Fleiri fréttir

Vandasamasta verkefni Einars

Heimildarmyndin Norð Vestur sem fjallar um snjóflóðið á Flateyri 1995 verður frumsýnd í október. Einar Þór Gunnlaugsson leikstýrir myndinni, sem tók

Víkingur lætur gamminn geisa

Sinfóníuhljómsveit Íslands stefnir á að vera í sínu allra besta formi þegar hún flytur í Hörpu í vor. Hljómsveitin byrjar starfsárið af krafti í kvöld, þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur meðal annars öndvegisverk eftir Liszt og Rakmaninoff.

Stjörnukokkur fagnar bókaútgáfu

Hrefna Rósa Sætran sjónvarpskokkur og veitingahúsaeigandi fagnaði í kvöld útgáfu bókarinnar Fiskmarkaðurinn sem bókaforlagið Salka gefur út. Bókin hefur að geyma uppáhaldsrétti Hrefnu sem hún framreiðir á veitingahúsinu hennar sem ber einmitt sama nafn og bókin. Eins og meðfylgjandi myndir sýna mætti fjöldi fólks til að fagna með Hrefnu.

Of loðinn fyrir tattú

Íslandsvinurinn og leikstjórinn Eli Roth, 38 ára, segist vera allt of loðinn á líkamanum til að vera fær um að fá sér húðflúr. Eli, sem er nýbyrjaður með dóttur Bog Geldof, Peaches Geldof, er hrifinn af húðflúrum en segist ekki geta fengið sér af því að hann er svo loðinn. Nei ég er ekki með tattú. Það hefur ekkert verið sett neitt slíkt á líkama minn. Ef ég gæti það væri ég búinn að setja risa mynd af Darth Vader, Van Halen mynd og Iron Maiden Eddie út um allan líkamann á mér. Ég er mjög loðinn allsstaðar og þegar líkaminn er þakinn hárum þá er einfaldlega ekki pláss fyrir húðflúr," sagði Eli.

Halle Berry knúsar fransmann

Leikkonan Halle Berry, sem hætti með fyrirsætunni og barnsföður sínum Gabriel Aubry fyrr á þessu ári, sást kyssa franska leikarann Olivier Martinez, sem var með söngkonunni Kylie Minogue, á götum Parísar. Halle og Olivier urðu ástfangin þegar þau léku saman í kvikmyndinni Dark Tide. Síðan þá hafa þau ekki getað verið án hvors annars. Olivier vildi ólmur sýna Halle Parísarborg sem og hún þáði. Halle og Olivier gátu ekki látið hvort annað í friði. Þau voru afslöppuð og leið greinilega vel saman. Það fór ekki á milli mála að Halle beið stöðugt eftir því að hann kyssti hana" sagði sjónarvottur. Parið vekur athygli hvar sem það stígur niður fæti en það ferðast um á mótorhjóli Olivier.

Aðrir tóku skilnaðinn nærri sér

Leikkonan Susan Sarandon, 63 ára, fann fyrir sorginni sem aðrir upplifðu þegar hún hætti með leikaranum Tim Robbins, 51 árs. Hún hættti með Tim á síðasta ári eftir að hafa verið með honum í 23 ár. Saman eiga þau tvo syni, Jack Henry, 21 árs, og Miles Guthrie, 18 ára. Susan fannst erfitt að takast á við viðbrögð fólks í kjölfar skilnaðarins en samband hennar og Tim var talið eitt það sterkasta í Hollywood. „Þjóðin syrgði. Fjöldinn allur af fólki kom til mín og sagðist taka skilnaðinn gríðarlega nærri sér. Ég fann fyrir ábyrgðinni vissulega því fólk myndar sér skoðanir á manni eins og hvernig maður er og hvernig maður hagar sér," sagði Susan. Í dag reynir Susan að velta sér ekki endalaust upp úr því hvað öðrum finnst heldur hlustar gaumgæfilega á hjarta sitt. „Það skiptir alls engu máli hvernig þessu fólki líður um skilnaðinn okkar. þetta er mitt líf og ég stjórna því," sagði hún.

Gæti þetta ekki án mömmu og pabba

Söng- og leikkonan Miley Cyrus, 17 ára, segir að tilhugsunin við að missa foreldra sína særi hana gríðarlega. Þegar Miley vann við gerð kvikmyndarinnar The Last Song fór hún að hugsa hvað hún gerði án foreldra sinna og upplifði mjög slæma tilfinningu bara við að hugsa um það. Ég áttaði mig á því að láta ekki einn einasta dag líða án þess að segja þeim hvað mér þykir vænt um þau. Hjarta mitt skynjaði mikinn sársauka bara við tilhugsunina ef ég missi þau," sagði Miley.

Ekki fleiri börn í bili

Leikkonan Katie Holmes, 31 árs, hefur ekki í hyggju að eignast fleiri börn í augnablikinu því hún vill að Suri, 4 ára dóttir hennar og Tom Cruise, fái alla athygli hennar. Katie ræðit opinskátt um barneignir því stöðugar sögusagnir eru á kreiki beggja vegna Atlantshafsins um að hún sé barnshafandi. Kannski vil ég eignast fleiri börn eftir nokkur ár en í dag vil ég vera viss um að vera til staðar fyrir Suri," lætur Katie hafa eftir sér í Marie Claire tímaritinu. Ég er yngst af mínum systkinum. Eldri systir mín er fimm árum eldri en ég og sú sem er næst í röðinni er níu árum eldri en ég. Mér fannst frábært að alast upp líkt og ég væri einbirni því ég fékk alla athygli móður minnar. Ég geri það enn í dag og mér líkar það mjög vel," sagði Katie jafnframt.

Grýla í augum trúaðra

Bókin Ranghugmyndin um guð eftir Richard Dawkings kom út í íslenskri þýðingu í byrjun mánaðar. Bókin hefur verið afar umdeild frá því hún kom fyrst út 2006 en í henni ræðst Dawkins á hugmyndina um guð og æðri máttarvöld.

Flowers syngur um Las Vegas

Fyrsta sólóplata Brandons Flowers, söngvara The Killers, kemur út í næstu viku. Hún nefnist Flamingo og er nefnd eftir götu í heimaborg hans Las

Fegurð er vanmetið hugtak

„Ég er ekki safnhaugur, ég er ánamaðkur – garðyrkjustörf með málningu,“ er yfirskriftin á sýningu Magnúsar Helgasonar myndlistarmanns, sem verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Magnús segir fegurðina vera sér hugleikna og finnst hún of sjaldan metin að verðleikum.

Vinsæll Clooney

George Clooney hefur augljóslega mikið aðdráttarafl því nýjasta kvikmynd hans, The American, fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjunum um síðustu helgi.

Ótrúlegur Brand

Óskarsverðlaunaleikkonan Helen Mirren segist ekki eiga orð yfir það hversu hæfileikaríkur landi hennar, Russel Brand, sé. Þau tvö leika á móti hvort öðru í kvikmyndinni Arthur en hún er endurgerð á hinni sígildu Dudley Moore-mynd frá árinu 1981.

Eltir nornir í næstu mynd

Sænska leikkonan Noomi Rapace er orðuð við hlutverk í hryllingsmynd sem byggð er á ævintýrinu um Hans og Grétu. Rapace, sem skaust upp á stjörnuhimininn eftir hlutverk sitt sem tölvuhakkarinn Lisbet Salander, er nú eftirsótt í Hollywood þar sem hún er stödd um þessar mundir til að freista gæfunnar.

Veðjað á Liam Neeson

Svo virðist sem Hollywood ætli að veðja á Liam Neeson. Hann er sagður vera í viðræðum við leikstjórann Joe Carnahan um að leika í spennutryllinum The Grey en þeir tveir gerðu saman A-Team. Hann er einnig orðaður við aðalhlutverkið í þremur öðrum myndum.

Óperudíva syngur með Bó

Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar verða með glæsilegasta móti í ár en þrír erlendir gestir munu troða upp og flytja jólalög með sínu nefi. Tilkynnt hefur verið um Alexander Rybak og Paul Potts en síðasta púslið er breska óperusöngkonan Summer Watson.

Eldgosið hægði á sölunni

Kimi Records heldur upp á þriggja ára afmælið sitt í Havaríi um helgina. Útgáfustjórinn Baldvin Esra segir fyrirtækið í góðum gír eftir dýfu í byrjun ársins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Unnið að gerð kvikmyndar um Ronnie

Framleiðendurnir Mark Joseph og Ralph Winter vinna nú hörðum höndum að því að koma af stað kvikmynd um ævi og starf Ronalds Reagan. Samkvæmt Empire-kvikmyndavefnum er Jonas McCord að skrifa handrit eftir tveimur

Opinberar líf Lady GaGa

Verið er að undirbúa útkomu bókar um tónleikaferðalag poppsöngkonunnar Lady GaGa en það er enginn annar en stjörnuljósmyndarinn Terry

Kórverk Kjartans flutt í New York

„Þetta getur verið djöfulsins vesen en þetta getur verið gaman stundum,“ segir Kjartan Sveinsson, hljómsborðsleikari Sigur Rósar, um kórtónlistina sem hann hefur verið að semja í allt sumar.

Dimma með þrjú lög á heiðursplötu Alice Cooper

Íslenska þungarokkssveitin Dimma á þrjú lög á ábreiðuplötu til heiðurs Alice Cooper sem kemur út 26. október næstkomandi. Tvö þeirra voru tekin upp á tónleikum Dimmu og Michaels Bruce, upprunalega

Tónleikar í Frumleikhúsi

Tónleikar verða haldnir í Frumleikhúsinu í Keflavík í kvöld og annað kvöld til minningar um ungu drengina tvo frá Reykjanesbæ, þá Guðmund Jóhannsson og Sigfinn Pálsson, sem létust úr krabbameini fyrr á árinu.

Milla lofar góðum Skyttum

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum stendur til að mynda, enn á ný, ævintýrið um skytturnar D‘Artagnan, Atos, Portos og Aramis sem Alexander Dumas gerði ódauðlega í samnefndri bók. Þeir Matthew Macfadyen, Logan

Illa lyktandi í viðtölum

Leikkonan Kristen Stewart segist ekki njóta þess að tala um sjálfa sig í viðtölum. Hún verði svo stressuð að hún svitni og lykti illa. „Þetta lagast með æfing-unni. En ég verð svo stressuð að ég veit ekki hvernig á að takast á við þetta,“ segir leikkonan sem slegið hefur í gegn í Twilight-myndunum. Stewart segir jafnframt að hún reyni að láta þetta ekki há sér. „Ég er mjög utan við mig þegar ég er stressuð. Þá nudda ég saman þumlunum og svitna á höndunum og lykta mjög illa.“

Tobba Marinós og Yrsa keppa í Útsvari

Fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Þorbjörg Marinósdóttir hefur staðfest þátttöku sína í Útsvari, spurningaþætti milli sveitarfélaga sem er að hefja göngu sína fjórða árið í röð í Ríkisjónvarpinu. Þorbjörg, eða Tobba M

Hrossakjötsnám í sláturhúsi

Leikmunadeild Þjóðleikhússins hefur verið önnum kafin að undanförnu við að útbúa gervihrossakjöt fyrir verkið Finnski hesturinn sem verður frumsýnt 15. október

Deep Jimi fagnar

Rokksveitin Deep Jimi & the Zep Creams heldur tónleika í tilefni af útgáfu á fjórðu plötu sinni, Better When We"re Dead, á Faktorý í kvöld.

Tíu ráð Hallgríms tilnefnd til þýskra verðlauna

Skáldsaga Hallgríms Helgasonar Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, hefur verið tilnefnd til verðlauna fyrir „forvitnilegasta bókatitilinn“ á þýska bóka bókamarkaðnu 2010.

Hráir, kraftmiklir og súrir

Önnur plata Grinderman kemur út á þriðjudaginn. Hrátt og kröftugt rokkið er enn í fyrirrúmi ásamt ögrandi og kynferðislegum undirtóni.

Safnar fyrir skólagjöldum

„Námið er svo dýrt að námslánið dugar ekki fyrir skólagjöldunum, það er nú bara svo einfalt,“ segir Daníel Smári Hallgrímsson en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í sumar komst hann inn í þekktan tónlistarskóla í Los Angeles þar sem hann mun leggja stund á nám í gítarsmíði. Námið er dýrt og Lánasjóður íslenskra námsman

Hljóðver fyrir verðlaunaféð

Hljómsveitin The XX hlaut hin virtu Mercury-verðlaun í Bretlandi fyrir samnefnda plötu sína sem kom út í ágúst í fyrra. Hún lenti ofarlega á mörgum árslistum um síðustu áramót, þar á meðal á Fréttablaðinu.

Caine til dularfullu eyjunnar

Michael Caine á í viðræðum við framleiðendur kvikmyndarinnar The Mysterious Island um að leika afa aðalpersónunnar. Caine, þekktastur fyrir leik sinn í Get Carter, The Dark Knight og nú síðast Inception, er orðinn 77 ára en er enn í fullu fjöri.

Á að vera gaman í bíó

Bragi Þór Hinriksson er sannkallaður kvikmynda-njörður. Þegar hann var níu ára sá hann Indiana Jones á Akureyri og eftir það varð ekki aftur snúið. Hann frumsýnir í dag fyrstu íslensku þrívíddarkvikmyndina, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið.

Rooney Mara byrjuð að æfa

Rooney Mara, hin óþekkta leikkona sem hreppti hlutverk Lisbeth Salander í amerísku útgáfunni af Millenium-þríleik Stiegs Larsson, er byrjuð að æfa sig á mótorhjóli.

Portman í stað Jolie

Natalie Portman er þessa dagana orðuð við aðalhlutverkið í geim-mynd Alfonso Cuaron, Gravity. Upphaflega stóð til að Angelina Jolie léki umrætt hlutverk og svo hafði verið rætt við Rachel Weisz og Scarlett Johansson.

Vilja gerast bændur

Tilvonandi hjónin Russell Brand og Katy Perry hafa lýst því yfir að þau langi til að gerast sveitafólk þegar þeirra tími í skemmtanabransanum er liðinn.

Leikur skúrka með dóttur sinni

Leikkonan Milla Jovovich segir tveggja ára dóttur sína nánast alltaf fara fram á að hún leiki skúrk eða vondan karakter þegar þær leika sér saman. Hún vill alltaf að ég leiki klikkuðu stjúpuna eða óþekktarangann í hlutverkaeiknum okkar," segir Milla. Millasegir jafnfram að eftir að hún varð mamma hafi allt breyst í lífi hennar. Nú setur hún dóttur sína í fyrsta sætið. Svo lengi sem ég veit að hún er örugg og að henni líður vel þá er ég í lagi," sagði hún.

Rándýrt að líta vel út

Jane Fonda, 72 ára, heldur því fram að það kosti morðfjár að líta vel út. Jane hefur ávallt viðurkennt að hún sé hundleið á að líta þreytulega og ellilega út og leiti því til fagaðila til að bæta útlit sitt. Hún borðar rétt og hreyfir sig samhliða því að eyða fúlgu fjár í ýmsar fegrunaraðgerðir. Ég er mjög varasöm þegar kemur að mataræðina en ég hreyfi mig reglulega. Svo er ég líka með mjög góð gen," sagði Jane. Annars fór ég nýverið í lýtaaðgerð. Ákvörðunin var erfið en ég lét slag standa eftir langa umhugsun. Ég ætla að segja sannleikann hvað það varðar en núna er ég að skrifa bók um það hvernig er að eldast og þar læt ég allt flakka." Ég lét láta laga á mér augun því ég var orðin þreytt á að vera þreytuleg í framan," sagði Jane.

Dansar í laumi

Breski grínistinnn Russell Brand æfir sig í einrúmi að dansa fyrir framan spegil að eigin sögn. Ég æfi mig alltaf heima fyrir framan spegilinn og segi við sjálfan mig: Fyrst þú ætlar að láta svona fyrir framan allan heiminn þá skulum við athuga hvort þér líki við þessi dansspor," sagði Russell. Russell viðurkennir að hann vill ekki gera sig að fífli opinberlega.

Heill her á bak við útlit Evu Longoriu

Leikkonan Eva Longoria Parker, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni Desperate Housewives, er ekki að skafa utan af því. Leikkonan viðurkennir fúslega að hún þoli einfaldlega ekki að nota ilmvötn og þess vegna hefur hún útbúið sitt eigið ilmvatn. Nú hefur Eva sett á markað fyrsta ilmvatnið sitt sem hún kallar einfaldlega Eva líkt og Sarah Jessica Parker og Kylie Minogue hafa nú þegar gert. Ég get ekki verið með ilmvatn. Ég er stöðugt hnerrandi og augun á mér fyllast af tárum þannig að ég ákvað að búa til mitt eigið. Þá var ég að hugsa um allar konurnar sem eru eins og ég," sagði Eva. Ég vildi gera ilmvatn sem allir geta notað og ég elska það," sagði Eva. Eva viðurkennir líka að það er heill her af fólki á bak við útlit hennar. Stílisti, förðunarfræðingur, hárgreiðslumeisari svo einhverjir séu nefndir. Það er heilt lið af fagfólki sem hjálpar mér að líta svona út. Þetta er allt ein risastór blekking," sagði hún. Annars heldur Eva því fram að svefn sé lykilatriði þegar kemur að því að lílta skikkanlega út.

Gaf Beyoncé svipu

Söngkonan Lady GaGa kom vinkonu sinni Beyoncé heldur betur á óvart á dögunum þegar hún gaf söngdívunni sérhannaða svipu þakta demöntum ásamt brjóstahaldara og nærbuxum í stíl. Beyoncé varð 29 ára á dögunum

Jógvan miður sín yfir ummælum Jenis

„Þetta er bara til skammar. Ég veit að hann talar ekki fyrir hönd Færeyinga,“ segir söngvarinn Jógvan Hansen um ummæli landa síns, þingmannsins Jenis av Rana.

Sjö ráð til að koma sér í form

Gunnar Borg Sigurðsson þolfimileiðbeinandi í World Class taldi upp eftirfarandi heilræði þegar við báðum hann um sjö ráð til handa þeim sem vilja koma sér í gott líkamlegt form:

Piers Morgan fyllir í skarðið fyrir Larry King

Piers Morgan mun fylla í skarð Larrys King á CNN sjónvarpsstöðinni þegar sá síðarnefndi leggst í helgan stein í janúar. CNN sjónvarpsstöðin sagði frá þessu í dag. Piers segist vera himinlifandi yfir nýju hlutverki sínu, enda mun hann spjalla við allt frægasta fólk veraldar á hverju kvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir