Viðskipti erlent

Hlutabréf lækka á Asíumörkuðum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lækkun varð á verði hlutabréfa á Asíumörkuðum í morgun og munaði þar mest um bréf fyrirtækja í byggingariðnaði og bílaframleiðendur.

Í Sydney í Ástralíu lækkuðu bréf námurisans BHP Billington um 3,6 prósentustig og japanska Nikkei-vísitalan féll um eitt og hálft prósentustig. Financial Times hefur það eftir fjármálaráðherra Japans að fyrirhuguð aðstoð japanska ríkisins við efnahagslífið muni ekki verða sú vítamínsprauta sem vonast var eftir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×