Tvöfaldur gjaldeyrismarkaður er nú staðreynd 2. desember 2008 12:10
Tvöfaldur gjaldeyrismarkaður er nú staðreynd því samhliða gjaldeyrisuppboðum Seðlabankans hefur myndast aðskilinn markaður m.a. í miðlarakerfi Reuters. Munur á gengi krónunnar á þessum tveimur mörkuðum er gífurlegur. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að undanfarið hefur verulega dregið í sundur á ný með gengi krónunnar hérlendis og því gengi sem ríkir á erlendum mörkuðum. Evran kostar nú allt að 300 kr. meðal erlendra miðlara en 187 kr. hér á landi miðað við niðurstöðu uppboðs Seðlabankans í gær. Hins vegar er líklegt að erlendur markaður með krónur lognist að miklu leyti út af nú, þar sem Íslendingar mega ekki lengur eiga hrein gjaldeyrisviðskipti utan landsteinanna samkvæmt lögum og reglum Seðlabankans um gjaldeyrismál. Eftir hrun bankakerfisins í októberbyrjun dró mjög sundur með gengi krónunnar á erlendum mörkuðum og því gengi sem Seðlabankinn skráir. Frá 15. október hefur skráða gengið hins vegar ráðist í daglegu gjaldeyrisuppboði bankans. Síðan þá hefur gengi krónu gagnvart evru lækkað jafnt og þétt, og er það nú u.þ.b. 20% lægra en var er uppboðin hófu göngu sína. Evran hefur þannig hækkað úr 150 kr. í 187 kr. á þessum tíma. Samhliða myndaðist aðskilinn markaður erlendis, m.a. í miðlarakerfi Reuters. Í kerfi Reuters var gengi evru gagnvart krónu í upphafi markaðarins um miðjan október u.þ.b. 270 kr. en var komið niður undir 200 kr. í upphafi nóvembermánaðar. Síðan hefur verð á evrum hækkað mikið á þessum markaði og voru viðskipti í gær á genginu 290 krónur fyrir hverja evru. Greining segir að fróðlegt verði að fylgjast með þróun gengis krónu á erlendum mörkuðum í kjölfarið á þeim reglum sem Seðlabankinn setti síðastliðinn föstudag. Samkvæmt þeim verða íslensk fyrirtæki að skila gjaldeyristekjum til íslenskra fjármálastofnana, en töluverð brögð virðast hafa verið að sölu Íslendinga á gjaldeyri erlendis fyrir íslenskar krónur. Er það skiljanlegt í ljósi þess hversu miklu fleiri krónur hafa fengist fyrir evrur erlendis en í uppboðum Seðlabankans. Hins vegar mun framboð á krónum erlendis nú líklega þorna upp að mestu leyti, og líklegt að gengi krónu á erlendum mörkuðum færist nær því gengi sem gilda mun hér á landi. „Mikilvægt er að tvöfaldur markaður með krónur festist ekki í sessi, enda grefur það undan trúverðugleika krónunnar og hindrar að áætlun íslenskra yfirvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðugleika og síðar styrkingu gjaldmiðilsins gangi eftir," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira