Steed Lord með sitt fyrsta myndband 31. ágúst 2010 11:30 Einar leikstýrði myndbandinu, Eddi bróðir hans klippti það og pabbi þeirra, Egill Eðvarðsson hjálpaði til við tökurnar. „
Hugmyndin fæddist þegar við vorum í myndatöku fyrir sænska fatamerkið WeSC fyrr í sumar. Þar kynntumst við snjóbrettamanni sem heitir Andrew Hardingham og við náðum svo vel saman að við ákváðum að fá hann til að leika í myndbandinu okkar," útskýrir söngkonan Svala Björgvinsdóttir. Hljómsveit hennar, Steed Lord, lauk nýverið við tökur á fyrsta tónlistarmyndbandi sínu. Myndbandið er við smáskífuna One Good Reason af nýrri plötu sveitarinnar, Heart II Heart. Meðlimir Steed Lord sáu sjálf um tökur á myndbandinu og segir Svala það hafa gengið eftir óskum. „Egill Eðvarsson, pabbi strákanna, var einmitt í heimsókn hjá okkur þannig að við fengum hann til að skjóta myndbandið ásamt Einari," útskýrir Svala en Egill er einn reyndasti framleiðandi Ríkissjónvarpsins. „Við gerum oftast allt sem viðkemur Steed Lord sjálf. Við skutum myndbandið á tvemur dögum hérna í Los Angeles og þetta var mikið stuð," segir Svala. Hljómsveitin kláraði einnig tökur á nýrri hljómplötu fyrir stuttu og var hún tekin upp í hljóðveri hljómsveitarinnar Beastie Boys í Los Angeles. Á plötunni eru átta lög og kemur hún út hinn 7. september. Hið nýja myndband fer í birtingu innan skamms í fatabúðum WeSC sem finna má um allan heim. Í fyrra gerði Steed Lord samning sem felur í sér að tónlist sveitarinnar fái að óma í raunveruleikaþáttum líkt og Keeping Up With The Kardashians og MTV's The Real World. „Við gerðum samning við stórt fyrirtæki sem vildi fá tónlist okkar í þessa raunveruleikaþætti og við sögðum já við því. Þetta er fín auglýsing fyrir okkur og bara gaman að þessu," segir Svala að lokum. - sm Hér má sjá myndbandið.
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira