Viðskipti erlent

Noregsbanki fjallar um Ísland í stöðugleikaskýrslu sinni

Seðlabanki Noregs, Norges Bank, fjallar m.a. um Ísland í fjármálastöðugleikaskýrslu sinni sem komin er út fyrir þetta ár. Bankinn nefnir þar vandamál vegna hinna Norðurlandanna og telur Financial Times (FT) augljóst að þar sé átt við Ísland.

Í umfjöllun FT segir að vandamálin sem Norges Bank er að ræða um tengist hinum langvinnu samningaviðræðum sem áttu sér stað vegna björgunarpakka til Íslands.

Niðurstaða bankans er sú að..."nauðsynlegt er að styrkja samvinnu milli stjórnvalda á Norðurlöndnum til að koma í vega fyrir áföll í framtíðinni." eins og það er orðað.

Fram kemur í skýrslunni að fjármálakerfi og efnahagslíf Noregs sé nú fyrst að finna alvarlega fyrir áhrifum fjármálakreppunnar í heiminum. Fyrstu stig hennar hafi ekki komið við kaunin á Norðmönnum.

Bankinn hefur lækkað stýrivexti sína um eitt prósentustig og jafnframt hefur hann lagt hart að bönkum landsins að draga ekki úr lánveitingum sínum. Slíkt muni aðeins dýpka kreppuna og að lokum draga úr tekjumöguleikum bankana.

Í niðurstöðum skýrslunnar segir að þrátt fyrir áföll tengd kreppunni sé fjármálakerfi Noregs traust.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×