Fleiri fréttir

Enginn viðskipti með bréf Icelandic Group í dag

Ellefu félög hafa hækkað í Kauphöll Íslands það sem af er degi. Spron hefur hækkað mest allra félaga eða um 3,62% og er gengi félagsins nú 4,86. Flaga hefur lækkað mest eða um 1,25%.

Icelandic Group skráð af markaði

Stjórn Icelandic Group hyggst leggja það til á aðalfundi félagsins þann 18. apríl að stjórninni verði heimilað að óska eftir því að félagið verið afskráð úr Kauphöll Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fyndni á nýjum vef

Fjárfestar og annað áhugafólk um hreyfingar á hlutabréfamarkaði hafa oftar en ekki bölvað óþjálum og ógagnsæjum vef Kauphallar Íslands. Steininn tók þó fyrst úr þegar Kauphöllin komst í eigu OMX. Núna hafa enn verið gerðar breytingar á vefnum með samruna OMX og Nasdaq og er sumt til bóta, en annað í takt við fyrri tíð, eins og gengur.

Greining Landsbankans spáir 10-13% verðbólgu

Greining Landsbankans spáir því að verðbólga fari hæst í ríflega 10% í sumar, að því gefnu að veiking krónunnar gangi að hluta til baka. Haldist krónan áfram veik má reikna með að verðbólgan fari í 13%.

Skammgóður vermir

Margir urðu til að nýta sér „kostaboð" og fylltu á tanka bíla sinna á sérkjörum sem í boði voru einn dag um miðja vikuna. Afsláttur af lítraverði náði allt að 25 krónum. Víða voru biðraðir á bensínstöðvum og truflaðist jafnvel umferð í næsta nágrenni.

Aftur morgungrænn markaður

Markaðurinn opnaði aftur í plús í morgun og hækkaði úrvalsvísitalan um 0,95% í fyrstu viðskiptum dagsins. Stendur hún nú í 5.306 stigum.

Icelandair Cargo hættir við kaup á fraktflugvélum

Dótturfyrirtæki Icelandair Group, Icelandair Cargo og Icelease, hafa fallið frá samningaviðræðum við Avion Aircraft Trading um leigu og kaup á fjórum Airbus A330-200 fraktflugvélum. Viljayfirlýsing um málið var gerð í maí á síðasta ári.

Markaðurinn endaði aftur í plús

Markaðurinn endaði aftur í plús í dag eftir ágætan dag í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1.37% og stendur í 5.256 stigum.

Norðmenn að drukkna í olíupeningum

Talan 220.000 milljarðar króna er sennilega ofvaxin skilningi flestra. Þetta er sú upphæð sem olíusjóður Norðmanna mun standa í árið 2030 ef svo heldur sem horfir með þróun heimsmarkaðsverðs á olíu.

Engar fjöldauppsagnir þótt fólki fækki

Svali Björgvinsson, framkvæmdastjóri starfsmannasvið Kaupþings, segir að bankinn hafi ekki gripið til neinna fjöldauppsagna og ekki sé búist við að farið verði í svoleiðis aðgerðir.

Fyrsti áfanginn í Helguvík kostar 60-70 milljarða

Áætlað er að heildar kostnaður við fyrsta áfanga álvers Norðuráls í Helguvík verði 60-70 milljarðar íslenskra króna. Þar af er ríflega helmingur beinn erlendur kostnaður vegna kaupa á framleiðslubúnaði og tækni. Um 15% koma til vegna kaupa á byggingarefni og búnaði.

Lánshæfishofur Straums stöðugar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch staðfesti í gær lánshæfiseinkunnir Staums. Lánshæfiseinkunn fjárfestingarbankans er BBB- og langtímahorfur stöðugar. Horfur Straums eru þær einu af íslensku bönkunum sem eru stöðugar, líkt og greiningardeild Glitnis bendir á.

Exista leiðir hækkun dagsins

Gengi hlutabréfa í fjármálaþjónustu fyrirtækinu Existu rauk upp um 2,7 prósent á fyrstu mínútunum eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgdu Glitnir, SPRON, Kaupþing, FL Group og Straumur, sem hækkaði um 0,42 prósent.

Moss Bros fer úr hagnaði í tap

Breska herrafataverslunin Moss Bros tapaði 1,4 milljónum punda, jafnvirði rúmra 207 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Baugur hefur gert yfirtökutilboð í verslunina og standa viðræður enn yfir. Gengi bréfa í félaginu hefur hækkað um ellefu prósent síðan tilboðið var lagt fram.

Krónan styrkist lítillega

Gengi krónunnar hefur styrkst lítillega, um 0,4 prósent,á þeim stundarfjórðungi sem liðinn er síðan gjaldeyrisviðskipti hófust á millibankamarkaði í dag.

Norrænir seðlabankar gætu þurft að bjarga íslensku bönkunum

Finnska viðskiptablaðið Kauppalehti greinir frá því í dag að Seðlabanki Finnlands gæti þurft að hlaupa undir bagga með íslenskum bönkum lendi þeir í miklum ógöngum. Samkvæmt blaðinu gerðu norrænu seðlabankarnir samkomulag fyrir fjórum árum síðan sem miðaði að því að koma á stöðugleika í bankakerfi svæðisins.

Askar Capital með hjáleið í stærri erlend lán

Askar Capital hafa milligöngu um lán til sveitarfélaga og fyrirtækja frá erlendum bönkum. Bankinn varð Hafnarfjarðarbæ úti um erlent lán með 75 punkta skuldatryggingarálagi, sem er margfalt minna álag en á skuldabréf bæði ríkis og stóru bankanna.

Funduðu í febrúar

Bankastjórn Seðlabankans ræddi við fulltrúa bankastjórnar evrópska seðlabankans, þegar um miðjan febrúar. Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson, bankastjórar Seðlabankans, hittu þá að máli Jürgen Stark, sem situr í bankastjórn evrópska seðlabankans, í húsakynnum Seðlabankans

Jón Bjarki í lok dags

Jón Bjarki Bendtsson hjá Greiningu Glitnis var gestur Björgvins Guðmundssonar í viðtalsþættinum Í lok dags í dag. Hægt er að sjá viðtalið með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan.

Jón Bjarki í lok dags

Jón Bjarki Bendtsson hjá greiningardeild Glitnis var gestur Björgvins Guðmundssonar í lok dags. Hægt er að horfa á viðtalið hér.

Leifur Welding selur sinn hlut í Saltfélaginu

Einn stofnanda Saltfélagsins Leifur Welding hefur selt sinn hlut í félaginu til Pennans. Eftir þessar breytingar er Saltfélagið að fullu í eigu Pennans. Saltfélagið er húsgagna og hönnunarverslun við Grandagarð 2. Þar rekur einnig Te & Kaffi kaffihús. www.saltfelagid.is

Rannsókn FME verður flýtt eins og kostur er

Rannsókn Fjármálaeftirlitsins á því hvort einhverjir aðilar hafi reynt að dreifa neikvæðum orðrómi um íslenska markaðinn með skipulögðu hætti verður flýtt eins og kostur er.

Ekki fleiri uppsagnir í fjármálageiranum en áður

„Frá áramótum eru uppsagnir hjá þeim sem ekki hafa fengið fastráðningu um 100 í öllu kerfinu,“ segir Friðbert Traustason formaður Samtaka starfsmanna Fjármálafyrirtækja. Mikil umræða hefur verið um uppsagnir í fjármálageiranum undanfarið í kjölfar ástandsins í geiranum.

Geir Haarde talaði markaðinn upp í góða stöðu

Allt bendir til að Geir Haarde forsætisráðherra hafi tekist að styrkja gengi krónunnar og tala hlutabréfamarkaðinn upp í góða stöðu í dag. Frá því að viðtal við hann birtist í Financial Times í morgun hefur gengi krónunnar styrkst um rúm 3 prósent og úrvalsvísitalan hefur hækkað um 4 prósent.

BBC fjallar um efnahagsárásirnar á Ísland

BBC birtir í dag frétt undir fyrirsögninni "Efnahagur Íslands undir árás" . Þar er fjallað um hugsanlegar mótaðgerðir Íslendinga á hlutabréfa- og gjaldeyrismarkaði gegn vogunarsjóðum sem sagðir eru í árás gegn fjármálamarkaðinum.

Askar Capital sáu um lánið fyrir Hafnarfjörð

Askar Capital hefur lokið lántöku á 25 milljónum evra fyrir Hafnarfjarðarbæ. Bærinn óskaði eftir umsjón fyrirtækisins með lántöku til fjármögnunar á framkvæmdum bæjarins. Um er að ræða 25 milljón evra lán að jafnvirði um 3 milljarðar kr.

Miklar hækkanir á markaðinum

Miklar hækkanir hafa verið á nokkrum félögum á markaðinum frá því að kauphöllin opnaði í morgun. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,75 prósent og stendur nú í 5.125 stigum.

Krónan styrkist um tæp 2,5%

Krónan hefur styrkst um tæp 2,5% frá því að gjaldeyrismarkaðurinn opnaði í morgun. Gengisvísitalan er komin niður í 150,7 stig.

Ágæt byrjun nýjum ársfjórðungi

Fyrsti ársfjórðungur byrjað vel á flestum fjármálamörkuðum í gær, nema hér. Þannig rauk Nikkei-vísitalan upp um 4,21 prósent við lokun markaða í Asíu í morgun auk þess sem vísitölur á meginlandi Evrópu hafa sveiflast beggja vegna núllsins.

Bankaráðsmaður Seðlabankans segir Ísland ekki að bráðna

"Í núverandi fjármálakreppu er minni ástæða til að hafa áhyggjur af Íslandi en mörgum öðrum stöðum. Ísland er ekki að bráðna niður," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson einn af bankaráðsmönnum Seðlabankans í grein sem birt er eftir hann í blaðinu Wall Street Journal í dag.

Spila sókn en ekki vörn

Milestone hyggst færa allar íslenskar eigur félagsins undir sænska fjármálafyrirtækið Invik. Í viðtali við Óla Kristján Ármannsson segir Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, búið að marka skýra stefnu til framtíðar með sókn inn á norrænan fjármálamarkað. Innan tveggja ára er stefnt að skráningu Invik í OMX Nordic Exchange-kauphöllina í Stokkhólmi.

Sjá næstu 50 fréttir