Fleiri fréttir Sýnishornið lofar góðu Sýnishorn úr annarri myndinni um breska spæjarann Sherlock Holmes hefur nú litið dagsins ljós og lofar góðu. Myndin sjálf verður ekki frumsýnd fyrr en í desember á þessu ári en það er Robert Downey Jr. sem leikur titilhlutverkið. Frammistaða hans í fyrstu Sherlock Holmes myndinni skilaði honum Golden Globe verðlaunum. 14.7.2011 11:00 Orðaður við nýjan vestra Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu, hefur verið orðaður við hlutverk í vestranum The Last Stand. Leikstjóri er Kim Ji-woon frá Suður-Kóreu og verður þetta fyrsta myndin sem hann tekur upp á ensku. Schwarzenegger er sagður hafa hlaupið í skarðið fyrir Liam Neeson sem skerfari í mexíkóskum landamærabæ og hefjast tökur í september. Schwarzenegger hefur lýst því yfir að hann vilji snúa aftur á hvíta tjaldið en vandræði hans í einkalífinu hafa tafið fyrir endurkomunni. 14.7.2011 11:00 Brangelina á leið upp að altarinu? Getgátur eru um að leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie muni á næstunni ganga í hnapphelduna. Bandaríska slúðurritið American Magazine Us Weekly, segir að parið sé að undirbúa litla athöfn, fyrir nánustu fjölskyldu og vini í Correns í Frakklandi. Brad og Angelina höfðu áður sagt að þau myndu ekki gifta sig fyrr en hjónaband samkynhneigðra yrði leyft um gervöll Bandaríkin. En þegar hjónaband samkynhneigðra var svo leyft í New York á dögunum er talið að hugur þeirra hafi snúist. 14.7.2011 10:44 Semur við Senu „Fyrsta breiðskífan á leiðinni, maður. Platan inniheldur öll lög sem hafa komið í þáttunum frá upphafi. Þetta eru 15 lög,“ segir grínistinn Steindi Jr. Steindi og Ágúst Bent, vopnabróðir hans, sömdu nýlega við Senu um útgáfu á breiðskífunni Án djóks – samt djók, sem er væntanleg í verslanir í næstu viku. 14.7.2011 09:00 Blóð frá Morðingjum Hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér lagið Blóð sem er spaghettíkántrívestraslagari í anda KK og Ennio Morricone. Það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar og er það fáanlegt á Tonlist.is og Gogoyoko.com. Morðingjarnir hafa látið lítið fyrir sér fara síðan þeir sendu frá sér jólalagið Jólafeitabolla í fyrra. Morðingjarnir hafa á ferli sínum gefið út þrjár plötur þar sem pönkrokkið hefur verið í fyrirrúmi. Sú fyrsta hét Í götunni minni og kom út 2006, sú næsta hét Áfram Ísland og fyrir tveimur árum kom út Flóttinn mikli. 14.7.2011 08:00 Beyoncé á plötu West og Jay-z Rappkóngarnir Jay-Z og Kanye West hafa unnið saman að plötu undanfarin misseri og nú er hún komin með útgáfudag: 2. ágúst. Platan heitir Watch the Throne og inniheldur 16 lög. Mikill gestagangur er á plötunni. Beyoncé Knowles syngur í laginu Lift Off, Frank Ocean kemur fram í tveimur lögum, Curtis Mayfield fær einnig að vera með ásamt Otis Redding, sem syngur í laginu Otis þrátt fyrir að hafa látist árið 1967. 14.7.2011 06:00 Ilmur festist inn í töfraskáp Vísir frumsýnir á morgun nýja stiklu úr þriðju myndinni um Sveppa og ævintýri þeirra. Þetta er þriðja myndin í röðinni um þá félaga Sveppa, Villa og Góa sem þurfa að taka á honum stóra sínum þegar Ilmur vinkona Sveppa festist inni í töfraskáp. Upphefst mikið ævintýri þar sem fjölmargir töfraeiginleikar skápsins koma í ljós. 13.7.2011 20:12 Daniel Baldwin sækir um lögskilnað Einn Baldwin bræðranna, Daníel Baldwin, hefur sótt um lögskilnað frá Joanne, eiginkonu sinni til fjögurra ára. Hann sótti um tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna í gær. 13.7.2011 20:04 Íslenskar myndir Tildu Swinton slá í gegn Ágústhefti bandaríska tískutímaritsins W er komið út. Þar er að finna myndaþátt með bresku óskarsverðlaunaleikkonunni Tildu Swinton sem var tekinn hér á landi í byrjun apríl. 13.7.2011 16:14 Sönghópur í franskri bílaauglýsingu Sönghópurinn Þrjár raddir & Beatur leikur og syngur í auglýsingu franska bílaframleiðandans Peugeot sem verður tekin upp hér á landi í þessari viku. „Það var franskur leikstjóri sem sá okkur á Youtube og bara varð að fá okkur í auglýsinguna. Hann lét það ekki standa í vegi fyrir sér að við ættum ekki heima á Íslandi lengur og sendi okkur heim með næstu vél,“ segir Bjartur „Beatur“ Guðjónsson taktkjaftur, en hópurinn er búsettur í Ósló. 13.7.2011 12:00 Stoltur yfir Sutcliffe-sýningu "Það er rosalegur heiður fyrir okkur að fá að vera með þetta. Ég er eins og stoltur pabbi þessa dagana,“ segir Ingi Þór Jónsson. 13.7.2011 10:00 Skálaði með Kate Moss „Það var ótrúlegt ævintýri að skála með Kate Moss og ferðast með þyrlu um tónleikasvæðið rúmlega hálftíma seinna,“ segir ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson, um einstaka upplifun sína af tónlistarhátíðinni Glastonbury í júní. 13.7.2011 08:00 Beckham-hjónin skíra barnið David og Victoria Beckham eignuðust dóttur á sunnudaginn, en stúlkan er fjórða barn þeirra hjóna. David og Victoria hafa ákveðið nafn á dömuna og verður hún skírð Harper Seven. „Ég er svo stoltur og spenntur að tilkynna fæðingu dóttur okkar, Harper Seven Beckham. Hún vó 3,4 kíló og fæddist kl. 7.55 í morgun, hér í Los Angeles," skrifaði David á Twitter-síðu sína. 12.7.2011 17:00 Búa til spilatorg í miðbænum Listaháskólanemarnir Harpa Björnsdóttir, Guðrún Harðardóttir og Katrín Eyjólfsdóttir hleypa lífi í Bernhöftstorfuna, torgið fyrir neðan Lækjarbrekka, og bjóða landsmönnum að spila spil þar í sumar. 12.7.2011 17:00 Jóhanna Björg tekur við Nýju útliti Karls Berndsen Jóhanna Björg Christensen sér um þáttinn Nýtt útlit næsta haust á Skjá einum. Jóhanna Björg er að taka sín fyrstu skref á skjánum en hún kvíðir því ekki að þurfa að feta í fótspor Karls Berndsen þó að hún viðurkenni að það sé enginn eins og hann. 12.7.2011 14:00 Kevin Smith kemur til Íslands "Ég er búinn að vera aðdáandi lengi,“ segir Guðlaugur Hannesson sem skipuleggur sýningu með Hollywood-leikstjóranum Kevin Smith í Hörpunni í nóvember. 12.7.2011 12:00 Ridley Scott og félagar sprengja í Rangárþingi ytra Breski leikstjórinn Ridley Scott hefur fengið leyfi til sprenginga frá 5. júlí til 1. ágúst við Dómadalsleið samkvæmt fundargerð hreppsnefndar Rangárþings ytra. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að aðeins verði sprengt þrjá daga innan þess tímaramma. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru sprengingarnar ekki stórar heldur eru einungis hugsaðar sjónrænt fyrir tökuvélarnar. 12.7.2011 10:00 Yngri systirin eftirsótt Hin 13 ára gamla Elle Fanning er á góðri leið með verða eftirsóttasta andlit Hollywood en hún er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning. 12.7.2011 08:00 Selena skákaði Bieber 11.7.2011 20:00 Pabbi í þriðja sinn Leikarinn Ryan Phillippe er orðinn faðir í þriðja sinn. Fyrrum kærasta leikarans, fyrirsætan Alexis Knapp, fæddi litla stúlku í vikunni og hefur hún hlotið nafnið Kai. 11.7.2011 18:00 Stone skotin í Hendricks Leikkonan Emma Stone viðurkenndi í nýlegu viðtali að henni þætti leikkonan Christina Hendricks mjög falleg kona. Stone, sem gert hefur garðinn frægan í gamanmyndum á borð við Superbad og The House Bunny sagði við blaðamann The Advocate að henni þætti Mad Men leikkonan vera ein sú fallegasta í bransanum í dag. „Allt við hana er fallegt, hún er akkúrat mín týpa.“ 11.7.2011 15:30 Paris Hilton hermir aldrei eftir neinum Paris Hilton segist fá innblástur frá Oprah Winfrey, Kate Moss og Audrey Hepburn, en segist aldrei reyna að herma eftir neinum. 11.7.2011 14:30 Skilnaður í uppsiglingu hjá Russel og Katy Vinir Russells Brand og Katy Perry óttast að hjónaband þeirra muni ekki verða langlíft. Sumir spá því að því verði lokið innan fjögurra mánaða.Miklar vinnutarnir hafa tekið sinn toll af hjónabandinu auk stöðugra sögusagna um daður Brands á tökustöðum. 11.7.2011 13:15 Hurts-greiðslan vinsæl á Íslandi Hárgreiðslan sem Theo Hutchcraft, söngvari Hurts, skartar er sú vinsælasta meðal stráka á Íslandi. Þetta fullyrðir blaðamaður London Evening Standard í viðtali við söngvarann. Hutchcraft segist því ekki hafa neinar áhyggjur ef poppferillinn fari í vaskinn. „Ég get þá alltaf farið til Íslands og opnað hárgreiðslustofu,“ segir hann. 11.7.2011 12:00 Gwyneth borðar aldrei á McDonalds Leikkonan Gwyneth Paltrow vakti athygli þegar hún sagðist heldur vilja reykja krakk en að borða ost úr spreybrúsa, en slíkan ost er hægt að kaupa víða í Bandaríkjunum. 11.7.2011 11:00 Modern Family leitar að nýrri Lily Framleiðendur sjónvarpsþáttanna Modern Family leita nú að ungum stúlkum til að taka við af tvíburunum Jaden og Ellu Hiller, sem leika hina ungu Lily. 11.7.2011 10:04 Fatahönnuður hrifnastur af Kínverjum Fatahönnuðurinn Tom Ford er gjarn á að láta ýmislegt flakka í viðtölum. Nýverið gagnrýndi hann þyngd Bandaríkjamanna og sagði þá vera orðna alltof feita. 11.7.2011 09:40 Gefur viðskiptavinum stöðumælaklink „Þetta vekur ómælda athygli og það er alveg ótrúlegt hvað fólk er duglegt að setja pening í skálina,“ segir Tómas Kristjánsson, eigandi iSímans í Skipholtinu. 11.7.2011 08:00 Robbie allur að róast Söngvarinn Robbie Williams hyggur á barneignir á næstunni með eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Aydu Field. Hann tekur þó skýrt fram að frúin sé ekki ólétt. 10.7.2011 21:00 Cage og sonurinn saman í meðferð Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, og eiginkona hans, Nikki Williams, hafa skráð sig saman í áfengismeðferð. Hjónakornunum, sem eiga von á sínu fyrsta barni, lenti illilega saman fyrir skömmu og fjölluðu bandarískir fjölmiðlar ítarlega um málið. 10.7.2011 16:00 Reese og eiginmaðurinn biðja fyrir getnaði Leikkonan Reese Witherspoon giftist að nýju í vor. Nú heyrast þær sögusagnir að hún og eiginmaðurinn, Jim Toth, vilji gjarnan eignast barn saman og gera ýmislegt til að úr því verði. 10.7.2011 13:00 Vill taka upp lag í geimnum Matt Bellamy, söngvara Muse, dreymir um að taka upp plötu í geimnum. Þetta segir hann í viðtali á tónlistarvefnum Contact Music. 10.7.2011 11:00 Felldu tár fyrir Potter Mikið var um dýrðir í London þegar rauða dreglinum var rennt út fyrir leikaralið Harry Potter myndanna. Síðasta myndin í seríunni um vinsæla galdrastrákinn, Harry Potter og dauðadjásnin, seinni hluti, var frumsýnd í London í vikunni. 9.7.2011 22:00 Tvítyngdar Hollywood-stjörnur Stjörnur eru ekki aðeins fríðar ásýndum heldur eru þær margar einnig vel að sér í tungumálum. Til að mynda tala þau Joseph Gordon-Levitt og Jodie Foster bæði frönsku og Gwyneth Paltrow og Casey Affleck eru þekkt fyrir góða spænskukunnáttu. Aðrar stjörnur eru þó svo heppnar að hafa fengið sitt annað tungumál strax með móðurmjólkinni. 9.7.2011 21:00 Daníel Bjarnason á næstu plötu Sigur Rósar "Við unnum smá verkefni með honum um daginn og það var alveg rosalega gaman, hann er algjör snillingur. Hann verður alveg pottþétt hluti af plötunni,“ segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar. 9.7.2011 20:00 Clooney þoldi ekki athyglissýkina George Clooney og ítalska fjölmiðlakonan Elisabetta Canalis ákváðu í júní að slíta samandi sínu. Mikið hefur verið fjallað um sambandsslitin bæði í ítölskum og bandarískum fjölmiðlum og velta menn því fyrir sér hvað hafi valdið slitunum. 9.7.2011 20:00 Rokkhamborgarar á hjólum "Ég hef lengi verið að spá og spekúlera í þessa hluti og langað til að gera eitthvað þessu líkt. Ég datt í algjöran lukkupott þegar ég fann þennan bíl,“ segir Guðfinnur Karlsson, athafnamaður með meiru en oftast kenndur við Prikið. Á næstunni mega höfuðborgarbúar búast við því að sjá einstakt farartæki á götum bæjarins. Hamborgarastað á hjólum, innblásinn af rokki og róli eins og nafnið gefur til kynna; Rokk Inn. Finni er kominn með leyfi fyrir bílnum á Geirsgötuplani, ætlar að færa út kvíarnar enn frekar og hyggst jafnframt herja á afmæli og aðrar veislur. 9.7.2011 19:00 Keppast um hylli kvenna Það ríkir mikil og hörð samkeppni milli karlkyns leikara sjónvarpsþáttanna True Blood ef marka má frétt Star Magazine. Tímaritið heldur því fram að leikararnir berjist um bestu línurnar og athygli kvenna. 9.7.2011 15:00 Lady Gaga í tómu rugli Lady Gaga segist ekki lengur gera greinarmun á sjálfri sér og þeirri persónu sem kemur fram á sviðinu. Lady Gaga, sem heitir réttu nafni Stefani Germanotta, segir að hún fari oft á tíðum svo djúpt í karakter að búningarnir og framkoma hennar séu einfaldlega orðin jafn mikilvæg og líffærin. 9.7.2011 15:00 Charlie Murphy segir sannar sögur í Hörpu "Charlie Murphy er mjög fyndinn sögumaður,“ segir Berang Shahrokni, verkefnastjóri hjá sænska afþreyingarfyrirtækinu Absimilis Entertainment. 9.7.2011 14:00 Hrósar lífvörðunum Paris Hilton hrósar lífvörðum sínum í hástert fyrir frammistöðu þeirra þegar þeir yfirbuguðu eltihrelli fyrir utan heimili fyrirsætunnar á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. 9.7.2011 13:00 Góðar stundir með Pamelu Kid Rock segir að hjónaband hans og Pamelu Anderson hafi verið stórskemmtilegt. Parið gifti sig árið 2006 en þau skildu aðeins fimm mánuðum síðar. Kid Rock segir að þrátt fyrir einhverja erfiðleika hafi hann aldrei skemmt sér jafn vel í lífinu. 9.7.2011 11:00 Fegurðin í hrörnuninni Eyðibýli og húsarústir eru mynd- og yrkisefni Nökkva Elíassonar ljósmyndara og Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar ljóðskálds í bókinni Hús eru aldrei ein. 9.7.2011 10:00 Bieber selur ekki blöð Justin Bieber er ein vinsælasta stjarna poppheimsins um þessar mundir. Vinsældir hans duga þó alls ekki til að selja blöð og tímarit. Bieber prýddi febrúarforsíðu Vanity Fair og hreyfðist það varla úr hillum verslana. Þá olli sala á tölublöðum People og Teen Vogue þar sem hann prýddi forsíðuna miklum vonbrigðum. 8.7.2011 22:00 Efaðist aldrei um Clooney Einn nánasti vinur bandaríska leikarans George Clooney segist aldrei hafa haft trú á því að samband hans og Elisabettu Canalis myndi endast. Leikarinn sé svo harðákveðinn í því að giftast aldrei aftur né eignast börn. Canalis og Clooney slitu samvistum fyrir skemmstu eftir tveggja ára samband. 8.7.2011 20:00 Sjá næstu 50 fréttir
Sýnishornið lofar góðu Sýnishorn úr annarri myndinni um breska spæjarann Sherlock Holmes hefur nú litið dagsins ljós og lofar góðu. Myndin sjálf verður ekki frumsýnd fyrr en í desember á þessu ári en það er Robert Downey Jr. sem leikur titilhlutverkið. Frammistaða hans í fyrstu Sherlock Holmes myndinni skilaði honum Golden Globe verðlaunum. 14.7.2011 11:00
Orðaður við nýjan vestra Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu, hefur verið orðaður við hlutverk í vestranum The Last Stand. Leikstjóri er Kim Ji-woon frá Suður-Kóreu og verður þetta fyrsta myndin sem hann tekur upp á ensku. Schwarzenegger er sagður hafa hlaupið í skarðið fyrir Liam Neeson sem skerfari í mexíkóskum landamærabæ og hefjast tökur í september. Schwarzenegger hefur lýst því yfir að hann vilji snúa aftur á hvíta tjaldið en vandræði hans í einkalífinu hafa tafið fyrir endurkomunni. 14.7.2011 11:00
Brangelina á leið upp að altarinu? Getgátur eru um að leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie muni á næstunni ganga í hnapphelduna. Bandaríska slúðurritið American Magazine Us Weekly, segir að parið sé að undirbúa litla athöfn, fyrir nánustu fjölskyldu og vini í Correns í Frakklandi. Brad og Angelina höfðu áður sagt að þau myndu ekki gifta sig fyrr en hjónaband samkynhneigðra yrði leyft um gervöll Bandaríkin. En þegar hjónaband samkynhneigðra var svo leyft í New York á dögunum er talið að hugur þeirra hafi snúist. 14.7.2011 10:44
Semur við Senu „Fyrsta breiðskífan á leiðinni, maður. Platan inniheldur öll lög sem hafa komið í þáttunum frá upphafi. Þetta eru 15 lög,“ segir grínistinn Steindi Jr. Steindi og Ágúst Bent, vopnabróðir hans, sömdu nýlega við Senu um útgáfu á breiðskífunni Án djóks – samt djók, sem er væntanleg í verslanir í næstu viku. 14.7.2011 09:00
Blóð frá Morðingjum Hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér lagið Blóð sem er spaghettíkántrívestraslagari í anda KK og Ennio Morricone. Það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar og er það fáanlegt á Tonlist.is og Gogoyoko.com. Morðingjarnir hafa látið lítið fyrir sér fara síðan þeir sendu frá sér jólalagið Jólafeitabolla í fyrra. Morðingjarnir hafa á ferli sínum gefið út þrjár plötur þar sem pönkrokkið hefur verið í fyrirrúmi. Sú fyrsta hét Í götunni minni og kom út 2006, sú næsta hét Áfram Ísland og fyrir tveimur árum kom út Flóttinn mikli. 14.7.2011 08:00
Beyoncé á plötu West og Jay-z Rappkóngarnir Jay-Z og Kanye West hafa unnið saman að plötu undanfarin misseri og nú er hún komin með útgáfudag: 2. ágúst. Platan heitir Watch the Throne og inniheldur 16 lög. Mikill gestagangur er á plötunni. Beyoncé Knowles syngur í laginu Lift Off, Frank Ocean kemur fram í tveimur lögum, Curtis Mayfield fær einnig að vera með ásamt Otis Redding, sem syngur í laginu Otis þrátt fyrir að hafa látist árið 1967. 14.7.2011 06:00
Ilmur festist inn í töfraskáp Vísir frumsýnir á morgun nýja stiklu úr þriðju myndinni um Sveppa og ævintýri þeirra. Þetta er þriðja myndin í röðinni um þá félaga Sveppa, Villa og Góa sem þurfa að taka á honum stóra sínum þegar Ilmur vinkona Sveppa festist inni í töfraskáp. Upphefst mikið ævintýri þar sem fjölmargir töfraeiginleikar skápsins koma í ljós. 13.7.2011 20:12
Daniel Baldwin sækir um lögskilnað Einn Baldwin bræðranna, Daníel Baldwin, hefur sótt um lögskilnað frá Joanne, eiginkonu sinni til fjögurra ára. Hann sótti um tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna í gær. 13.7.2011 20:04
Íslenskar myndir Tildu Swinton slá í gegn Ágústhefti bandaríska tískutímaritsins W er komið út. Þar er að finna myndaþátt með bresku óskarsverðlaunaleikkonunni Tildu Swinton sem var tekinn hér á landi í byrjun apríl. 13.7.2011 16:14
Sönghópur í franskri bílaauglýsingu Sönghópurinn Þrjár raddir & Beatur leikur og syngur í auglýsingu franska bílaframleiðandans Peugeot sem verður tekin upp hér á landi í þessari viku. „Það var franskur leikstjóri sem sá okkur á Youtube og bara varð að fá okkur í auglýsinguna. Hann lét það ekki standa í vegi fyrir sér að við ættum ekki heima á Íslandi lengur og sendi okkur heim með næstu vél,“ segir Bjartur „Beatur“ Guðjónsson taktkjaftur, en hópurinn er búsettur í Ósló. 13.7.2011 12:00
Stoltur yfir Sutcliffe-sýningu "Það er rosalegur heiður fyrir okkur að fá að vera með þetta. Ég er eins og stoltur pabbi þessa dagana,“ segir Ingi Þór Jónsson. 13.7.2011 10:00
Skálaði með Kate Moss „Það var ótrúlegt ævintýri að skála með Kate Moss og ferðast með þyrlu um tónleikasvæðið rúmlega hálftíma seinna,“ segir ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson, um einstaka upplifun sína af tónlistarhátíðinni Glastonbury í júní. 13.7.2011 08:00
Beckham-hjónin skíra barnið David og Victoria Beckham eignuðust dóttur á sunnudaginn, en stúlkan er fjórða barn þeirra hjóna. David og Victoria hafa ákveðið nafn á dömuna og verður hún skírð Harper Seven. „Ég er svo stoltur og spenntur að tilkynna fæðingu dóttur okkar, Harper Seven Beckham. Hún vó 3,4 kíló og fæddist kl. 7.55 í morgun, hér í Los Angeles," skrifaði David á Twitter-síðu sína. 12.7.2011 17:00
Búa til spilatorg í miðbænum Listaháskólanemarnir Harpa Björnsdóttir, Guðrún Harðardóttir og Katrín Eyjólfsdóttir hleypa lífi í Bernhöftstorfuna, torgið fyrir neðan Lækjarbrekka, og bjóða landsmönnum að spila spil þar í sumar. 12.7.2011 17:00
Jóhanna Björg tekur við Nýju útliti Karls Berndsen Jóhanna Björg Christensen sér um þáttinn Nýtt útlit næsta haust á Skjá einum. Jóhanna Björg er að taka sín fyrstu skref á skjánum en hún kvíðir því ekki að þurfa að feta í fótspor Karls Berndsen þó að hún viðurkenni að það sé enginn eins og hann. 12.7.2011 14:00
Kevin Smith kemur til Íslands "Ég er búinn að vera aðdáandi lengi,“ segir Guðlaugur Hannesson sem skipuleggur sýningu með Hollywood-leikstjóranum Kevin Smith í Hörpunni í nóvember. 12.7.2011 12:00
Ridley Scott og félagar sprengja í Rangárþingi ytra Breski leikstjórinn Ridley Scott hefur fengið leyfi til sprenginga frá 5. júlí til 1. ágúst við Dómadalsleið samkvæmt fundargerð hreppsnefndar Rangárþings ytra. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að aðeins verði sprengt þrjá daga innan þess tímaramma. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru sprengingarnar ekki stórar heldur eru einungis hugsaðar sjónrænt fyrir tökuvélarnar. 12.7.2011 10:00
Yngri systirin eftirsótt Hin 13 ára gamla Elle Fanning er á góðri leið með verða eftirsóttasta andlit Hollywood en hún er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning. 12.7.2011 08:00
Pabbi í þriðja sinn Leikarinn Ryan Phillippe er orðinn faðir í þriðja sinn. Fyrrum kærasta leikarans, fyrirsætan Alexis Knapp, fæddi litla stúlku í vikunni og hefur hún hlotið nafnið Kai. 11.7.2011 18:00
Stone skotin í Hendricks Leikkonan Emma Stone viðurkenndi í nýlegu viðtali að henni þætti leikkonan Christina Hendricks mjög falleg kona. Stone, sem gert hefur garðinn frægan í gamanmyndum á borð við Superbad og The House Bunny sagði við blaðamann The Advocate að henni þætti Mad Men leikkonan vera ein sú fallegasta í bransanum í dag. „Allt við hana er fallegt, hún er akkúrat mín týpa.“ 11.7.2011 15:30
Paris Hilton hermir aldrei eftir neinum Paris Hilton segist fá innblástur frá Oprah Winfrey, Kate Moss og Audrey Hepburn, en segist aldrei reyna að herma eftir neinum. 11.7.2011 14:30
Skilnaður í uppsiglingu hjá Russel og Katy Vinir Russells Brand og Katy Perry óttast að hjónaband þeirra muni ekki verða langlíft. Sumir spá því að því verði lokið innan fjögurra mánaða.Miklar vinnutarnir hafa tekið sinn toll af hjónabandinu auk stöðugra sögusagna um daður Brands á tökustöðum. 11.7.2011 13:15
Hurts-greiðslan vinsæl á Íslandi Hárgreiðslan sem Theo Hutchcraft, söngvari Hurts, skartar er sú vinsælasta meðal stráka á Íslandi. Þetta fullyrðir blaðamaður London Evening Standard í viðtali við söngvarann. Hutchcraft segist því ekki hafa neinar áhyggjur ef poppferillinn fari í vaskinn. „Ég get þá alltaf farið til Íslands og opnað hárgreiðslustofu,“ segir hann. 11.7.2011 12:00
Gwyneth borðar aldrei á McDonalds Leikkonan Gwyneth Paltrow vakti athygli þegar hún sagðist heldur vilja reykja krakk en að borða ost úr spreybrúsa, en slíkan ost er hægt að kaupa víða í Bandaríkjunum. 11.7.2011 11:00
Modern Family leitar að nýrri Lily Framleiðendur sjónvarpsþáttanna Modern Family leita nú að ungum stúlkum til að taka við af tvíburunum Jaden og Ellu Hiller, sem leika hina ungu Lily. 11.7.2011 10:04
Fatahönnuður hrifnastur af Kínverjum Fatahönnuðurinn Tom Ford er gjarn á að láta ýmislegt flakka í viðtölum. Nýverið gagnrýndi hann þyngd Bandaríkjamanna og sagði þá vera orðna alltof feita. 11.7.2011 09:40
Gefur viðskiptavinum stöðumælaklink „Þetta vekur ómælda athygli og það er alveg ótrúlegt hvað fólk er duglegt að setja pening í skálina,“ segir Tómas Kristjánsson, eigandi iSímans í Skipholtinu. 11.7.2011 08:00
Robbie allur að róast Söngvarinn Robbie Williams hyggur á barneignir á næstunni með eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Aydu Field. Hann tekur þó skýrt fram að frúin sé ekki ólétt. 10.7.2011 21:00
Cage og sonurinn saman í meðferð Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, og eiginkona hans, Nikki Williams, hafa skráð sig saman í áfengismeðferð. Hjónakornunum, sem eiga von á sínu fyrsta barni, lenti illilega saman fyrir skömmu og fjölluðu bandarískir fjölmiðlar ítarlega um málið. 10.7.2011 16:00
Reese og eiginmaðurinn biðja fyrir getnaði Leikkonan Reese Witherspoon giftist að nýju í vor. Nú heyrast þær sögusagnir að hún og eiginmaðurinn, Jim Toth, vilji gjarnan eignast barn saman og gera ýmislegt til að úr því verði. 10.7.2011 13:00
Vill taka upp lag í geimnum Matt Bellamy, söngvara Muse, dreymir um að taka upp plötu í geimnum. Þetta segir hann í viðtali á tónlistarvefnum Contact Music. 10.7.2011 11:00
Felldu tár fyrir Potter Mikið var um dýrðir í London þegar rauða dreglinum var rennt út fyrir leikaralið Harry Potter myndanna. Síðasta myndin í seríunni um vinsæla galdrastrákinn, Harry Potter og dauðadjásnin, seinni hluti, var frumsýnd í London í vikunni. 9.7.2011 22:00
Tvítyngdar Hollywood-stjörnur Stjörnur eru ekki aðeins fríðar ásýndum heldur eru þær margar einnig vel að sér í tungumálum. Til að mynda tala þau Joseph Gordon-Levitt og Jodie Foster bæði frönsku og Gwyneth Paltrow og Casey Affleck eru þekkt fyrir góða spænskukunnáttu. Aðrar stjörnur eru þó svo heppnar að hafa fengið sitt annað tungumál strax með móðurmjólkinni. 9.7.2011 21:00
