Fleiri fréttir

Milljarðaskilnaður Tigers

Tiger Woods og Elin Norde­gren er formlega skilin eftir sex ára hjónaband. Ekki liggur fyrir hversu háa fjárhæð Elin fær frá Tiger en þau munu hafa sameiginlegt forræði yfir börnunum tveimur.

Stórafmæli Sniglabandsins

Sniglabandið hefur verið starfrækt í 25 ár og ávallt notið mikilla vinsælda. Afmælistónleikar verða haldnir í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. 25 ár eru liðin síðan hin ástæla hljómsveit Sniglabandið hélt sína fyrstu tónleika. Hún ætlar að fagna afmælinu með tónleikum á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu á laugardaginn.

Styrktartónleikar fyrir Kaffi Flóka

„Þetta verður svona manneskjuvænt kaffihús fyrir alla," segir Edgar Smári Atlason, söngvari og einn af aðstandendum Kaffi Flóka, sem er kaffihús/matstofa rekið af og fyrir unga geðfatlaða einstaklinga.

The Good Heart tilnefnd

Kvikmyndin The Good Heart er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Myndin, sem er eftir Dag Kára Pétursson, keppir við fjórar aðrar myndir um peningaverðlaun upp á 350 þúsund danskar krónur, eða um sjö milljónir íslenskra króna.

Spenningurinn mikill

Hljómsveitin SILFUR gaf nýverið út sinn fyrsta geisladisk sem fékk nafnið Ekkert Vesen. Bandið hélt útgáfutónleika í tilefni plötunnar á Sódómu Reykjavík Tryggvagötu 22. Auk Thelmu Hafþórsdóttur Byrd söngkonu, Andra Hrannars trommara, Stefán Þórs bassaleikara og Sveins Pálssona gítarleikara fékk bandið til liðs við sig góða og hæfileikaríka vini.

Sættu þig við útlitið

Fyrirsætan Tyra Banks biður aðdaendur sína að sætta sig við útlit sitt. Tyra sem talar oftar en ekki um útlitið á opinberum vettvangi segir að nú sé kominn tími til að konur sætti sig við útlit sitt. „Þið vitið að ég trúi því að fegurðin kemur innan frá. Mjög margar konur eru óánægðar með útlitið og þá líka dökkar konur sem vilja ekkert fremur en hvíta húð. Í staðinn fyrir að óska þér að þú breytist í eitthvað annað en þú ert skaltu fagna því að vera eins og þú ert. Því sérstakt útlit þitt gerir þig að því sem þú ert. Of dökk eða of föl. Ég bið alla aðdáendur mína að sætta sig við sjálfan sig og umfaðma húðina og útlitið með jákvæðu hugarfari," sagði Tyra. „Verið hamingjusöm sama hvað lífið færir ykkur," eru skilaboð fyrirsætunnar.

Nína Dögg sýnir leikmynd Hamskipta

Hin rómaða sýning Vesturports á Hamskiptunum snýr nú aftur í Þjóðleikhúsið, en einungis verða örfáar sýningar á verkinu nú. Hamskiptin var frumsýnd í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London fyrir tveimur árum og hlaut þá tilnefningu til Evening Standard verðlaunanna. Í kjölfarið var sýningin endurfrumsýnd í nýrri íslenskri gerð hér Þjóðleikhúsinu. Hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi, og í lok leikárs hlutu Hamskiptin Grímuverðlaunin sem leiksýning ársins. Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Nína Dögg Filippusdóttir leikkona okkur leikmynd verksins og segir okkur meðal annars frá því að sýningin hefur ferðast víða um heim og fengið frábærar viðtökur. Eftir sýningar í Þjóðleikhúsinu nú tekur við sýningartímabil í BAM leikhúsinu í New York.

Ældi og kvaddi þar með Lisbeth Salander

Leikkonan Noomi Rapace, 30 ára, sem lék Lisbeth Salander, tölvuhakkarann í þríleik Stiegs Larsson segir unglingsárin hafa verið hræðileg en hún flutti inn með kærasta aðeins fjórtán ára gömul. Fyrir hlutverkið létti leikkonan sig, klippti hárið, byrjaði að reykja og lét gata sig á hinum og þessum stöðum því hún vildi líkjast Lisbeth eins mikið og hún mögulega gat. Noomi viðurkennir að hún átti auðvelt með að tengja sig við karakterinn Lisbeth sem átti erfitt líf og var alltaf utangátta. Noomi líkir því við tilfinninguna þegar hún sjálf var barn. Mér fannst ég aldrei vera hluti af neinu. Ég passaði

Þakkar fagfólki útlitið

Leikkonan Emma Stone, 21 árs, landar eingöngu skvísuhlutverkum og fyrir það þakkar hún förðunarvörum og fagfólki í bransanum. Emma, sem er þekktust fyrir að leika í kvikmyndum á við Superbad og Zombieland, þakkar förðunarfræðingum og stílistum fyrir útlit sitt. Þegar ég hef fengið skvísuhlutverk hefur það verið hæfileikaríkum förðunar- og hárgreiðslumeistara að þakka," sagði Emma.

Óánægð með fötin í Gossip Girl

Leikkonan Jessica Szohr er öfundsjúk út í klæðaburð meðleikara sinna í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl sem sýndir eru á Stöð 2 á miðvikudagskvöldum. Jessica sem leikur Vanessu Abrams í þáttunum er langt frá því að vera sátt við fötin sem hún klæðist í þáttunum. Henni finnst mótleikararnir fá töluvert flottari fatnað en hún. Persónulega finnst mér Jenny best klædd. Hún er töff en samt stelpuleg. Blair Waldorf er hinsvegar allt of fullkomin í klæðaburði. Serena van der Woodsen er ýktust en ég, Vanessa, er þvílíkt föst í einhverjum munstrum og leiðinlegum litum," lét Jessica hafa eftir sér í tímaritinu Nylon. Þetta hljómar eins og ég sé neikvæð yfir öllu en það er ekki þannig. Þau líta öll vel út á sinn hátt en ef ég mætti ráða í hverju ég er í þáttunum fengi ég fataslánna hennar Jenny," sagði Jessica.

Brjóstin eru ekta

Leikkonan Elizabeth Hurley, 45 ára, neitar því alfarið að hafa gengist undir lýtaaðgerð á brjóstunum. Elizabeth segir líkamsvöxt sinn góðan miðað við aldur á Twitter síðunni sinni. Þá tekur hún skýrt fram að brjóstin hennar eru ekta. Ég las einhversstaðar á ég hefði látið stækka á mér brjóstin og viðurkenni með gleði að þau eru náttúruleg," skrifaði leikkonan á Twitter síðuna sína. Elizabeth, sem framleiðir eigin baðfatalínu, segist ganga í réttu baðfötunum sem henta hennar líkama fullkomlega og þar á meðal brjóstunum.

Kynlífsatriðin bjarga vinnunni

Leikkonan Drew Barrymore segist njóta vinnudaganna mun betur þegar kynlífsatriði eru tekin upp. Drew fer með hlutverk Erin í kvikmyndinni Going the Distance með „haltu mér slepptu mér" kærastanum hennar Justin Long. Drew segist hafa skemmt sér best við tökur á kynlífsatriðunum í myndinni og hún heldur því fram að eldheitar ástarsenurnar hafi verið allt að raunverulegar því þau voru saman þegar myndin var tekin upp. „Ég verð að viðurkenna að ég er ósammála leikurum sem segja: Ó guð það var svo skrýtið og erfitt að leika í kynlífsatriðinu og ég segi við því: Haltu kjafti þú færð helling borgað fyrir að láta eins og þú sért að stunda kynlíf."

Múmínálfalag Bjarkar - hlustið hér

Lagið sem Björk Guðmundsdóttir gerði fyrir finnsku kvikmyndina Múmínálfarnir og halastjarnan, Halastjörnulagið eða The Comet Song, kom út í dag.

Stórstjarnan Paul Potts með Bó á jólatónleikum

Óperusöngvarinn Paul Potts, sem fangaði hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með söng sínum í Britain Got Talent fyrir þremur árum, verður sérstakur gestur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í Laugardalshöll 4. desember. Tæplega sjötíu milljónir hafa séð fyrstu áheyrnarprufu Potts á myndbandavefnum Youtube þegar þessi símasölumaður með skökku tennurnar hóf upp raust sína og flutti Nessun Dorma nánast óaðfinnanlega fyrir dómnefndina sem þá var skipuð af Simon Cowell, Piers Morgan og Amanda Holden.

Sár á hnjánum

Hnén á 17 ára leikkonunni Taylor Momsen eru sár eftir að hún lék í tónlistarmyndabndi á dögunum. Í myndbandinu situr hún á gólfinu og skrifar á gólfið líkt og vitlaus væri. Leikkonan er einnig söngkona rokkhljómsveitarinnar The Pretty Reckless. Singullinn nefnist Miss Nothing og í myndbandinu skríður Taylor um gólf og brýtur glugga og gerir allt vitalust. Hún gat varla gengið dagana eftir tökurnar. Þetta var erfitt ég var sár á hnjánum. Þetta var langur strangur dagur en ég hafði gaman af þessu," sagði Taylor.

Var með kaloríur á heilanum

Leikkonan Diane Kruger er hætt að vera með þyngdina á heilanum. Fyrirsætan sem varð leikkona hefur talið ofan í sig kaloríurnar í gegnum tíðina til þess að vera sem grennst. Hún taldi kaloríurnar í öllu sem hún setti ofan í sig því hún ætlaði sér að vera grönn dansandi ballerína alveg frá unga aldri. Í dag er Diane 34 ára gömul og er loksins hætt að telja kaloríurnar. Hún slakar á og nýtur þess að vera til og borða það sem hana langar í. Ég er ekki lengur í stærð núll en ef ég dvel lengi í Þýskalandi borða ég of mikið af kökum og þyngist þá á ógnarhraða. Ég er ekki með kaloríufjöldann í fæðunni sem ég borða á heilanum lengur en þannig var ég. Sá tími er liðinn og ég ætla ekki að byrja á því aftur," sagði Diane. Diane er byrjuð að njóta í meira mæli matarins sem hún neytir og að elda ljúffengan hollan mat. Hún elskar til að mynda stjörnukokkinn Jamie Oliver og eldar eftir uppskriftunum hans.

Hætt að rokka í þyngd

Jessica Simpson segist vera orðin sterkari síðan hún byrjaði að æfa svokallað kickbox. Leik- og söngkonan, sem hefur oftar en ekki ratað á síður slúðurblaðanna fyrir að rokka í þyngd hefur fundið sig í umræddu sporti. Hún segir boxið hjálpa henni andlega og líkamlega og að ekki sé minnst á að halda þyngdinni í jafnvægi. Ég fæ mikla orku út úr boxinu og það gerir mig sterkari að viðhalda þyngdinni og passa upp á mataræðið. Þetta helst allt í hendur," sagði Jessica.

Elskar að vera nakin

Leikkonan Jada Pinkett Smith, 38 ára, heldur því fram að hún líti best út með fallega skartgripi, hælaskóm og engu öðru. Jada, sem á þrjú börn Trey, 17, Jaden, 12, and 9 ára Willow, með eiginmanni sínum leik- og söngvaranum Will Smith, segir að það fari henni besta að vera allsber. Ef ég mætti ráða myndi ég bara vera með skartgripi og í flottum hælaskóm og engu öðru. Ég elska að vera nakin," sagði Jada.

Stuð á Sálinni

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns spilaði á skemmtistaðnum NASA á menningarnótt í samstarfi við Beefeater. Sálarmenn kunna að halda uppi stemmingu eins og sést á meðfylgjandi myndum sem Thorgeir.com tók.

Snæddu saman

Leikararnir Michelle Williams og Ryan Gosling áttu notalega kvöldstund saman í Toronto fyrir skemmstu. Gosling og Michelle léku par í kvikmyndinni Blue Valentine og veltu margir því fyrir sér hvort leikararnir væru að stinga saman nefjum utan vinnutíma.

Kaupa saman íbúð

Leikaraparið Jude Law og Sienna Miller sem nýverið tóku saman aftur, hafa gert tilboð í hús í London. Tilboðið hljóðar upp á tæpar 700 milljónir íslenskra króna. Vinir parsins segja Miller og Law vera tilbúin að gleyma fortíðin

Ætlaði sér alltaf að verða fræg

Leikkonan Freida Pinto, 25 ára, sem skaust upp á stjörnuhimininn árið 2008 í kvikmyndinni Slumdog Millionaire, var alltaf staðráðin í að verða heimsfræg. „Sem barn stóð ég fyrir framan spegilinn og lét eins og ég væri hinn eða þessi úr sjónvarpinu. Eina sem ég vissi var að ég ætlaði mér að verða heimsfræg," sagði hún

Scorsese stýrir sjónvarpsseríu

Hinn heimsfrægi Martin Scorsese er einn af leikstjórum nýrrar sjónvarpsþáttaraðar, Boardwalk Empire, sem hefur göngu sína á Stöð 2 í haust. Höfundur þáttanna er Terence Winter, hinn sami og stóð á bak við hina vinsælu mafíuþætti, Sopranos.

Íbúð Jimi Hendrix til sýnis

Íbúð gítarsnillingsins sáluga Jimi Hendrix í miðborg London verður opnuð fyrir almenningi í næsta mánuði í tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá dauða hans. Íbúðin, sem er staðsett í Mayfair-hverfinu, verður opin í tólf daga. Þar samdi Hendrix fjölda laga og spilaði einnig fyrir gesti.

Vill rassskella Lady Gaga

Fyrrum frirsætan Janice Dickinson, sem er þátttakandi í sjónvarpsþættinum Celebrity Rehab, er ósátt við ummæli söngkonunnar Lady Gaga, en hún sagðist neyta eiturlyfja endrum og sinnum í nýlegu viðtali.

Besti fyrrum rapparinn

Leikarinn Will Smith hefur verið kjörinn besti leikarinn sem áður var rappari samkvæmt skoðanakönnun síðunnar Movietickets.com. Smith, sem er 41 árs og hefur leikið í myndum á borð við Men in Black og Hancock, sigraði með yfirburðum og fékk 58% atkvæða. Hann var þekktur sem rapparinn The

Stolt af söng fyrir Obama

Söngkonan Beyonce Knowles segir það hafa verið ein besta stund lífs sín sem listamaður þegar hún söng fyrir Obama, Bandaríkjaforseta. „Að syngja fyrir Barack Obama þegar hann var vígður inn í embættið var mikið og persónulegt afrek fyrir mig, bæði sem listamann og Bandaríkjamann,“ sagði Beyonce.

Vakti mikla lukku í Kaupmannahöfn

„Þetta gekk rosalega vel. Ég á í viðræðum við verslanir í Tokyo, París, London, Kaupmannahöfn, Kanada og nokkrar vefverslanir að auki þannig að móttökurnar hafa bara verið mjög góðar,“ segir fatahönnuðurinn Sonja Bent sem er nýkomin heim frá Danmörku eftir að hafa tekið þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn.

Vinkonur þrátt fyrir frægðina

Leikkonunni Juliette Lewis, 37 ára, þykir óendanlega vænt um leikkonuna Jennifer Aniston, 41 árs, af því að hún er frábær vinkona. Leikkonurnar hafa verið vinkonur svo árum skiptiir og núna leika þær saman í nýrri kvikmynd sem ber heitið The Switch. Juliette er í skýjunum yfir því að hafa landað hlutverki í myndinni því þá fær hún að eyða tíma með Jennifer. Juliette segir að strax og þær kynntust hafi tengingin skapast. Hún dáist að húmor Jennifer og léttum persónuleika hennar. Ég elska hana svo mikið. Við erum hrifnar af hvor annari og það breytist aldrei. Ég er til dæmis mjög jarðtengd eins og Jennifer og hún er líka ótrúlega fyndin og það líkar mér í fari hennar," sagði Juliette.

Ungar vampírur kynþokkafyllstar

Sean Connery var 59 ára þegar People-tímaritið valdi hann kynþokkafyllsta karlmann heims. En nú er öldin önnur og drengir í blóma lífsins þykja flottastir.

Gwen langar í barn

Söngkonan Gwen Stefani hefur viðurkennt að hana langi að fjölga mannkyninu enn frekar Fyrir á söngkonan tvo syni, Kingston fjögurra ára og Zuma tveggja ára, með eiginmanni sínum Gavin Rossdale og nú vill hún bæta einu barni við áður en það er um seinan.

Trúir ekki á farsælan endi

Leikkonan Drew Barrymore, 35 ára, er hætt að trúa á farsælan endi þegar kemur að ástarsamböndum. Leikkonan er um þessar mundir stödd í haltu mér slepptu mér sambandi við leikarann Justin Long. Sambandið hefur staðið yfir í fimm ár.

Kominn með nýja

Mótorhjólaframleiðandinn Jesse James, sem er hvað þekktastur fyrir að vera fyrrverandi eiginmaður leikkonunnar Söndru Bullock, er kominn með nýja dömu. Það mun vera húðflúrsdrottningin Kat von D en hún er fræg í Bandaríkjunum og víðar fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþáttunum Miami Ink og LA Ink.

Illa valið orð

Jennifer Aniston var gestur í sjónvarpsþættinum Regis & Kelly í vikunni til að kynna nýja kvikmynd sína, The Switch. Í viðtalinu varð leikkonunni á þegar hún sagðist hafa gaman af því að klæða sig í ýmis gervi eins og misþroska einstaklingur.

Hjartað á Íslandi

Söngkonan Stína August, sem er búsett í Montreal í Kanada, heldur tónleika á Jazzhátíð í Reykjavík á mánudaginn á staðnum Venue við Tryggvagötu. Með Stínu spila valinkunnir einstaklingar, eða þeir Björn Thoroddsen, Sigurður Flosason, Einar Scheving og Tómas Einarsson.

Jógvan í samstarf við Hawks

Færeyski söngvarinn Jógvan Hansen er nýbúinn að gefa út nýtt lag en lítið hefur heyrst frá söngvaranum síðan í Eurovision. Lagið ber nafnið Save it for a rainy day og er skrifað af breska tónlistarmanninum Chesney Hawks.

Steindi jr. í sinni fyrstu kvikmynd

„Það hvílir mikil leynd yfir hlutverkinu en ég get sagt að ég verð ekki Steindi heldur önnur persóna,“ segir Steindi jr. grínistinn góðkunni. Steindi sló eftirminnilega í gegn á síðasta vetri í þáttunum Steindinn okkar en frægðarsólin virðist hvergi nærri hætt að rísa. Því nú hefur Steindi landað hlutverki í kvikmyndinni Okkar eigin Osló sem leikstýrt er af Reyni Lyngdal eftir handriti Þorsteins Guðmundssonar.

Kveikja í 22 flekum við Sæbraut

Listamennirnir Alisha Piercy og Óskar Ericsson munu kveikja í 22 flekum við Sæbrautina á Menninganótt. Þetta er þriðja verkið sem Óskar gerir í tilefni Menninganætur og voru hin listaverkin Þvottakórinn og loftlistaverkið Sóun.

