Flowers syngur um Las Vegas 9. september 2010 14:00 Söngvari The Killers gefur út sína fyrstu sólóplötu í næstu viku.
Fyrsta sólóplata Brandons Flowers, söngvara The Killers, kemur út í næstu viku. Hún nefnist Flamingo og er nefnd eftir götu í heimaborg hans Las Vegas. „Ég ólst upp þarna og þessi staður er mjög nærri hjarta mínu,“ segir Flowers um Las Vegas. „Mér finnst mér bera skylda til að greina frá því hvaðan ég er og verja mín heimkynni. Þetta er staður sem margir fyrirlíta en ég elska hann. Þegar ég ólst þarna upp gátu margir ekki beðið eftir því að flytja í burtu en mér fannst það alltaf undarlegt.“ Tíu lög eru á Flamingo, flest poppaðri en The Killers hafa sent frá sér, þar á meðal smáskífulagið The Crossfire. Og að sjálfsögðu eru melódíurnar á sínum stað. Flowers samdi lögin á eins og hálfs árs tónleikaferðalagi The Killers til að fylgja eftir plötunni Day And Age. Eftir hana vildu hinir meðlimirnir taka sér gott frí en Flowers var ekki á þeim buxunum og ákvað að nota lögin í eigin sólóplötu í stað þess að geyma þau fyrir The Killers. „Ég er stanslaust að semja lög og mig langaði að fylgja þessum lögum eftir. Ég er líka hræddur um að ef ég hvíli mig í eitt ár gæti það farið illa með mig,“ sagði hann. „Ég hefði viljað hafa þetta Killers-plötu en hún hefði orðið allt öðruvísi ef ég hefði gert hana með hljómsveitinni. The Killers er ekki hætt og það er ekki hægt að álasa strákunum fyrir að hafa tekið sér hlé eftir að hafa verið á fullu síðan 2003.“ - fb
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira