Ögurstund Alda Sigurðardóttir skrifar 9. maí 2007 13:45 Við Íslendingar erum lánsöm þjóð. Við búum á fallegri eyju og eigum nóg af öllu. Okkur líður oftast vel og erum sögð vera bjartsýn og hamingjusöm. Við erum frjáls og heilbrigð og svo lánsöm að mega kjósa okkur fulltrúa á þing þar sem allar stærstu ákvarðanir um framtíð okkar eru teknar. Það skiptir öllu máli hverja við veljum til þeirra verka. Við erum ekki að kjósa til þess að staðfesta það að við höldum með rétta liðinu og velja okkur sigurvegara sem við skálum fyrir. Við kjósum þá sem við treystum best til þess að vera fulltrúar lífsgilda okkar og þess sem við óskum okkur í framtíðinni. Ég trúi því að á Íslandi sé hægt að búa um ókomna framtíð í sátt við umhverfið. Að tækifærin liggi í landinu og okkur sjálfum, menningu okkar og arfleifð. Tækifærin eru óendanleg. Ég trúi því að til þess að lifa hér góðu lífi þurfum við ekki að skaða náttúruperlur okkar með því að treysta á nýtingu orkuauðlinda fyrir stórar verksmiðjur. Við kjósendur höfum nú tækifæri sem aldrei fyrr að velja okkur framtíð. Við höfum um tvennt að velja: að halda áfram að horfa á landið okkar fá flýtimeðferð í eyðileggingu eða framtíð þar sem ákvarðanir eru teknar af yfirvegun og bjartsýni. Ef við veljum fyrri kostinn fáum við ekki annað tækifæri. Góðir landar, kjósum fólkið í Íslandshreyfingunni á þing.Alda Sigurðardóttir Framkvæmdastjóri á Selfossi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Sjá meira
Við Íslendingar erum lánsöm þjóð. Við búum á fallegri eyju og eigum nóg af öllu. Okkur líður oftast vel og erum sögð vera bjartsýn og hamingjusöm. Við erum frjáls og heilbrigð og svo lánsöm að mega kjósa okkur fulltrúa á þing þar sem allar stærstu ákvarðanir um framtíð okkar eru teknar. Það skiptir öllu máli hverja við veljum til þeirra verka. Við erum ekki að kjósa til þess að staðfesta það að við höldum með rétta liðinu og velja okkur sigurvegara sem við skálum fyrir. Við kjósum þá sem við treystum best til þess að vera fulltrúar lífsgilda okkar og þess sem við óskum okkur í framtíðinni. Ég trúi því að á Íslandi sé hægt að búa um ókomna framtíð í sátt við umhverfið. Að tækifærin liggi í landinu og okkur sjálfum, menningu okkar og arfleifð. Tækifærin eru óendanleg. Ég trúi því að til þess að lifa hér góðu lífi þurfum við ekki að skaða náttúruperlur okkar með því að treysta á nýtingu orkuauðlinda fyrir stórar verksmiðjur. Við kjósendur höfum nú tækifæri sem aldrei fyrr að velja okkur framtíð. Við höfum um tvennt að velja: að halda áfram að horfa á landið okkar fá flýtimeðferð í eyðileggingu eða framtíð þar sem ákvarðanir eru teknar af yfirvegun og bjartsýni. Ef við veljum fyrri kostinn fáum við ekki annað tækifæri. Góðir landar, kjósum fólkið í Íslandshreyfingunni á þing.Alda Sigurðardóttir Framkvæmdastjóri á Selfossi
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar