Leggur stuðsamning fyrir bæjarstjórn 25. janúar 2011 20:00 Mugison er einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður. „
Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast kallaður Mugison. Óvissa hefur ríkt um framtíð tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, sem hefur verið haldin á Ísafirði um páskana síðustu ár. Mugison og félagar lögðu sérstakan stuðsamning fyrir bæjarstjórn á föstudag, en í honum felst meðal annars að Ísafjarðarbær styrki hátíðina á hverju ári. „Hluti af þreytunni í mannskapnum snýst um að við erum alltaf á byrjunarreit á hverju ári með fjármögnun," segir hann. „Krónutalan þarf ekki að vera há, þetta er allt gert í sjálfboðavinnu. Þetta er aðallega stuðsamningur því við viljum fá Vestfirðinga inn í þetta." Mugison telur þó að bærinn sé til að skoða málið helvíti vel. „Þetta er goðsagnakenndur samningur," segir hann. „Ég setti inn í fyrstu grein að bæjarstjóri og bæjarfulltrúar eigi að vera í bullandi, sullandi stuði alla páskana. Enn fremur eigi þeir að gera allt til að smita aðra bæjarbúa af gleði sinni og ást." Með þessu vill Mugison virkja bæjarstjórn til þátttöku í hátíðinni. „Ég vil fá bæjarráðið og bæjarstjóra til að taka að sér hópastjórn, elda morgunmat ofan í poppara og jafnvel ættleiða þá þannig að dvöl þeirra verði algert himnaríki. Þetta fólk er náttúrlega að gefa vinnu sína og tíma." Mugison segist hafa fengið jákvæð viðbrögð við stuðsamningnum, þótt engin svör hafi borist. „Ég hef ekki heyrt neitt," segir hann. „Ég fékk reyndar einn tölvupóst og í honum stóð „allir í stuði". Það er mjög jákvætt." Ekki náðist í Daníel Jakobsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, við vinnslu fréttarinnar. - afb
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira