Fleiri fréttir

Til fylgdar við Frjálslynda flokkinn

Helgi Hallvarðsson skrifar

Á síðastliðnu ári ákvað ég að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn, sem undir forystu Guðjóns Arnars Kristjánssonar hefur það m.a. á stefnuskrá sinni að afnema "Sægreifa kvótann" og þar með afhenda íslensku þjóðinni aftur eign sína sem hún öðlaðist með ótvíræðum hætti þegar Íslendingar náðu yfirráðum yfir 200 sjómílna fiskveiðilögsögunni.

Þöggun, kviksyndi lýðræðisins

Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir skrifar

Þöggun, kviksyndi lýðræðisins Mál Jónínu Bjartmarz og skjótfengið íslenskt ríkisfang tilvonandi tengdadóttur hennar hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu. Í raun og veru snýst þetta mál ekki lengur um það hvort það sé einni stelpunni fleira eða færra með íslenskan ríkisborgararétt.

Glötuð tækifæri

Bjarni Jónsson skrifar

Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið.

Fram í heiðanna ró

Marta Eiríkdóttir skrifar

Jörðin er að vakna til vorsins. Enn á ný fáum við að upplifa kraft vorsins, yndislegt! Þetta er gleðilegur árstími,náttúran skipar stóran sess og við ímyndum okkur spennandi ferðalög innanlands, gönguferðir og útilegur sumarsins. Það er einmitt á svona stundu þegar vetur konungur víkur til hliðar að við finnum hvað okkur þykir vænt um umhverfið.

Þú ert rekin!

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir skrifar

Fröken Ríkisstjórn: Ég er vinnuveitandi þinn og þar af leiðandi get ég bæði ráðið þig og rekið. Gallinn er reyndar sá að eigendur fyrirtækisins Íslands eru svo margir að ég ein og sér hef ekki úrslitavaldið. Ég var heldur aldrei fylgjandi því að ráða þig á sínum tíma.

Mál málanna

Óréttmætt er að halda því fram að umræður um menntastefnu og rannsóknir hafi með öllu verið skugga megin í kosningabaráttunni. Þær hafa eigi að síður verið minni en efni standa til. Hvers vegna þarf að ræða þessi viðfangsefni öðrum fremur?

SAMFYLKING Í SÁRUM

Daníel Sigurðsson skrifar

Lungann úr kjörtímabilinu hefur verið skondið að fylgjast með vængstýfðri Samfylkingunni flögra úr einu gaukshreiðrinu í annað í leit að rampa til að hefja sig til flugs af. Allt hefur komið fyrir ekki og síðustu mánuði hafa magalendingarnar orðið æ harkalegri eftir því sem fjöðrunum hefur fækkað í þessum stefnulausu flugtakstilburðum.

Þaulæfður kosningaréttur

Ég man vel eftir langömmu minni. Hún var falleg gömul kona sem gekk í stórrósóttum kjólum og mundi vel eftir því þegar hún sá gúmmístígvél í fyrsta sinn. Þegar hún var unglingur höfðu konur ekki kosningarétt. Það höfðu vinnumenn, snauðir bændur og þurrabúðarmenn ekki heldur. Fólk hafði misjafna sýn á lýðræðið þá og nú.

Falleinkunn í menntamálum

Ágúst Ólafur Ágústsson og Katrín Júlíusdóttir skrifar

Samfylkingarfólk veit að hægt er að gera mikið betur í menntamálum hér á landi. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virðist hins vegar vera á öðru máli í grein sinni í Fréttablaðinu 3. maí sl. Þar lýsir hann því hvernig allt sé í fínu standi í menntamálum á Íslandi og segir okkur vera þar í fremstu röð. Sigurður Kári skammast heilmikið út í undirrituð fyrir að styðjast í gagnrýni okkar við gögn frá OECD, sem þó sérhæfir sig í að bera saman tölfræði á milli landa.

Við vorum bara fimm

Ögmundur Jónasson skrifar

Á þeim kjörtímabilum sem liðin eru síðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu saman ríkisstjórn hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í stað þess að framleidd væru 90 þúsund tonn af áli verða nú framleidd milljón tonn af áli og stefnir í enn meira – jafnvel þótt vitað sé að um er að ræða atvinnustarfsemi sem skapar minni virðisauka en flestar aðrar atvinnugreinar.

Óviðunandi hagur

Höfundar þessarar greinar hafa sýnt með margvíslegum hætti á liðnum misserum að hagur stórs hóps eldri borgara á Íslandi hefur ekki verið með þeim hætti sem skyldi. Lífeyrisþegar hafa dregist afturúr öðrum þjóðfélagshópum. Fernt hefur ráðið mestu um það.

Kosið um velferðina

Allt tekur enda, líka þessi skrif mín í Fréttablaðið. Samkomulag hefur orðið á milli ritstjórnar og mín um að þetta verði síðasta grein mín í þennan fastadálk – og kannski tími til kominn. Við, á mínum aldri, sem erum svo heppin að eiga barnabörn, horfum á þau og hugsum hvað tíminn líði hratt, mér áskotnaðist önnur mælistika um hraða tímans þegar það rann upp fyrir mér að ég hef haldið þessum skrifum úti í þrjú ár – kannski tími til kominn að hætta.

Um grundvallaratriði Baugsmálsins

Náhirðin gerði örvæntingarfulla tilraun til að hafa áhrif á gang Baugsmálsins þegar það var til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Dreift var nafnlausu bréfi til dómara málsins, lögmanna og valinna áhrifamanna, með níði um ákveðna einstaklinga, einkum dómara, sem komið hafa að málinu á ýmsum stigum þess.

Hvað á að endurbyggja?

Annars vegar er bílastæðisminn með sinn groddaskap og hins vegar ofstækisfull verndunarsjónarmið. Við þurfum aðeins meira loft í þessa umræðu...

Velferðarsamfélag - Nýir tímar

Rebekka Jóhannesdóttir skrifar

Að baki er kjörtímabil mikils óstöðugleika, þenslu og verðbólgu í efnahagsmálum. Ekki var staðið á bremsunum vegna gríðarlegra framkvæmda á Austurlandi , heldur keyrt áfram af fyrirhyggjuleysi. Ríkisstjórnin hefur því gert sig seka um hagstjórnarmistök. Þau hafa rýrt kjör fólksins í landinu og aukið á skuldir heimilanna um 38,5 milljarða.

Glasapússarar og kosningaspá

Ég gladdist mjög og fylltist nýrri trú á stjórnmálamenn þegar ég frétti að ráðherra hefði lagt pólitíska framtíð sína í hættu við að hjálpa erlendri skólastúlku um flýtiafgreiðslu á ríkisborgara­rétti. Svona eiga stjórnmálamenn að vera.

Innistæðulaust kaupmáttargort

Árni Páll Árnason skrifar

Kaupmáttur hefur vissulega verið ágætur síðustu 11 árin og því ber að fagna. Kaupmáttarþróunin er þó ekkert sérlega markverð í sögulegu samhengi og þegar tekið er tillit til framleiðsluspennu kemur í ljós að hún er í meðallagi.

Tímabært framtak

Það er fagnaðarefni að ráðizt skyldi í að móta með þessum hætti heildstæða stefnu fyrir Íslands hönd í alþjóðlegum mannréttindamálum.

Biljónsdagbók 6.5

OMXI15 var 7.754,73, þegar ég kom á hluthafafund í Sjálfsmínbanka, og Nasdaq sleikti 2.525,07 þegar við Hámi höfðum skipt um stjórn þremur mínútum síðar. Gosi í Follíkóla, bróðir Mallíar, er orðinn stjórnarformaður.

Raunaleg saga vinstri flokka, stórhýsi í bænum, Framsókn grætir lítið barn

Ef úrslit kosninganna verða þau að ríkisstjórnin heldur velli og Samfylkingin og VG þurfa að eyða enn einu kjörtímabili í stjórnarandstöðu, munu þessir flokkar þurfa að endurskoða hernaðarlist sína gjörsamlega. Annars blasir við að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar verði eilífðarvél.

Ár hinna glötuðu tækifæra

Þegar rottur á Írlandi slitu sundur netsamband Íslands við umheiminn sagði mér maður að þetta væri táknrænt fyrir völd og áhrif eldri karlmanna á Íslandi.

Monthús og mannvirki

Að stækka styttuna af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli í Frelsisstyttustærð og hafa útsýnispall í spjótinu er einhver allra flottasta tillaga sem opinber hugmyndasamkeppni um skipulagsmál hefur getið af sér.

Framtíðin

Núna stendur yfir kosningabarátta þar sem stjórnmálaflokkar demba yfir okkur slagorðum og auglýsingum í örfáar vikur sem eiga að fá okkur til að gleyma öllu því sem hefur gerst á Íslandi undanfarin fjögur ár.

Metin okkar

Íslendingar hafa alltaf verið metnaðarfull þjóð og við höfum alltaf verið ákaflega stolt af okkar afrekum, litlum sem stórum. Leifur fann Ameríku (og skilaði henni reyndar aftur ónotaðri), Jón Páll var sterkastur, Linda Pé, Hófí og Unnur Bé rúlluðu upp fegurðarsamkeppnunum, handboltalandsliðið varð heimsmeistari - að vísu í B-keppni, en það er sama—og Bridge-landsliðið landaði Bermúdaskálinni með slíkum glans að þjóðin varð gripin bridgeæði um langa hríð á eftir allt niður í grunnskóla og leikskóladeildir.

Skilum góðærinu til fólksins

Nú er ríkið búið að greiða niður skuldir ríkissjóðs að mestu. Í langri valdatíð sjálfstæðismanna hafa skuldir heimilanna hinsvegar vaxið mikið vegna rangrar efnahagsstefnu, viðskiptahalla, verðbólgu og okurvaxta.

Hvað gerðist á Prestastefnu 2007?

Á Prestastefnu 2007, sem haldin var nýlega, fór fram atkvæðagreiðsla um álit kenningarnefndar kirkjunnar um staðfesta samvist. Í því var ítrekað að kirkjan styður staðfesta samvist og vill bjóða upp á athafnir blessunar og fyrirbæna fyrir fólk sem staðfest hefur samvist sína.

Stórkostleg sókn í menntamálum

Þorgerður katrín gunnarsdóttir skrifar

Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með þróun menntamála á Íslandi á undanförnum árum. Á örskömmum tíma hefur Ísland siglt fram úr nær öllum öðrum þjóðum þegar kemur að sókn ungmenna í menntun. Nú er svo komið að engin önnur þjóð ver hærra hlutfalli af þjóðartekjum sínum til menntamála en Íslendingar.

Reykjavíkurakademían 10 ára

Reykjavíkur Akademían er samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna stofnað árið 1997. Strax eftir stofnun Akademíunnar var hafist handa við að stilla saman strengi fræðimanna sem unnið höfðu hver í sínu horni og leita að hentugu húsnæði.

Húsverkin aftur í umræðuna

Hugmyndir unglinga um kynhlutverk eru íhaldssamari nú en þær voru árið 1992. Þetta þýðir að unglingar í dag eru líklegri til að finnast sjálfsagt að konur sjái um heimilisverk eins og að þvo þvotta og þrífa híbýli en þeir voru fyrir hálfum öðrum áratug.

Übermensch

Þegar nýráðinn forstjóri Glitnis var kynntur til leiks á mánudag fékk ég sem snöggvast á tilfinninguna að vísindamenn hefðu náð jafn merkilegum áfanga og þegar kindin Dolly var klónuð. Svo virtist sem maður hefði verið soðinn saman úr því besta frá Kristjáni Pálssyni, fyrrverandi alþingismanni, og líkamsræktarfrömuðinum Gillzenegger.

Gleymd neyð í Úganda

Í 20 ár hafa íbúar í Norður-Úganda verið fórnarlömb einna grimmustu uppreisnarmanna heims. Sú mannvonska sem býr í „The Lord’s Resistance Army, LRA“ er sjaldséð og hefur haft í för með sér að nær 2 milljónir manna hafa flúið heimili sín.

Árangur af íslenskri stefnufestu

Einar K. Guðfinnsson skrifar

Sýnilegur árangur er nú að nást í baráttu okkar Íslendinga og annarra þjóða gegn ólöglegum sjóræningjaveiðum á Reykjaneshrygg. Þetta skiptir máli og er til marks um að þær margvíslegu og fjölþjóðlegu aðgerðir sem við Íslendingar höfum mjög knúið á um og tekið þátt í eru að bera árangur.

Ráðherra brýtur á tónlistarnemum

Umboðsmaður Alþingis sendi frá sér það álit að menntamálaráðherra hefði brotið á tónlistarnemum. Þeir nemendur sem hafa fengið nám sitt í tónlist metið til eininga í framhaldsskóla áttu að fá tónlistarnámið ókeypis, en greiddu allan tímann skólagjöld upp á hundruð þúsunda.

Eiga alþingismenn ekki mæður?

Mikið er rætt um „kvenfrelsi“ þessa dagana. Hvað er kvenfrelsi? Á ég að hafa meira frelsi að því að ég er kona? Hef ég minna frelsi í dag af því að ég er kona? Eiga einstaklingar ekki að hafa sitt frelsi – óháð kyni?

Eru flokkarnir ósammála kjósendum?

Mánudaginn 30. apríl birti Fréttablaðið niðurstöður skoðanakönnunar þar sem fram kemur að kjósendur á Íslandi telja menntamál næstmikilvægasta málaflokkinn þegar kemur að því að ákveða hvaða flokkur hlýtur þeirra atkvæði 12. maí. Einungis velferðarmál þykja skipa meira máli, og eru menntamál t.a.m. ofar í röðinni en skattamál, efnahagsmál og umhverfismál.

Að semja af sér við Norðmenn

Í Ólafs sögu helga segir frá því er Ólafur konungur hinn digri biður Alþingi um að gefa sér Grímsey sem vináttuvott. Flestir þingmanna vildu verða við bón hans enda væri hann frændi þeirra og vinur. En þá tók til máls Einar Þveræingur og sagði að fengi kóngur eynna þá yrði þess ekki langt að bíða að langskip hans sigldu inn norðlenska firði (les: jöfur mun nota eyjuna sem stökkpall fyrir innrás). Eftir að hafa hlýtt á mál Einars snerist þingmönnum hugur, þeir höfnuðu málaleitan konungs.

Nýsköpun fyrir íslensk fyrirtæki

Fyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð á tímum örrar tækniþróunar og breytinga í stjórnun þurfa sífellt að vera vakandi fyrir tækifærum sem gefast til aukinnar þekkingarsköpunar. Þekking og nýsköpun eru undirstaða framþróunar á öllum sviðum atvinnulífsins, hvort sem um er að ræða tæknifyrirtæki, menntun, þjónustu eða framleiðslu.

Fordómar frá sálfræðilegu sjónarmiði

Fordómar er hugtak sem er neikvætt í eðli sínu. Enginn fæðist með fordóma í garð eins eða neins. Um er að ræða áunnið fyrirbæri. Áhrifabreytur eru ýmsir umhverfis- og uppeldisþættir og persónueinkenni.

Ellert skallar kirkjuna

Steinunn Jóhannesdóttir skrifar

Ekki veit ég hve oft Ellert B.Schram skallaði í mark á fótboltaferli sínum en löngunin til að skora hefur fylgt honum yfir á annan vettvang eins og vænta má um keppnismann. Hann hefur oft skrifað greinar sem hafa hitt í mark en pistill hans hér í blaðinu laugardaginn 28. apríl, Jafnir gagnvart Guði?, geigaði. Þar þrumar hann í íslensku þjóðkirkjuna, spyr hvort hún sé stödd á miðöldum, í heimi afturhalds, fordóma og fávísi og sakar hana um að útskúfa fólki og ganga erinda ranglætis og ójafnaðar.

Mannréttindi eiga að vera kosningamál

Toshiki Toma skrifar

Áherslumál í kosningum eru að sjálfsögðu þeir punktar sem hver flokkur telur mikilvæga og tímabært að ræða í kosningabaráttunni. En sum málefni verða sjaldan áherslumál í kosningum, þótt menn telji þau mikilvæg. Slík mál eru t.d. mannréttindamál, friðarmál, flóttamannamál eða jafnréttismál minnihlutahópa í samfélaginu.

Tilgangurinn með þessu

Brasilíski rithöfundurinn Paulo Coelho segir snjalla sögu. Ferðalangur kemur til Dresden skömmu eftir seinni heimsstyrjöld og sér þrjá menn að vinnu í borgarrústunum. „Hvað eruð þið að fást við?“ spyr komumaður. „Ég er að flytja steina,“ svarar sá fyrsti.

Atkvæði

Það er viðtekin venja að hreyta ónotum í krakka og skamma þá undir drep, en sem fullorðinn fær maður sjaldan að heyra’ða. Ég gæti til dæmis gengið inn í hvaða garð sem er og þóst vera að leita að einhverju og yrði ekki rekinn í burtu með óbótaskömmum eins og ef ég væri krakki. Það er helst eftir að maður gifti sig að maður fór að heyra’ða á ný.

Sjá næstu 50 greinar