópu þurftu að greiða um þremur milljörðum evra, andvirði yfir 500 milljarða króna, meira fyrir lyf á árabilinu 2000-2007 vegna þess að lyfjafyrirtæki stóðu vísvitandi í vegi fyrir sölu ódýrari samheitalyfja. Að þessari niðurstöðu hafa samkeppnisyfirvöld ESB komist.

Sjá næstu 50 fréttir