Fleiri fréttir

Skapandi stjórnmál

Ef marka má upphafið ætlar Nicolas Sarkozy að reynast margbrotnari forseti en margir töldu. Það hefur komið mörgum á óvart að hann skipaði Bernard Kouchner sem utanríkisráðherra. Kouchner er stofnandi samtakanna Læknar án landamæra, nýtur mikillar virðingar, en er til vinstri í stjórnmálum...

Sæt er lykt...

Ein hressilegasta viðbótin við þingheim er klárlega framsóknarmaðurinn og orðhákurinn Bjarni Harðarson. Daginn eftir kosningar mætti þessi „óforbetranlegi fornaldardýrkandi“, eins og Bjarni lýsir sér, í myndver hjá Agli Helgasyni.

Til helvítis með Palestínu!

Í ár verða 40 ár liðin síðan Ísraelsher hertók Vesturbakkann og Gaza og lagði þar með undir sig síðustu svæði Palestínu. Þótt lítill árangur hafi náðst í frelsisbaráttu Palestínumanna síðan þá hafa íbúar herteknu svæðanna þó náð þeim rétti að fá að kjósa fulltrúa sína í lýðræðislegum kosningum. Eða svo leit að minnsta kosti út fyrir, þar til íbúarnir kusu annað en ríkisstjórnir Ísraels og ýmissa Vesturlanda, þar á meðal Íslands, töldu ákjósanlegt.

Framsókn á fardögum

Opið bréf til Jóns Sigurðssonar - Sæll Jón: Á Íslandi urðu gríðarlegar framfarir á síðustu öld. Sjávarplássin byggðust upp, enda stutt á miðin. Landbúnaðurinn dafnaði og afkoman var örugg. Drifkraftur þjóðarinnar var trúin á framtíðina.

Rótlaus heilsugæsla og félagsþjónusta

Undanfarin ár hefur rekstrarklúður Heilsugæslu og Félagsþjónusu ítrekað gert almenningi ljóst hve nauðsynlegt er að vanda val stjórnenda. Verst er að ráðherrar Framsóknarflokksins stjórna ráðuneytum félags- og heilbrigðismála.

Evrópusambandsþingið

Eitt af því sem þing Evrópusambandsins hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir er sú staðreynd að það starfar nánast algerlega án nokkurrar ábyrgðar. Meira en 80% af atkvæðagreiðslunum í þinginu fara fram með handauppréttingum og fyrir vikið er í þeim tilfellum hvergi skráð hvernig hver og einn þingmaður greiðir atkvæði.

VG gerir Samfylkingunni tilboð

Nýr þingmaður VG og náinn vinur Steingríms J. segir að VG og Framsókn séu sammála um að leggja til við forsetann að Ingibjörg Sólrún fái umboð til stjórnarmyndunar með myndun þriggja flokka R-listastjórnar fyrir augum....

Ný viðreisn

Það er sagt að Geir og Ingibjörgu Sólrúnu ætti að reynast hægðarleikur að mynda ríkisstjórn. Það er þó ekki alveg víst. Maður gengur út frá því að þetta verði stjórn sem byggir á jöfnum skiptum, flokkarnir fái jafn mörg ráðuneyti og að stjórnarsáttmálinn verði nokkuð jöfn málamiðlun. En hvað fær Samfylkingin fyrir sinn snúð?

Stjórnarsamstarf er ekki til framdráttar Framsóknarflokki

Þó að ég geti tekið undir þá skoðun að stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafi lengst af blessast bærilega, er ekki þar með sagt að það sé á vetur setjandi eins og nú er komið kjósendafylgi Framsóknarflokksins. Þvert á móti. Endurnýjun samstarfsins er Framsóknarflokknum ekki til framdráttar. Slík endurnýjun er aðeins greiði við Sjálfstæðisflokkinn.

Tvö þingsæti í forgjöf

Lýðræði er meðal snjöllustu uppátækja mannsins ásamt blönduðum markaðsbúskap, eldinum, hjólinu og hjónabandinu. Höfuðkostur lýðræðisins er ekki sá, að þannig fái kjósendur ævinlega beztu stjórnina, sem völ er á, því að það gerist ekki alltaf í kjölfar kosninga. Nema hvað: sitt sýnist hverjum um það, hvers konar stjórn hentar bezt á hverjum tíma.

Stöldrum við – hugsum um alvöru málsins

Björn Bjarnason skrifar

Pólitísk auglýsing Jóhannesar Jónssonar kaupmanns gegn mér birtist í öllum dagblöðum föstudaginn 11. maí í því skyni að hafa áhrif á kjósendur í Reykjavík suður í kosningunum daginn eftir. Meira en 80% kjósenda flokksins höfðu áskorun Jóhannesar að engu.

Lúxusblogg

Eins og allir vita er komin upp lítil en vaxandi stétt ríkra karla á Íslandi. Þessir menn geta með peningunum sínum gert alls konar skemmtilega hluti sem við hinir ræflarnir getum ekki, til dæmis keypt grónar bújarðir og breytt í frístundajarðir, fengið hallærislega en rándýra poppara til að spila í afmælunum sínum eða boðið ruglverð í gömul málverk – upp á flippið.

Kjósendur eru bjánar

Þegar kjósendur tala, þá er betra að svara með auðmýkt en hroka. Annars er eins og menn séu að segja að þeir séu bjánar. En líklega var þetta fólk úr öðrum flokkum sem kaus Sjálfstæðisflokkinn til þess eins að geta strikað út Björn Bjarnason...

Risessa tryllir borgarbúa

Ekki man ég eftir viðlíka stemningu í höfuðborginni og þegar grænklædda risessan leið um stræti og torg með föður sinn í eftirdragi. Mikið var gaman. Svona á Listahátíð í Reykjavík að vera. Hún á nefnilega ekki aðeins að fara fram í tónleikasölum eða leikhúsum heldur teygja sig um götur borgarinnar og sinna börnunum ekki síður en þeim fullorðnu.

Framsókn hikar – Vinstri grænir tilbúnir

Framsókn hikar og Sjálfstæðisflokkurinn hikar líka. Innan beggja flokkanna er andstaða gegn því að treina stjórnarsamstarfið áfram. Hversu mikil alvara er í viðræðum Geirs við framsóknarmenn? Kann að vera að hann viti að þetta sé vonlaust...

Fögur er flugstöðin

Það er engin tilviljun að hvergi í alheiminum er líkingin, fallegur eins og flugstöð, til. Væri Dante upp nú á tímum væri einn hringja helvítis í vítisljóðum hans líkust risavaxinni flugstöð. Reikandi sálir, með þunga pinkla í eftirdragi vafra þar um vegvilltar og svefnvana.

Framsókn áfram í ríkisstjórn

Þingmenn Framsóknar eru ekki nema sjö. Það gæti verið praktískt erfitt fyrir flokkinn að starfa í ríkisstjórn. En á því er lausn. Ráðherrar flokksins munu ekki setjast á þing, heldur verður kallað á varamenn. Þannig komast líka fleiri framsóknarmenn að...

Traust Geirs

Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin grænt framboð eru sigurvegarar kosninganna. Segja má að í því séu fógin nokkuð þverstæðukennd skilaboð frá kjósendum. Kaldi veruleikinn er hins vegar sá að ríkisstjórnin hélt velli og stjórnarandstöðunni mistókst ætlunarverk sitt.

Knattspyrnusumar

Sumarið gengur í garð og knattspyrnulífið blómstrar. Þannig mætti með einni setningu tengja saman sumarið og knattspyrnuna, en þau bönd eru órjúfanleg á Íslandi. Knattspyrnuvellir munu iða af lífi frá morgni til kvölds þegar þúsundir iðkenda reyna með sér í skemmtilegum leik.

Eftir væntingarnar!

Ætlaði að horfa á kosningasjónvarpið á Stöð 2. Sá að Hannes Hólmsteinn var mættur þar. Strikaði hann út og stillti á RUV ohf. Þar var allt huggulega retró. Á kosninganótt er Ólafur Þ. Harðarson meira virði en tíu ára framfarir í tölvugrafík. Skemmtiatriðin voru: Stressuð viðtöl við stjórnmálamenn, skopstæling á lélegri kúrekahljómsveit og skopmyndateiknari. Ekkert bruðl!

Kvöldið eftir kosningar

Þetta er vandasamt spil. Flokksleiðtogar verða að sýna áhuga, en samt ekki of mikinn. Þá virkar það eins og þeir séu á útsölu. En þeir verða líka að passa sig á að missa ekki af tækifærinu. Ljóst er að bæði Vinstri grænir og Samfylkingin þrá að komast í stjórn...

Stórt kosningasilfur

Kosningarnar verða gerðar upp í Silfri Egils í dag. Meðal gesta í þættinum eru Þorgerður Katrín, Össur, Ögmundur, Margrét Sverris, Hannes Hólmsteinn, Gunnar Smári, Hallgrímur Helgason, Björn Ingi og Jón Magnússon...

Ef ég tek ofan flokksgleraugun

Kosningabaráttan hefur verið um margt skemmtileg. Og fróðleg. Þú hittir mann og annan, kynnist kjörum fólks, lífsháttum og skoðunum. Stundum nöldrinu en langoftast hreinskilni og kurteisi. Íslendingar eru dannað fólk.

Tækifæri til að breyta

Kosningarnar á laugardaginn stefna í að verða æsispennandi um leið og þær eru að mínu mati einhverjar hinar afdrifaríkustu um áratuga skeið. Í allan vetur og vor hafa breytingar legið í loftinu og megn óánægja með stjórnarstefnuna leynir sér ekki.

Kvöldið fyrir kosningar

Hér er smá stöðutékk kvöldið fyrir kosningar en síðar í greininni eru vangaveltur um stjórnarmyndun að þeim loknum. Niðurstaðan er að líklegustu kostirnir séu Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eða Samfylking, VG og Framsókn...

Fimm sekúndna valdatími

Hverjir borga alvarleg auðlindaspjöll þegar upp er staðið? Á hverjum bitna þau? Þú, lesandi góður, hefur vald í um það bil fimm sekúndur í kjörklefanum að velja hvort íslenska þjóðin heldur áfram á braut stóriðju og náttúruspjalla eða tekur sér tíma til að athuga sinn gang. Fimm sekúnduna valdatími getur samt breytt ýmsu og jafnvel aukið vald þitt. Notaðu þetta dýrmæta augnablik vel.

Kalt er konulausum

Einar Sigmarsson skrifar

Að kenna konum um. Cherchez la femme (leitið konunnar), segir franskt máltæki þegar finna þarf orsakavald. Frá örófi alda hefur verið reynt að kenna konum um ýmislegt sem miður fer.

Fortíðarhyggja eða framtíðarsýn

Ásta Þorleifsdóttir skrifar

Náttúra Íslands er ekki á útsölu. Það er furðuleg framtíðarsýn að vilja að Íslandi verði ruslahaugur fyrir önnur iðnríki sem hafa löngu horfið frá stóriðjustefnu. Í samkeppni við fátæk þróunarlönd, með því að bjóða orku á útsölu.

Horfum til baka

Kristján Sveinbjörnsson skrifar

Nú þegar við kjósum til Alþingis skulum við staldra við og horfa til baka.

Sögur fyrir sálarlífið

Í aðdraganda kosninga fer allt þjóðfélagið að klæja í görnina um að tjá sig. Dagblöðin eru vinsæll vettvangur skoðanaskipta en hafa yfirleitt ekki undan að birta aðsendar greinar. Það leysti netvæðing þeirra á þægilegan hátt.

Innlegg í umræðuna

Björgvin Vídalín Arngrímsson skrifar

Ég hef fylgst grannt með umræðunni um innflytjendamálin. Sér í lagi rýnt í andsvörin. Mér sýnist á andsvörum fólks varðandi innflytjendamál að það vill freka hafa hér lögleysu í þeim málum en skýr lög eins og Frjálslyndi flokkurinn. Þetta ágæta fólk vill reyna að kaffæra umræðuna úr fjarðlægð með móðgandi ummælum, gífuryrðum og upphrópunum, en lætur fylgja, “að sjálfsögðu þarf að ræða þessi mál á uppbyggilegum og faglegum nótum”. Svo er málið dautt hjá þessu fólki.

Hversu íhaldssöm eru við?

Sindri Birgisson skrifar

Í síðustu skoðanakönnun um fylgi við stjórnmálaflokka kom fram að 52% þjóðarinnar myndu kjósa núverandi stjórnaflokka. Fyrir mig eru þetta alvarlegar fréttir. Ég tilheyri þeim samfélagshópi sem þarf að treysta á lífeyri til að lifa af, allavega eins og stendur.

Leiguliðar athugið!

Ólafur R. Sigurðsson skrifar

Kvótakerfinu var, illu heilli, komið á fyrir um 24 árum síðan. Yfirlýstur tilgangur þess var að vernda fiskistofnana og tryggja byggðir við sjávarsíðuna. Skemmmst er frá því að segja að hvorugt markmiðið hefur náðst.

Stóriðjustefna stjórnvalda

Ragnhildur Sigurðardóttir skrifar

Stóriðjustefna stjórnvalda óbreytt: Öllum, sem sátu fund frambjóðenda stjórnmálaflokkana í Þingborg 28. apríl sl, ætti að vera ljóst að komist Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur aftur til valda á næsta kjörtímabili þá verður ekkert hlé á stóriðjustefnu stjórnvalda.

Harmóníku-fólkið

Ég er enginn rasisti en sígaunar eru algjör úrhrök; þjófóttir, lygnir, undirförlir og hreinlega sori jarðar! Við eigum hikstalaust að reka þetta jafnóðum úr landi!

Ég vil minnast …

Flosi Magnússon skrifar

Ég var vígður í hjónaband í Egilsstaðakirkju 31. júlí árið 1977 af ein­hleypum sóknarpresti. Svara­menn voru feður okkar hjónaefnanna, vígslu­vottar, ættingjar og vinir. Það eina sem ég minnist í raun frá hjónavígslunni var ægiþungi handar prestsins á höfði mér er hann bað fyrir okkur hjónunum vígðum.

Kosningavíxlar?

Starfsfélagar mínir í Íslandi í dag tóku saman eftirfarandi lista yfir loforð ráðherra síðasta misserið og nú er spurt hvort þetta séu kosningavíxlar? Þið verðið að dæma um það sjálf. Vinstri græn vilja banna stór loforð ráðherra síðustu mánuði fyrir kosningar – ætli sé ástæða til þess?

Stjórnmál byggjast á trausti

Andrés Sighvatsson skrifar

Ég var á fundi þjóðarhreyfingar í Háskólabíó á síðasta ári. Fjallað var um málefni aldraða. Salurinn var fullur af fólki og á sviðinu voru mættir nokkrir þekktir menn sem tóku til máls. En fyrsti og aðalræðumaðurinn var prófessor Stefán Ólafsson félagsfræðingur. Sem útskýrði með sannfærandi rökum hve eldri borgarar væru langt á eftir öðrum í launum eða tekjum frá tryggingastofnun. Svo mjög að óviðunandi væri. Það voru orð að sönnu.

Ögurstund

Alda Sigurðardóttir skrifar

Við Íslendingar erum lánsöm þjóð. Við búum á fallegri eyju og eigum nóg af öllu. Okkur líður oftast vel og erum sögð vera bjartsýn og hamingjusöm. Við erum frjáls og heilbrigð og svo lánsöm að mega kjósa okkur fulltrúa á þing þar sem allar stærstu ákvarðanir um framtíð okkar eru teknar.

Geir H. Haarde svarað

Hálfdán Örnólfsoon skrifar

Er hægt að tala um slæma hagstjórn þegar kaupmáttur þjóðarinnar eykst um 60% á 10 árum? Þessari spurningu varpaði Geir Haarde fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins nýverið. Mér finnst með öllu ótækt að forsætisráðherra sé ekki ansað þegar hann varpar fram jafn mikilvægri spurningu og vil því leggja mitt að mörkum. Svar mitt við spurningu Geirs er já, því miður og fyrir því eru í meginatriðum þrjár ástæður.

Hernaðarhyggjan er á kjörseðlinum

Einar Ólafsson skrifar

Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent fyrirspurnir til þeirra flokka sem standa að framboðum til Alþingis í vor um afstöðu þeirra til varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og aðildar Íslands að NATO. Svör bárust frá öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki. Allir flokkarnir nema VG eru andvígir uppsögn varnarsamningsins og úrsögn Íslands úr NATO.

Farið sjálfviljug heim!

Til er orð yfir ríki þar sem lögregluyfirvöldum líðst að skipa fólki fram og aftur, helst einmitt „sjálfviljugu“, eftir geðþótta, til að framfylgja óljósum, jafnvel óskrifuðum reglum og vilja yfirvalds.

Verksmiðjuvæðing: 150 árum of seint

Sumir telja að nú sé rétti tíminn fyrir Iðnbyltingu á Íslandi. Rúmlega 150 ár eru síðan iðnbylgingin hófst út í heimi. Meðal helstu tækni sem dreif áfram uppfinningar og framfarir þess tíma voru gufuafl, vefstólar, járnbrautalestir og færibandavinna.

Deildarstjóra Miðgarðs svarað

Helgi Viborg, sálfræðingur og deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg, sér ástæðu til að viðra skoðanir sínar á stöðu geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga í Fréttablaðinu 6. maí sl.

Sjá næstu 50 greinar