Viðskipti erlent

Ódýrt dósaöl flæðir yfir Danmörku frá Þýskalandi

Ein af afleiðingum kreppunnar í Danmörku er að ódýrt dósaöl flæðir nú yfir landamæri landsins frá Þýskalandi. Hefur þetta komið verulega við kaunin á kaupmönnum í Danmörku sem krefjast nú aðgerða af hendi stjórnvalda.

Samkvæmt frétt um málið í Börsen hefur aukningin í landamærasölunni gert það að verkum að salan á ölinu innanlands hefur minnkað um 13% á undanförnum mánuðum. Það eru einkum kaupmenn á Suður-Jótlandi, Fjóni og suðurhluta Sjálands sem verða fyrir barðinu á þessu.

Samkvæmt lögum Evrópusambandsins getur hver einstaklingur nú tekið með sér löglega 36 kassa af dósaöli á hverjum degi yfir landamærin frá Þýskalandi til Danmerkur. Og þegar kassinn kostar nær þrefalt minna á tilboðum í stórmörkuðunum við landamærin en út úr búð í Kaupmannahöfn sést að eftir töluverðu getur verið að slægjast.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×