Seðlabanki Íslands segir samkomulagið í fullu gildi 3. apríl 2008 11:04 Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans.
Seðlabanki Íslands segir samkomulagið um viðbrögð við fjármálaáföllum milli seðlabanka Norðurlandanna í fullu gildi. Samkomulagið megi finna á vefsíðum allra norrænu seðlabankanna ásamt þeirri fréttatilkynningu sem var gefin út á sínum tíma. Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans, segir að misskilja megi umfjöllun danska blaðsins Börsen í morgun. Lágar lánalínur sem voru í gildi milli bankanna voru lagðar af þegar samkomulagið var undirritað. Tryggvi Pálsson segir í samtali við Vísi að tengslahópur sé starfandi meðal seðlabankanna samkvæmt samkomulaginu og hittist hann reglulega. Sá hópur breytist í viðbragðshóp ef til fjármálaáfalls kemur. Slíkt hefur ekki gerst og það sé sennilega það sem Niels Christian Beiler skrifstofustjóri hjá danska seðlabankanum eigi við í Börsen þegar hann segir að engar kringumstæður séu til staðar sem reyni á samkomulagið. Umrætt samkomulag var undirritað í Stykkishólmi í júní 2003. Í tilkynningu sem send var út í kjölfar undirritunarinnar segir að „samkomulagið á við þegar alvarleg vandamál steðja að banka með höfuðstöðvar í einu Norðurlandanna og jafnframt með starfsstöð í öðru norrænu ríki." Þetta á við alla stóru bankana þrjá hér á landi. „Samkomulagið er í fullu gildi en það hefur ekki reynt á það í fjármálaáfalli frá því það var gert á sínum tíma," segir Tryggvi Pálsson.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira