
Fleiri fréttir

Höddi Magg fékk sjokk í Svíþjóð
„Þetta er nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég hef hvorki farið sem fréttamaður né áhorfandi á stórmót þannig að þetta hefur verið mikið ævintýri. En um leið höfum við, ég og Björn Sigurðsson aðstoðarmaður minn, líka verið á þönum allan tímann þannig að þetta hefur verið ákaflega lýjandi um leið,“ segir Hörður Magnússon íþróttafréttamaður.

Prikið undirbýr drykkjuspil í tilefni afmælis
Veitinga- og skemmtistaðurinn Prikið er með nýtt borðspil í undirbúningi í tilefni af sextugsafmæli sínu í ár. „Við ætlum að búa til fyllerísspil í anda Trivial [Pursuit]. Þarna verður fullt af hlutum sem tengjast Prikinu og vitleysunni sem er í gangi þar,“ segir Finni hjá Prikinu. „Þetta verður fjör, númer eitt, tvö og þrjú. Það verður mikið drukkið í því, býst ég við.“

Ungmenni á plötu Sönglistar
Ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára koma við sögu á plötunni Sönglistin 2010 sem er nýkomin út. Á henni eru þrettán innlend og erlend lög. Flytjendur eru eða hafa verið nemendur í söng- og leiklistarskólanum Sönglist.

Hártískan í handboltanum
Hártíska íþróttaheimsins er jafn skrautleg og annars staðar. Fréttablaðið tíndi til nokkra valinkunna handboltakappa sem hafa skartað hárgreiðslu sem tekið er eftir.

Já en kærastan er miklu stærrri en þú
Logi Brynjarsson matreiðslumaður á matsölustaðnum Höfnin sem staðsettur er við bátahöfnina í Reykjavík veit hvernig best er að elda lax á einfaldan og fljótlegan máta. Fyrir tilviljun var unnusta Loga, Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottnign með meiru, stödd að snæðingi á Höfninni en Logi rekur staðinn ásamt foreldrum sínum. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði er töluverður stærðarmunur á Loga og Ragnheiði.

Loksins eitthvað spennandi fyrir börnin
Barnaleikritið Fjársjóðsleit með Ísgerði verður frumsýnt laugardaginn 29. janúar næstkomandi í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi. Fjársjóðsleitin er gagnvirkt leikrit þar sem krakkarnir fá að taka virkan þátt í spennandi ævintýri þar sem ýmsar skrautlegar persónur verða á vegi þeirra með Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnúsi Guðmundssyni í aðalhlutverkum. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Norðurpólnum í vikunni þar sem undirbúningurinn stendur sem hæst. Sjá nánar á midi.is.

Penélope og Javier eignast sitt fyrsta barn
Spænsku leikarahjónin Penélope Cruz og Javier Bardem eignuðust sitt fyrsta barn nú í vikunni. Samkvæmt spænska blaðinu El País fæddist barnið á Cedars-Sinai spítalanum í Los Angeles. Blaðið hefur það eftir heimildarmönnum að þetta sé sveingbarn.

Sex vinir Sjonna syngja Eurovision-lagið
„Þessi nöfn eru staðfest og munu syngja lagið hans Sjonna," segir Jóhanna Jóhannsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Sex vinir Sjonna Brink munu flytja lagið hans Aftur heim sem lagasmiðurinn og söngvarinn samdi fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Þetta eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson.

Fjórir Íslendingar í vinnu á tökustað Karlar sem hata konur
„Ég skrifaði undir trúnaðarsamkomulag um að gefa ekkert upp um efni myndarinnar en ég get alveg viðurkennt að ég hafi verið að vinna í henni,“ segir Finnur Þór Guðjónsson.

Oprah Winfrey á hálfsystur
Spjallþáttakonan Oprah Winfrey hefur uppgötvað að hún á hálfsystur. Sú er frá Milwaukee og var ættleidd fyrir tæpum fimmtíu árum, þegar Oprah var átta ára.

Himnesk frammistaða
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónleika sína á menningarhátíðinni Sydney Festival sem haldin er í Ástralíu um þessar mundir.

Retro Stefson að semja við útgáfurisann Universal
Hljómsveitin Retro Stefson er í þann mund að skrifa undir samning við stórfyrirtækið Universal. Viðræður fóru af stað eftir að útsendari fyrirtækisins í Þýskalandi fór á tónleika með hljómsveitinni á Iceland Airwaves-hátíðinni síðasta haust og heillaðist upp úr skónum.

Ekkert óvænt á Óskarnum
Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru kunngjörðar í gær. Fátt kom á óvart í vali bandarísku akademíunnar og raunar var allt eftir bókinni. The King‘s Speech leiðir kapphlaupið með tólf tilnefningar en True Grit fylgir fast á eftir með tíu. The Social Network er tilnefnd til átta.

Lay Low gerir plötu við ljóð íslenskra kvenskálda
„Ég er mjög spennt því mig hefur lengi langað til að gera íslenska plötu, en ég er ekki nógu góð í að semja íslenska texta," segir tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, best þekkt sem Lay Low.

Leggur stuðsamning fyrir bæjarstjórn
„Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast kallaður Mugison.


Tvær plötur frá Kanye
Rapparinn Kanye West ætlar að gefa út tvær plötur áður en sumarið er á enda. Fyrst kemur Watch the Throne út í mars sem hann gerir með rapparanum Jay-Z og í lok sumars er svo væntanleg ný sólóplata frá Kanye.

Rifjum aðeins upp hvernig þú varst fyrir nýju varirnar
Eins og heimurinn veit er leikkonan Lindsay Lohan nýskriðin úr meðferð við áfengis- og vímefna misnotkun og líka að hún á það til að láta setja kallogen efni í varirnar á sér. Í meðfylgjandi myndasafni rifjum við upp hvernig Lindsay leit út fyrir nýju varirnar. Þá má einnig sjá myndir af Lindsay við stýrið nýliðna helgi.

Rocky Horror endurfundir
Hópurinn sem setti upp söngleikinn Rocky Horror í Menntaskólanum við Hamrahlíð hittist í Iðnó á föstudaginn í tilefni þess að tuttugu ár voru liðin frá frumsýningunni.

Íslenskri nýklassík hampað
Íslenskir flytjendur eru áberandi í heilsíðuumfjöllun á menningarsíðu breska blaðsins Sunday Times um síðustu helgi. Þar er fjallað um nýja tegund lagahöfunda sem notast við sígilda tónlist í sköpun sinni. Einnig er rætt um að lagahöfundar þurfi ekki lengur að vera á sama stað ætli þeir að semja saman lög eða taka þau upp. Þar hafi netið komið inn í staðinn.

Það fylgir glamúrnum að vera pínu DJARFUR
„Það fylgir glamúrnum að vera pínu djarfur en það er alveg hægt að hafa hlutina djarfa án þess að það sé subbulegt. Mér hefur alltaf fundist gaman að skoða auglýsingabæklinga með fallegum myndum af fallegum líkömum. Mér finnst líka falleg nekt í góðu lagi og fer oftast bara eftir hvort það sé ekki örugglega „fancy not trashy". Mér finnst lítið mál að sitja fyrir sjálf á bikiní því ég er ánægð með líkama minn og geri líka í því að halda honum við. Ef fólk er ekki sátt við það þá þarf það ekkert að glápa. Það skiptir auðvitað bara öllu ef þú sjálf ert sátt við hlutina og hefur gaman af þeim. Ég hef allavega ekki gert neitt ennþá sem ég sé eftir enda hef ég heldur ekki verið að taka öllu sem býðst. Ég er frekar old school og settleg að eðlisfari."

Jesse James lofaður tattúkonu
Jesse James, fyrrum eiginmaður leikkonunnar Söndru Bullock, hefur trúlofast húðflúrlistakonunni Kat Von D. Parið hóf samband sitt síðasta sumar, skömmu eftir skilnað James við Bullock. Í viðtali við tímaritið People opinberar James ást sína á Von D og segist aldrei hafa kynnst jafn yndislegri manneskju. „Árið 2010 var besta ár lífs mín því ég varð ástfanginn af bestu vinkonu minni. Hún er frábær kona sem stóð með mér á tíma þegar allur heimurinn snéri við mér baki. Ég get ekki sett tilfinningar mínar í orð og ég er himinlifandi að hún hafi sagt „já“. Það á eftir að verða dásamlegt að eldast með henni,“ sagði James.

Halle Berry reið barnsföður sínum
Leikkonan Halle Berry mun vera afskaplega stjórnsöm ef marka má frétt sem birt var á vefsíðunni Radaronline.com. Berry vill til að mynda ekki að fyrrum sambýlismaður hennar, Gabriel Aubry, fari á stefnumót með frægum konum þrátt fyrir að hún sé sjálf í sambandi með franska leikaranum Oliver Martinez. „Ef Gabriel gerir ekki nákvæmlega það sem Halle segir honum að gera verður hún óð og öskrar á hann. Halle er mjög skapstór og stjórnsöm á bak við tjöldin," var haft eftir heimildarmanni. „Halle vill alls ekki að hann fari á opinber stefnumót og vill helst að hann hitti óþekktar konur, ekki aðrar stjörnur. Hún gaf honum úrslitakost, annað hvort hættir hann að hitta konur sem munu draga athygli að honum eða hann heldur friðinn á milli þeirra tveggja. Gabriel óttast að ef hann heldur Halle ekki góðri að þá fái hann ekki að hitta dóttur sína eins oft og hann langar til," sagði heimildarmaðurinn sem ber Berry ekki góða söguna.

Bannaði Jessicu að kaupa sér Fendi-tösku
Söngkonan Jessica Simpson skammast sín fyrir hegðun unnusta síns, ruðningskappans fyrrverandi Erics Johnson, ef marka má nýja frétt OK Magazine.

Ragga stýrir umræðum í Universal Studios
„Ég var búin ad gleyma hvað það er hrikalega gaman ad krukka í áhugaverðu fólki,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi útvarpsmaður á Bylgjunni.

Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup
Hljómsveitin Bloodgroup spilaði fyrir 2000 tryllta námsmenn í Porto í Portúgal í síðustu viku. „Ég hef aldrei heyrt meiri hávaða,“ segir Ragnar Láki hljómborðsleikari.

Atli Rafn talar fyrir Þór og Laddi Mjölni
Atli Rafn Sigurðarson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, hafa verið ráðnir í tvö stærstu hlutverkin í teiknimyndinni Þór sem framleiðslufyrirtækið Caoz er að gera. Atli Rafn mun tala fyrir Þór og Þórhallur verður Mjölnir.

Geir Ólafs flýgur út í febrúar
Söngvarinn Geir Ólafsson hefur verið bókaður á tvenna tónleika í Los Angeles í febrúar og stefnir á að syngja á einum til viðbótar.

Þessu liði leiddist greinilega ekki
Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari hjá Superman.is um helgina á skemmtistöðunum Risinu, Hressó, Bankanum og Hvítu perlunni. Eins og sjá má í myndasafni leiddist fólkinu ekki á djamminu.

Sumir höfðu vit á því að vera í LEÐURBUXUM
Skemmti- og spurningaþátturinn Ha? hóf göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi. Umsjónarmaður er leikarinn Jóhann G. Jóhannsson og liðsstjórar eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sólmundur Hólm. Leðurbuxur Eddu Bjargar stálu senunni því Jói og Sóli litu út eins og viskustykki, klæddir í skyrtur, á meðan Edda geislaði af kynþokka. Baggalútsmenn mættu til leiks eiturhressir að vanda eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Draumastarfið hjá All Saints
Nýtt útlit hljómsveitarinnar The Charlies vakti athygli lesenda Fréttablaðsins fyrir skemmstu. Manneskjan á bak við fötin sem stúlkurnar í The Charlies klæddust er Elísabet Kristófersdóttir.

Í hlutverki Saddams
Sacha Baron Cohen ætlar að leika Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforeta, í gamanmyndinni The Dictator. Myndin er byggð á bókinni Zabibah and The King sem Hussein skrifaði sjálfur.

Jóhanna Guðrún verður í stuttum kjól í kvöld
„Það leggst bara mjög vel í mig að keppa aftur. Smá meiri pressa en í seinustu forkeppni en það er bara gott," segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona en hún snýr aftur í Eurovision með því að syngja lag Maríu Bjarkar Sverrisdóttur í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Jóhanna er öllum hnútum kunn í Söngvakeppninni, vann hana 2008 og fór með lagið Is It True? alla leið í annað sætið í Moskvu, sællar minningar. Hvernig hefur undurbúningurinn fyrir keppnina gengið? „Æfingarnar hafa gengið frábærlega vel enda er ég með frábært fòlk með mér," segir hún. „Ég ætla að vera í kjól og í fyrsta skipti í Eurovision er ég ekki í síðum kjól. Kjóllinn var keyptur fyrir mig en ég lét síðan breyta honum aðeins og er rosalega ánægð með útkomuna," segir Jóhanna Guðrún spurð í hverju hún ætlar að vera í kvöld.

Arnaldur ánægður með nýja útgáfu
„Þetta er náttúrulega frábært að fá þessa bók út á þýsku og það verður gaman að vita hvernig henni vegnar,“ segir metsöluhöfundurinn Arnaldur Indriðason.

Arnar Ingi er endurfæddur Johnny Cash
Arnar Ingi hefur verið aðdáandi Johnny Cash síðan hann var 13 ára. Hann tók lagið Folsom Prison Blues í útvarpsþættinum Harmageddon.

Frönsk ofurpía bjargar París
Allt er á öðrum endanum í París þegar flugeðluegg klekst út á hillu í náttúrugripasafninu. Hin unga og skelegga fréttakona Adèle er þó hvergi bangin og lendir í alls kyns óvæntum ævintýrum.

Menningarvitar á Facebook vilja menningarfréttir á RÚV
Hallgrímur hefur stofnað sérstaka grúppu á Facebook undir nafninu Menningarfréttir í útvarp og sjónvarp. Hann skorar á listamenn að fylla pósthólfið hjá Páli Magnússyni útvarpsstjóra og Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra með áskorun um að koma á fót sérstökum menningarfréttum með svipuðu sniði og íþróttafréttir hafa verið.

Kattarkonan Hathaway
Anne Hathaway mun leika Selinu Kyle og hennar annað sjálf, Kattarkonuna, í þriðju Batman-myndinni, sem nefnist The Dark Knight Rises. Hathaway, sem er 28 ára, fylgir þar í fótspor Michelle Pfeiffer og Halle Berry sem hafa báðar spreytt sig á sama hlutverki. „Hathaway verður frábær viðbót við leikaraliðið okkar á sama tíma og sagan okkar er að verða að veruleika,“ sagði leikstjórinn Christopher Nolan. Tom Hardy, sem lék í mynd Nolans, Inception, leikur illmennið Bane í The Dark Knight Rises. Christian Bale verður sem fyrr í hlutverki skikkjuklæddu hetjunnar. Myndin er væntanleg í bíó 20. júlí á næsta ári.

Jordan í erfiðum málum
Ein frægasta glamúrfyrirsæta Breta, Katie Price, gæti verið á leiðinni með skilnað sinn og bardagakappans Alex Reid fyrir dómstóla. Skilnaðurinn er forsíðufóður fyrir bresku blöðin. Eftir aðeins eitt ár í hjónabandi tilkynnti fyrirsætan Katie Price að hún hygðist skilja við bardagakappann Alex Reid. Reid þessi er fremur vafasamur klæðskiptingur sem hefur haft atvinnu af blandaðri bardagalist og var handtekinn, ef marka má breska blaðið The Sun, sumarið 2006 vegna gruns um innflutning á kókaíni. Þá fjallaði breska pressan ítarlega um grófa fullorðinsmynd þar sem Alex Reid sást leika í nauðgunaratriði.

Leita að ofurfyrirsætu
Leitin að næstu Elite-stúlku landsins hefst á laugardag en þá munu aðstandendur Elite-skrifstofunnar taka á móti áhugasömum stúlkum á skrifstofu sinni við Klapparstíg 25-27 milli klukkan 14.00 og 17.00.

Í KLIKKAÐ FORM rétt eftir BARNSBURÐ
Freyja Sigurðardóttir, einkaþjálfari hjá Hreyfingu og margfaldur Fitnessmeistari er þriggja barna móðir. Yngsta barn Freyju er aðeins 15 mánaða gamalt. Í meðfylgjandi myndskeiði fræðir hún okkur um heilsu og hvernig hún kemur sér í gott líkamlegt form.

Óskabarn þjóðarinnar
Rapparinn Ramses fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar í kvöld. Hann blandar saman rappi og popptónlist á plötunni, sem hann segir nauðsynlegt ætli menn að fá eitthvað út úr harkinu.

Heimsendir helmingi stærri en Fangavaktin
„Þetta er svo stór sería. Það er alveg gríðarlegt magn af fólki sem birtist, við erum með heilan geðspítala,“ segir leikstjórinn Ragnar Bragason.


Heillaður af tónlist
Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, hefur staðfest að hljómsveitin sé byrjuð að undirbúa nýja plötu, tæpum fjórum árum eftir að sú síðasta, Era Vulgaris, kom út. „Ég er byrjaður að spila aftur bara til að spila aftur og er aftur orðinn heillaður af tónlistinni. Það er langt síðan ég gat síðast spilað án þess að vera undir einhvers konar þrýstingi,“ sagði Homme.