Tuttugu ára afmælishátíð

Útvarpsþátturinn Party Zone heldur upp á tuttugu ára afmælið sitt á Nasa 4. september með mikilli hátíð. Fjölmargir troða upp, þar á meðal Gus Gus. Útvarpsþátturinn Party Zone heldur tuttugu ára afmælishátíð á Nasa laugardagskvöldið 4. september. Á meðal þeirra sem troða upp verða Gus Gus, Human Woman, Casanova, Rythmdoctor og félagarnir Margeir og Árni E.

Fyrstu tónleikarnir í fjögur ár

Jóhann Jóhannsson heldur tónleika í Hallgrímskirkju 1. október í samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, og 12 Tóna. Þetta verða fyrstu tónleikar Jóhanns á Íslandi í fjögur ár en hann hefur verið að gera það gott á erlendri grundu að undanförnu. Jóhann verður ekki einn síns liðs á tónleikunum því hann mun hafa fimm manna hljómsveit sér til halds og trausts. Hana skipa þau Matthías Hemstock á slagverk, Una Sveinbjarnardóttir og Gréta Guðnadóttir á fiðlur, Guðmundur Kristmundsson á víólu og Hrafnkell Egilsson sellóleikari.

Glæpir vinsælir

Bókin Glæpir eftir þýska lögfræðinginn Ferdinand von Schirach hefur slegið í gegn að undanförnu. Hún hefur selst í bráðum tvö hundruð þúsund eintökum og útgáfurétturinn hefur verið seldur til yfir þrjátíu landa. Stutt er síðan hún kom út hér á landi hjá bókaklúbbnum Neon.

Berjadagar 2010

Tónlistarhátíðin Berjadagar 2010 verður haldin í Ólafsfirði nú um helgina. Þetta er í tólfta sinn sem hátíðin er haldin og hefur hún á þessum árum áunnið sér traust og virðingu og þar af leiðandi er hún orðinn fastur liður í menningarlífi bæjarins.

Fyrirmyndir Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston, 41 árs, segir að hennar fyrirmyndir þegar kemur að klæðnaði og stíl eru leikkonurnar Cameron Diaz og Cate Blanchett. Jennifer, sem er þekkt fyrir að vera elegant og smart í klæðaburði, viðurkennir að hún fylgist grannt vel með Cate, 41 árs, og Cameron, 37 ára. Ég elska að fylgjast með Cameron Diaz á rauða dreglinum. Mér finnst hún flott klædd og tignarleg," sagði Jennifer. Cate er hinsvegar mjög áhugaverð í klæðaburði. Hún er óhrædd við að prufa nýja hluti," sagði Jennifer. Meðfylgjandi má sjá myndir af Jennifer,Cameron og Cate á rauða dreglinum.

Ástríðufull og óþolinmóð

Leikkonan Courteney Cox Arquette, 46 ára, á margt sameiginlegt með taugaveiklaða kokkinum Monicu Geller sem hún lék í sjónvarpsþáttaröðinni Friends frekar en einstæðu nýfráskildu Jules Cobb í þættinum Cougar Town sem sýndur er á þriðjudagskvöldum á Stöð 2. Courteney segist elska bæðia Monicu og Jues en hallast að því að hún sjálf líkist Monicu í raunveruleikanum. Ég er ástríðufull og góður hlustandi," sagði Courteney. En ég get líka verið mjög óþolinmóð." Spurð hvort vinkona hennar, leikkonan Jennifer Aniston, ætli að mæta sem gestaleikari í Cougar Town þáttinn svaraði Courteney: Engar ákvarðanir hafa verið teknar en ég er viss um að Jennifer kæmi í þáttinn ef hún væri ekki svona upptekin. Sú myndi skemmta sér á settinu!"

Sjá næstu 50 fréttir