Fyrsti áfanginn í Helguvík kostar 60-70 milljarða 3. apríl 2008 11:22 Helguvík MYND/Oddgeir Karlsson
Áætlað er að heildar kostnaður við fyrsta áfanga álvers Norðuráls í Helguvík verði 60-70 milljarðar íslenskra króna. Þar af er ríflega helmingur beinn erlendur kostnaður vegna kaupa á framleiðslubúnaði og tækni. Um 15% koma til vegna kaupa á byggingarefni og búnaði. Áætlað er að vinnulaun við framkvæmdir verði um 15% kostnaðar eða nærri 10 milljörðum á þriggja ára tímabili. Kostnaður vegna hönnunar, framkvæmdastýringar og eftirlits er áætlaður 6-7 milljarðar. Sá þáttur verður að langmestu leyti í höndum íslenskra aðila og mun verkefnið því skila íslenskum verkfræðistofum, arkitektum og fleiri þekkingarfyrirtækum verulegum tekjum á næstu árum. Annar kostnaður, s.s vegna flutninga, trygginga samningagerðar ofl. er áætlaður um 6 milljarðar. Áformað er að hefja álframleiðslu í Helguvík síðla árs 2010 og að framleiðslugeta álversins verði þá um 150.000 tonn á ári. Að mati forráðamanna Norðuráls mun uppbygging álversins í Helguvík ekki valda óæskilegri þenslu í samfélaginu og fjarri lagi sé að tala um hættu á kollsteypu. Efnahagsleg áhrif verði lítil á þessu ári og þeirra fari ekki að gæta að ráði fyrr en 2008 og 2009. Gert er ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna verkefnisins í ár verði 12-15 milljarðar íslenska króna. Langstærsti hlutinn kemur til vegna kostnaðar erlendis við kaup á búnaði með langan afhendingartíma. Ágúst Hafberg, framkvæmdstjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, bendir á að um erlenda fjárfestingu er að ræða með tilheyrandi innstreymi gjaldeyris. „Til skemmri tíma eru þetta fyrst og fremst jákvæð skilaboð fyrir hagkerfið að fá erlenda fjárfestingu og gjaldeyri inn. Rólega til að byrja með og út þetta ár en svo af nokkrum krafti. Til lengri tíma kemur þetta verkefni á afar heppilegum tíma inn í hagkerfið eins og ýmsir hagfræðingar hafa nefnt undanfarið," segir Ágúst.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira