Fleiri fréttir

Hætt að eyða orkunni í vinsældir

Jennifer Lopez, 41 árs, segist njóta þess að eldast og núna er hún loksins búin að átta sig á því að hún sjálf skiptir máli. Söng og leikkonan er hætt að vera stöðugt að leggja sig fram við að halda öðrum ánægðum og vera vinsæl.

Slash að skilja

Fyrrum gítarleikarin Guns N´Roses, Slash, 45 ára, sem heitir Saul Hudson, hefur sótt um skilnað við fyrirsætuna Perla Ferrar. Perla og Slash giftu sig haustið 2001 og eiga tvo syni saman, átta ára London Emilio og sex ára Cash Anthony. Slash hefur talað opinskátt um villt líferni hans og Perlu. Sid og Nancy gerðu ekkert spennandi miðað við okkur," sagði Slash í júní síðastliðnum en viðurkenndi að sambandið hafi breyst töluvert eftir að hann hætti að drekka og dópa.

Steed Lord með sitt fyrsta myndband

„Hugmyndin fæddist þegar við vorum í myndatöku fyrir sænska fatamerkið WeSC fyrr í sumar. Þar kynntumst við snjóbrettamanni sem heitir Andrew Hardingham og við náðum svo vel saman að við ákváðum að fá hann til að leika í myndbandinu okkar,“ útskýrir söngkonan Svala Björgvinsdóttir. Hljómsveit hennar, Steed Lord, lauk nýverið við tökur á fyrsta tónlistarmyndbandi sínu. Myndbandið er við smáskífuna One Good Reason af nýrri plötu sveitarinnar, Heart II Heart.

Sótreiður Simon

Simon Cowell, 50 ára, er brjálaður eftir að keppendur í The X Factor raunveruleikaþættinum rústuðu lúxusvillunni hans á Spáni um helgina. Simon leyfði breskum keppendum í X-Factor að gista í lúxusvillunni hans á Marbella á Spáni yfir helgina. Þau misnotuðu gestrisnina með því að gera allt vitlaust. Í villunni slógu keppendur upp villtu partíi og kláruðu rándýrt kampavín og sér innfluttan bjór sem Simon geymdi fyrir sig persónulega.

Ágústa Eva við hlið Péturs í nýjum sjónvarpsþætti

„Ég hef aldrei leikið á móti Pétri Jóhanni áður og það er alveg ótrúlega gaman að vinna með honum,“ segir Ágústa Eva Erlendsdóttir. Hún mun leika aðalhlutverkið á móti áðurnefndum Pétri í nýrri gamanþáttaröð sem verður sýnd á Stöð 2 í haust. Ágústa mun leika dularfulla konu sem keyrir út Sóma-samlokur en á sér annað og eilítið öðruvísi líf utan vinnutímans. Auk Ágústu hefur Vignir Rafn Valþórsson verið ráðinn til að leika starfsmann Hlemmavídeós sem þættirnir snúast um en persóna hans verður hálfgert hjarta leigunnar.

Mótleikarinn kynþokkafullur

Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, segir að spænski mótleikari hennar í kvikmyndinni Eat, Pray, Love, Javier Bardem, sé það kynþokkafullur í kvikmyndinni að hún hafi bókstaflega ekki getað tekið augun af honum á meðan á tökum stóð.Leik Julia viðurkennir að hún varð óttaslegin þegar hún sá Javier í fyrsta sinn því henni þótti hann ógnvekjandi. En þegar þau byrjuðu að vinna saman fór kynþokki hans hvorki fram hjá henni ný samstarfsfólki þeirra. Á meðan á tökum stóð var hann umvafinn kvenkyns starfsfólki sem naut nærveru hans og hlýju en Javier er rómaður fyrir að vera gentilmaður og sjarmör. Hann er svo mikið ljúfmenni. Alveg yndisleg manneskja. Konur standast hann ekki," sagði Julia.

Gefið okkur frið

Ákvörðun söngkonunnar Mariuh Carey um að ræða ekki kjaftasöguna sem er á kreiki að hún sé barnshafandi er andleg segir eiginmaður hennar, Nick Cannon. Parið giftist fyrir tveimur árum og nú eru háværar sögusagnir um að Mariah gangi með barn undir belti.

Emmy-verðlaunin komu á óvart

Emmy-verðlaunahátíðin fór fram í 62. sinn um helgina og var mikið um dýrðir að venju. Stjörnunar mættu í sínu fínasta pússi og létu mynda sig er þær gengu eftir rauða dreglinum sælar og sáttar. Hinir vinsælu sjónvarpsþættir Mad Men og Glee þóttu hvað sigurstranglegastir þetta árið og voru þeir tilnefndir í nokkrum flokkum.

Sendi fyrrverandi rándýrt kampavín

Jennifer Aniston sendi fyrrum unnusta sínum, leikaranum Vince Vaughn, 900 dollara flösku af kampavíni þegar hún frétti að hann væri að verða pabbi.

Sælgætisbréfatöskur slá í gegn í Hollywood - myndband

Við hittum Jónínu Sigurðardóttir eiganda netverslunarinnar Kolors.is sem selur handunnar töskur sem eru gerðar úr endurnýttu efni. Töskurnar eru allar unnar úr ýmsum vörum eins og sælgætisbréfum, gosflöskumiðum, strikamerkjum, tímaritum og dagblöðum sem annars hefðu endað í landfyllingu. Í myndinni Sex and the City 2 má sjá Samönthu (Kim Cattrall) skarta silfurtösku sem Jónína sýnir okkur meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði. Fjölmargar stjörnur í Hollywood hafa skartað töskunum eins og Paris Hilton, Christina Ricci gg Cameron Diaz.

Lopez segir kaffið gera gæfumuninn

Söng og leikkonan Jennifer Lopez, 41 árs, segir að lykillinn að hamingjusömu hjónabandi sé kaffið sem hún lagar handa eiginmanni sínum, Marc Anthony söngvara. Jennifer hefur verið gift Marc Anthony í sex ár og saman eiga þau tvíburana Max og Emme, 2 ára. Hún var gift tvisvar áður en segir að Mark sé ástin í lífi sínu og að þau leggi sig bæði virkilega fram við að treysta sambandið hvern dag. Það þarf tvo til til að halda hjónabandinu gangandi. Ég er stöðugt að spyrja sjálfa mig. Hvað hef ég gert fyrir hjónabandið okkar í dag? Vakti ég hann í morgun? Gerði ég handa honum ilmandi góðan kaffibolla? Gerði ég eitthvað fallegt fyrir hann? Sagði ég eitthvað innilegt við hann? Allir þessir hlutir skipta máli ef þú ætlar að láta hjónabandi ganga vel. Jennifer segist alltaf fylgja hjarta sínu þegar kemur að ástarsabndönum. Mark dekrar hana eins og hún hefur alltaf þráð að láta dekra við sig og hún sér til þess að morgunkaffið hans sé fullkomið.

Opið hús í Borgarleikhúsinu

Eins og meðfylgjandi myndir sýna var gríðarlega góð stemning í Borgarleikhúsinu í gær en þar var opið hús fyrir gesti og gangandi. Boðið var upp á fjölbreytta skemmtidagskrá og starfsfólk Borgarleikhússins bakaði á staðnum fyrir alla sem vildu dýrindis vöfflur sem bornar voru fram með sultu og rjóma.

Djörf Ilmur vekur athygli

Kynningarmyndir af Ilmi Kristjánsdóttur í hlutverki Heddu Gabler í samnefndu leikriti sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í mars hafa vakið mikla athygli.

Vala Grand og Auddi í stuði á Saltfélaginu

Mikið var um dýrðir þegar gamla Saltfélagshúsinu var breytt í næturklúbb með tilheyrandi veigum og danstónlist. Fjöldi góðra gesta leit við en um boðspartýi var að ræða.

Boðið á Formúlu 1 í Singapúr

„Ég er mjög spennt en veit í raunninni ekkert svo mikið um þetta ennþá,“ segir Ingibjörg Egilsdóttir, fegurðardrottning en henni hefur verið boðið að vera gestur á Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Singapúr þann 26 september næstkomandi. „Það var haft samband við mig fyrir stuttu síðan og mér boðið að koma og vera þarna í nokkra daga,“ segir Ingibjörg og bætir við að hún hafi verið valin út ásamt nokkrum öðrum stúlkum sem kepptu með henni í Miss Universe í fyrra.

Talar út um skilnaðinn

Leikkonan Sandra Bullock hyggst tala út í fyrsta sinn opinskátt um skilnaðinn við mótorhjólaframleiðandann Jesse James í sjónvarpsviðtali við stöðina WEENN í næstu viku.

Hrifin af Justin Bieber

Tímaritið Elle birti nýverið myndasyrpu með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian og söngvaranum Justin Bieber. Myndasyrpan sótti innblástur til kvikmyndarinnar The Graduate og þótti mörgum hún heldur ósmekkleg þar sem Bieber er ekki sjálfráða.

Drew vildi tæta blaðamann í sig

Leikkonan Drew Barrymore vinnur ötullega að því að kynna nýjustu mynd, Going the Distance, en hún leikur þar á móti kærasta sínum, Justin Long. Barrymore brást aftur á móti illa við þegar hún var spurð af breskum blaðamanni hvort hún yrði ekki oft þreytt á því að tala um æskuár sín.

Bakkus á hilluna

Söngkonan Amy Winehouse er tilbúin að hætta að drekka og leggja partílífernið á hilluna fyrir kærasta sinn, leikstjórann Reg Traviss. Þessi kúvending á hugsunarhætti Winehouse átti sér stað í kjölfarið á myndbirtingum af Traviss að leiða fyrrum kærustu sína fyrir stuttu. Söngkonan breska á að hafa byrjað að hugsa sinn gang og óttast að það sé mikilli drykkju hennar og partístandi um að kenna að Traviss leiti til fyrrverandi kærustu.

Mikil brennsla og hjartslátturinn fer upp og niður

Jóhann Örn Ólafsson og Theodóra Sæmundsdóttir eiginkona hans kynna fyrir Íslendingum nýja dansíþrótt sem nefnist „Zumba". Við hittum hjónin og spurðum þau útí sportið. „Zumba er dans og fitness með geggjaðri suður-amerískri tónlist. Sporin er sáraeinföld og taktarnir sem við tökur eru t.d. Salsa, Merenge, Cumbia og Reggaeton. Zumba er þess vegna tær gleði sem fær alla til að brosa," segir Thea þegar við forvitnumst um „Zumba".

Bullock kemur fram í fyrsta sinn eftir skilnaðinn

Sandra Bullock ætlar á næstu dögum að mæta í fyrsta sjónvarpsviðtal sitt eftir skilnaðinn við Jesse James. Viðtalið verður í „Today Show" á NBC sjónvarpsstöðinni. Bullock ætlar þó alls ekki að ræða einkamál sín heldur opnun nýrrar heilsugæslustöðvar í New Orleans sem hún tók þátt í að fjármagna.

Barneignir taka sinn toll

Lýtalaus líkami Demi Moore 47 ára er stöðugt á milli tannanna á fólki í Hollywood. Sagan segir að læknirinn á bakvið líkama leikkonunnar er lýtalæknirninn Brian Novack sem er vinsæll í Beverly Hills. Demi sem er gift 32 ára leikaranum Ashton Kutcher er sögð hafa gengist undir fitusog, brjóstastækkun, hné aðgerð svo eitthvað sé nefnt. Demi segir mataræðið og þéttskipað æfingaprógram vera lykilinn að stinnum líkama sínum. Hún borðar mikið af hráfæði og nærist á hreinsandi djúskúr á nokkura mánaða fresti. Eftir að hafa gengið með og eignast þrjú börn er eins og líkaminn leiti stöðugt suður. Það tekur sinn toll að eldast og að ekki sé minnst á barneignir og ég hef aldrei átt í neinum vandræðum með að láta laga það sem ég vil lagfæra," sagði Demi.

Paris Hilton tekin með kókaín

Hótelerfinginn Paris var handtekin fyrir vörslu kókaíns í nótt. Fram kemur á fréttavef Fox fréttastöðvarinnar að Paris hafi verið farþegi í bifreið sem lögreglan stöðvaði. Lögregluþjónar fundu strax lykt sem þeir töldu að væri af marijuana.

Ekkert kynferðislegt eða rómantískt

MTV þáttastjórnandinn Vanessa Minnillo og söngvarinn Nick Lachey sem var giftur söngkonunni Jessicu Simpson, fara saman í sturtu af því að það er eini staðurinn sem þau geta talað almennilega saman. Parið byrjaði saman árið 2006 eftir að Vanessa birtist í tónlistarmyndbandi Nick við lagið What's Left of Me. Þau hættu saman í nokkrar vikur í fyrra en eru nú byrjuð aftur saman. Nú hafa Vanessa og Nick fundið leið til að eyða saman stund í algjöru næði á baðherberginu. „Það er ekkert kynferðislegt í gangi þegar við erum saman í sturtu og alls engin rómantík. Við sturtum okkur og ræðum málin sem ræða þarf í byrjun dagsins," útskýrði Vanessa.

Hætt að væla yfir slæmu umtali

Söngkoan Jessica Simpson, 30 ára, segist vera hætt að taka nærri sér hvað aðrir segja um líkamslag hennar eða persónuleika. Jessica hefur oftar en ekki verið gagnrýnd harðlega fyrir þyngd sína, klæðabuðr eða framkomu. Hún hefur ákveðið að hætta að lesa slúðrið sem er skirfað um hána og einbeit sér að sjálfri sér. Ég finn þrýstinginn um að líka vel út. Það var nú einu sinni ég sem valdi að vera hluti af skemmtanabransanum. Ég er komin á þann tímapunkt í lífi mínu að ég læt ekki skoðanir annara stjórna tilfinningum mínum. Ég er hætt að væla yfir umtali eða neikvæðum fyrirsögnum. Nú vinnur Jessica að annari þáttaröð raunveruleikaþáttarins The Price of Beauty þar sem fylgst er með ferðalögum sönkonunnar í leit að góðum ráðum til að vaxa og dafn að utan og innan.

Stöðugt augnsamband virkar á fyrsta stefnumóti

Sex and the City stjarnan, leikkonan Kim Cattrall, segir að öruggasta leið karlmanna að konum er að halda stöðugu augnsambandi. Leikkonan, sem á þrjú misheppnuð hjónabönd að baki segist vita hvað virkar best í samskiptum kynjanna við fyrstu kynni Hún segir yfirborðskennt mas engan veginn á konur heldur hrein og tær athygli eða með öðrum orðum algjör þögn. Ég held að besta sem karlmenn geta gert er að segja alls ekki neitt. Þeir eiga að þegja og hlusta," sagði Kim spurð hvernig karlar geta nælt sér í konur. Stöðugt augnsamband er ansi öflugt en þeir mega ekki reyna of mikið á sig þegar kemur að augunum. Svo eru pikköpplínur stranglega bannaðar. Fallegt bros og góð nærvera sem sýnir að þeir hafi einhvern áhuga er mér að skapi," sagði Kim sem er vissulega reynslunni ríkari þegar kemur að karlpeningnum.

Með hælaskó á heilanum

Sextán ára leikkonan Dakota Fanning sem hefur leikið í kvikmyndum á borð við I Am Sam og War of the Worlds er með hælaskó á heilanum að eigin sögn. Dakota elskar fátt eins mikið og að versla tískufatnað og þar eru skór efst á vinsældarlista hjá henni. Ég elska allt sem viðkemur tískur og ég elska að eiga helling af skóm - hælaskóm!" lét leikkonan hafa eftir sér. Eftir því sem Dakota eldist er eins og fataskáparnir hennar stækki líka. Hún fyllir skápana sína endalaust af hælaskóm.

Leiðist púkalegar konur

Breska fyrirsætan Georgia May Jagger segir að allt of margir klæðist púkalegum og druslulegum fötum. Dóttir söngvarans Mick Jagger hefur áhuga á öllu sem tengist tísku og segir móður sína Jerry Hall hafa kennt sér allt sem vita þarf um tísku.Georgia elskar að klæðast á einstakan hátt og telur að konur eigi að gera slíkt hið sama þegar kemur að litavali sér í lagi.

Hjónabandið andleg eining

Upptökustjórinn Swizz Beatz segir að það sé blessun að hafa fengið að giftast söngkonunni Aliciu Keys. Parið gifti sig á Corsicu í Frakklandi fyrr í þessum mánuði en Alicia er barnshafandi með fyrsta barn þeirra. Swizz vill að umheimurinn viti að það var hvorki frægð Aliciu eða auðæfi hennar sem dró hann að henni heldur djúp andleg tenging sem þau finna bæði svo sterkt. Ég lít ekki á hjónabandið út frá frægðarsólinni. Ég lít á samband mitt við eiginkonu mína sem andlega einingu," sagði Swizz. Ég hef eytt miklum tíma í heimsfrægar stjörnur allt mitt líf og frægðin gerir ekkert fyrir mig. Allt gengur þetta út á manneskjurnar." Spurður út í tilfinningar hans til Aliciu sagði Swizz: Ástin er öflugri en allt annað. Ég er betri maður eftir að ég kynntist Aliciu. Hún hefur þannig áhrif á mig að ég vil endalaust gefa af mér."

Íhugar alvarlega að opna sig

Leikkonan Kristen Stewart er alvarlega að íhuga að opna sig um samband hennar og leikarans Robert Pattinson. Leikararnir kynntust við tökur á Twilight seríunni en hafa svo mánuðum skiptir þverneitað að eiga í ástarsambandi. Loksins staðfest Robert að þau væru að hittast og að um sannar tilfinningar þeirra á milli væri að ræða.

Hellings vinna að komast í gott form

Britney Spears er aftur að komast í gott líkamlegt form og sú hefur þurft að hafa fyrir því ef marka má fyrrum einkaþjálfarann hennar.

Konur sjúkar í fræga menn

Spænski söngvarinn Enrique Iglesias, 35 ára, segir að frægðin sé lykillinn að konum. Söngvarinn, sem er dýrkaður um heim allan, hefur verið í sambandi við tennisstjörnuna Önnu Kournikova, undanfarin ár. Enrique hefur í gegnum tíðina stigið rætt opinberlega um ástarmálin sín og hve erfið unglinaárin voru hjá honum þegar stelpur voru annars vegar. Eftir að hann öðlaðist frægð gengu kvennamálin upp hjá stráknum. Mér er sama hvað fólk segir. Frægð er það sem konur vilja," sagði Enrique sem enginn vildi fara með honum á lokaballið í gagnfræðiskólanum þannig að hann endaði með því að fara aleinn og skemmti sér eftir því.

Miley Cyrus á lausu

Söngkonan Miley Cyrus, 17 ára, er á lausu. Hún er hætt með kærastanum, ástralska leikaranum Liam Hemsworth. Miley sagði ástralska sjarmernum upp nýverið en hún féll fyrir honum þegar þau hittust við tökur á rómantísku gamanmyndinni The Last Song árið 2009. Sagan segir að leikarinn hafi ekki þolað endalausa athyglina sem söngkonan fékk hvert sem þau fóru.

Ætlar að hlaða batteríin

Leikkonan Emma Watson, 20 ára, ætlar að hvíla sig frá leiklistinni um stundar sakir. Emma var aðeins tíu ára gömul þegar hún landaði hlutverki Hermione Granger í Harry Potter ævintýrinu. Núna þarfnast ég tíma til að öðlast sjálfstraustið á ný og þá er ég ekki að tala um að gera það í gegnum leiklistina. Ég þarf að hlaða batteríin og vera ég sjálf í einhvern tíma," sagði Emma.

John Travolta á von á barni

Leikarinn John Travolta, 56 ára, og eiginkona hans leikkonan Kelly Preston, 47 ára, eiga von á sínu þriðja barni. Hjónin héldu hátíðlega upp á að Kelly gengur með dreng í veislu sem þau héldu fyrir fjölskyldu og vini, 40 manns, á heimili þeirra í Los Angeles í byrjun ágúst. John og Kelly syrgja enn son sinn, Jett, sem féll frá í janúar 2009 aðeins sextán ára gamall. Saman eiga þau 10 ára gamla dóttur, Ellu Bleu.

Þetta fá Emmy stjörnurnar sent frá Íslandi

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collections, er ein af útvöldum sem boðið var að vera með sérstaka gjafapakka handa stjörnum Emmy-verðlaunanna í ár. Eins og fram kom í Fréttablðinu varð Sigrún Lilja hissa en ánægð þegar henni bauðst að taka þátt og segir þetta merki um það að Gyðja Collection sé að vekja athygli vestan hafs. Um er að ræða gríðarlega góða kynningu fyrir merki Sigrúnar Lilju þar sem fjölmiðlar veita því mikla athygli hvaða merki eru valin hvert ár.

Vissi strax að hann væri sá rétti

Söngkonan Katy Perry, 25 ára, vissi að breski grínistinn Russell Brand, 35 ára, er sá eini rétti fyrir hana því hann þekkir hana og skilur. Katy trúlofaðist Russell á nýárskvöld og síðar á árinu ætlar hún að giftast gríniastnum. Hvorgt hefur gefið upp hvar eða hvenær brúðkaupið fer fram. Það er hernaðarleyndarmál að þeirra sögn. Hún vissi strax og þau kynntust að hann væri rétti maðurinn fyrir hana. Hann er svo næmur fyrir hverju einasta smáatriði og svo skilur hann mig og hlustar á mig þegar ég þarf á því að halda," sagði Katy. Svo erum við með góðan húmor og komum hvort öðru til að hlæja og það eitt heldur okkur vel tengdum."

Hræddur við stelpur

Leikarinn Michael Cera, 22 ára, sem fer með aðalhlutverkið í myndinni Scott Pilgrim vs. the World, er hræddur við unglingsstúlkur. Michael, sem skaust á methraða upp stjörnuhimininn eftir leik sinn í kvikmyndunum Superbad og Juno, hefur oftar en ekki leikið feimna stráka sem eiga í erfiðleikum með að umgangast stelpur, segist sjálfur vera náttúrulegt nörd sem verður bæði hræddur og taugaveiklaður þegar unglingsstúlkur öskra nafnið hans. „Unglinsstelpur eru ógnvekjandi og þær verða það alltaf. Síðan þegar þær fullorðnast tekur önnur svipað brjáluð kynslóð við," sagði Michael.

Sár að fá ekki að ganga í hælaskóm

Tennisstjarnan Serena Williams, 28 ára, var gjörsamlega miður sín að eigin sögn þegar hún slasaðist á fæti fyrr á þessu ári af því að þá gat hún ekki gengið um á hælaskóm. Tennisstarnan slasaðist stuttu eftir að hún sigraði Wimbledon mótið í júlí og þurfti að hvíla sig á meðan hún náði fullum bata. Hún er sár yfir því að geta ekki æft og að sama skapi ekki gengið í uppáhaldsskónum sínum. „Þegar ég slasa mig verð ég döpur því þá get ég ekki verið í hælaskóm. Ég er nánast gráti næst yfir því," sagði Serena í viðtali við SOBeFiT tímaritið. Serena elskar tísku og hefur meðal annars hannað fatalínu fyrir Nike og Puma ásamt eigin fylgihlutalínu.

Þarf aðstoð ef allt á að ganga upp

Leikkonan Maggie Gyllenhaal segir það vera í lagi að mistakast endrum og eins þegar foreldrahlutverkið er annars vegar. Maggie, sem á þriggja ára gamla dóttur, Ramonu, með eiginmanni sínum Peter Sarsgaard, segist leggja sig alla fram við að halda jafnvægi á milli persónulega lífinu og vinnunni. Leikkonan elskar að vera mamma en segir tímaleysi, stress og álag oft koma í veg fyrir að hún geti verið fullkomin mamma. Ég nýt hverrar einustu mínútu með dóttur minni en ég þarf vissulega á aðstoð að halda ef allt á að ganga upp. Barnapían mín er frábær," sagði Maggie.

Enginn tími eftir að hún varð mamma

Victoria's Secret fyrirsætan Adriana Lima segir að eini tíminn sem hún fær fyrir sjálfa sig eftir að hún varð móðir er þegar hún fer í sturtu.

Benedikt leikstýrir sér í Íslandsklukkunni

„Það verður mjög áhugavert að geta staðið á sviðinu á móti mótleikara og sagt honum til,“ segir Benedikt Erlingsson, sem leysir Björn Hlyn Haraldsson af hólmi í hlutverki Arnasar Arneuss í Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu.

Auto Tune-hneyksli í X-Factor

Simon Cowell var borinn þungum sökum af bresku pressunni í gær eftir að upp komst að aðstandendur raunveruleikaþáttarins X-Factor hefðu beitt svokallaðri Auto Tune-tækni á suma keppendur. Auto Tune virkar þannig að röddin er lagfærð þannig að hún hljómi örugglega í réttri tóntegund.

Sjá næstu 50 fréttir