Lífið

Loksins eitthvað spennandi fyrir börnin

Barnaleikritið Fjársjóðsleit með Ísgerði verður frumsýnt laugardaginn 29. janúar næstkomandi í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi.

Fjársjóðsleitin er gagnvirkt leikrit þar sem krakkarnir fá að taka virkan þátt í spennandi ævintýri þar sem ýmsar skrautlegar persónur verða á vegi þeirra með Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnúsi Guðmundssyni í aðalhlutverkum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Norðurpólnum í vikunni þar sem undirbúningurinn stendur sem hæst.

Sjá nánar á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.