Rokkhamborgarar á hjólum 9. júlí 2011 19:00 Þegar Finni fann bílinn var greinilegt að hann þurfti að leggja mikla vinnu í hann. Það hefur hann nú gert og bíllinn lítur svona út í dag. Hann á þó enn eftir að leggja lokahöndina á meistaraverkið áður en það sigrar heiminn. "
Ég hef lengi verið að spá og spekúlera í þessa hluti og langað til að gera eitthvað þessu líkt. Ég datt í algjöran lukkupott þegar ég fann þennan bíl,“ segir Guðfinnur Karlsson, athafnamaður með meiru en oftast kenndur við Prikið. Á næstunni mega höfuðborgarbúar búast við því að sjá einstakt farartæki á götum bæjarins. Hamborgarastað á hjólum, innblásinn af rokki og róli eins og nafnið gefur til kynna; Rokk Inn. Finni er kominn með leyfi fyrir bílnum á Geirsgötuplani, ætlar að færa út kvíarnar enn frekar og hyggst jafnframt herja á afmæli og aðrar veislur. "Þetta er mjög einfalt, bara grillaður hamborgari og kók,“ segir Finni. Og hamborgararnir bera engin venjuleg nöfn heldur eru kenndir við alvöru rokkgoð og hljómsveitir; Axl Rose, Led Zeppelin og Frank Zappa svo einhverjir séu nefndir. Eins og myndirnar gefa til kynna hefur Finni lagt mikla vinnu í að endurbyggja bílinn og hann er þessa dagana að koma fyrir borðum í honum. Með honum fylgir síðan hoppukastali sem athafnamaðurinn er að panta frá Kína og hann verður auðvitað í stíl við allt annað, í hamborgaralíki. - fgg
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Sjá meira