Daníel Bjarnason á næstu plötu Sigur Rósar "Við unnum smá verkefni með honum um daginn og það var alveg rosalega gaman, hann er algjör snillingur. Hann verður alveg pottþétt hluti af plötunni,“ segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar. 9.7.2011 20:00
Clooney þoldi ekki athyglissýkina George Clooney og ítalska fjölmiðlakonan Elisabetta Canalis ákváðu í júní að slíta samandi sínu. Mikið hefur verið fjallað um sambandsslitin bæði í ítölskum og bandarískum fjölmiðlum og velta menn því fyrir sér hvað hafi valdið slitunum. 9.7.2011 20:00
Rokkhamborgarar á hjólum "Ég hef lengi verið að spá og spekúlera í þessa hluti og langað til að gera eitthvað þessu líkt. Ég datt í algjöran lukkupott þegar ég fann þennan bíl,“ segir Guðfinnur Karlsson, athafnamaður með meiru en oftast kenndur við Prikið. Á næstunni mega höfuðborgarbúar búast við því að sjá einstakt farartæki á götum bæjarins. Hamborgarastað á hjólum, innblásinn af rokki og róli eins og nafnið gefur til kynna; Rokk Inn. Finni er kominn með leyfi fyrir bílnum á Geirsgötuplani, ætlar að færa út kvíarnar enn frekar og hyggst jafnframt herja á afmæli og aðrar veislur. 9.7.2011 19:00
Keppast um hylli kvenna Það ríkir mikil og hörð samkeppni milli karlkyns leikara sjónvarpsþáttanna True Blood ef marka má frétt Star Magazine. Tímaritið heldur því fram að leikararnir berjist um bestu línurnar og athygli kvenna. 9.7.2011 15:00
Lady Gaga í tómu rugli Lady Gaga segist ekki lengur gera greinarmun á sjálfri sér og þeirri persónu sem kemur fram á sviðinu. Lady Gaga, sem heitir réttu nafni Stefani Germanotta, segir að hún fari oft á tíðum svo djúpt í karakter að búningarnir og framkoma hennar séu einfaldlega orðin jafn mikilvæg og líffærin. 9.7.2011 15:00
Charlie Murphy segir sannar sögur í Hörpu "Charlie Murphy er mjög fyndinn sögumaður,“ segir Berang Shahrokni, verkefnastjóri hjá sænska afþreyingarfyrirtækinu Absimilis Entertainment. 9.7.2011 14:00
Hrósar lífvörðunum Paris Hilton hrósar lífvörðum sínum í hástert fyrir frammistöðu þeirra þegar þeir yfirbuguðu eltihrelli fyrir utan heimili fyrirsætunnar á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. 9.7.2011 13:00
Góðar stundir með Pamelu Kid Rock segir að hjónaband hans og Pamelu Anderson hafi verið stórskemmtilegt. Parið gifti sig árið 2006 en þau skildu aðeins fimm mánuðum síðar. Kid Rock segir að þrátt fyrir einhverja erfiðleika hafi hann aldrei skemmt sér jafn vel í lífinu. 9.7.2011 11:00
Fegurðin í hrörnuninni Eyðibýli og húsarústir eru mynd- og yrkisefni Nökkva Elíassonar ljósmyndara og Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar ljóðskálds í bókinni Hús eru aldrei ein. 9.7.2011 10:00
Bieber selur ekki blöð Justin Bieber er ein vinsælasta stjarna poppheimsins um þessar mundir. Vinsældir hans duga þó alls ekki til að selja blöð og tímarit. Bieber prýddi febrúarforsíðu Vanity Fair og hreyfðist það varla úr hillum verslana. Þá olli sala á tölublöðum People og Teen Vogue þar sem hann prýddi forsíðuna miklum vonbrigðum. 8.7.2011 22:00
Efaðist aldrei um Clooney Einn nánasti vinur bandaríska leikarans George Clooney segist aldrei hafa haft trú á því að samband hans og Elisabettu Canalis myndi endast. Leikarinn sé svo harðákveðinn í því að giftast aldrei aftur né eignast börn. Canalis og Clooney slitu samvistum fyrir skemmstu eftir tveggja ára samband. 8.7.2011 20:00