Viðskipti innlent

Spá nánast engum hagvexti á þessu og næsta ári

Ingólfur Bender er forstöðumaður greiningardeildar Glitnis.
Ingólfur Bender er forstöðumaður greiningardeildar Glitnis.

Greinginardeild Glitnis segir í nýrri þjóðhagsspá sinni að tveggja ára stöðnunarskeið í íslensku efnahagslífi sé hafið og á því tímabili muni hagkerfið ná jafnvægi eftir hraðan hagvöxt og þenslu síðustu ára. Því er spáð að hagvöxtur verði nánast enginn á þessu og næsta ári samhliða því sem verðbólga muni hjaðna og viðskiptahallinn minnka.

Í spánni segir enn fremur að áhrif lánsfjárkreppunnar hafi verið víðtæk og langvinn. „Hægt hefur á hagvexti á heimsvísu af þeim sökum. Þá er olíu- og hrávöruverð afar hátt í sögulegu samhengi. Í ofanálag er hagkerfið að takast á við endalok umfangsmikilla stóriðjuframkvæmda og niðurskurð aflaheimilda. Það er því margt sem dregur niður hagvöxtinn hér á landi um þessar mundir,“ segir greiningardeild Glitnis.

Enn fremur er bent á að innlend eftirspurn dragist saman en á móti batni vöruskiptahallinn. Gerir bankinn ráð fyrir að viðskiptahalli verði ríflega 14 prósent af landsframleiðslu á þessu ári en minnki í tæp 10 prósent strax á næsta ári. Hallinn verði það sem má kalla sjálfbær, 5-6 prósent, við upphaf nýs áratugar.

Telur verðbólguskot verða skammvinnt

Þá telur greiningardeildin að núverandi verðbólguskot verði skammvinnt og að hratt muni draga úr verðbólgu þegar líður á þetta ár og í upphafi ársins 2009. Enn fremur er gert ráð fyrir að 1,6 prósenta atvinnuleysi verði á árinu og fjögur prósent í upphafi nýs áratugar. „Minnkandi eftirspurn á vinnumarkaði mun að okkar mati draga úr launaskriði, og spáum við öllu hófsamari hækkun launa á spátímanum en verið hefur undanfarin ár," segir greiningardeildin.

Hún gerir enn fremur ráð fyrir að það fari að rofa til á mörkuðum með haustinu og að gengishækkun krónu fylgi í kjölfarið. Gengisvísitalan verði 142 yfir árið og 128 á því næsta. Þá telur bankinn að fjögurra ára hækkunarferli stýrivaxta sé lokið. „Við spáum því að Seðlabankinn lækki stýrivexti í september, og að í árslok verði vextir 14,75%. Við reiknum með að vextir verði lækkaðir hratt á næsta ári eftir því sem hægist um í efnahagslífinu, einkaneysla dregst saman og bati verður á utanríkisviðskiptum. Þá teljum við að vextir verði 8% í lok næsta árs," segir Glitnir.

Hagvöxtur glæðist árin 2010 og 2011

Greiningardeildin segir svo að hagvöxtur muni glæðast talsvert á árunum 2010 og 2011. Þá leggist á eitt vöxtur innlendrar eftirspurnar og hagfelld utanríkisviðskipti. Reikna megi með því að lánsfjárkrísan verði þá frá og hagvöxtur hraðari á heimsvísu. Býst greiningardeildin við nærri fjögurra prósenta hagvexti árið 2010 og nærri fimm prósent árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×