Viðskipti erlent

Ein mesta lækkun Dow Jones frá upphafi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Hlutabréf snarlækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun í kjölfar einnar mestu lækkunar í manna minnum á Wall Street í gær.

Þar lækkaði Dow Jones-vísitalan um tæplega átta prósentustig eða 680 stig sem er fjórða mesta lækkun hennar í stigum talið á einum degi frá upphafi. Í Nasdaq-kauphöllinni lækkuðu hlutabréf um níu prósentustig. Lækkunina má að hluta til rekja til spár greiningaraðila um að bandarískur efnahagur sé kominn í kreppu sem ekki sjái fyrir endann á í bráð. Verð á olíu og gulli lækkaði einnig verulega í gær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×