Lífið

Tónleikar í Frumleikhúsi

Hljómsveitin kemur fram á minningartónleikum í Keflavík.
fréttablaðið/stefán
Hljómsveitin kemur fram á minningartónleikum í Keflavík. fréttablaðið/stefán
Tónleikar verða haldnir í Frumleikhúsinu í Keflavík í kvöld og annað kvöld til minningar um ungu drengina tvo frá Reykjanesbæ, þá Guðmund Jóhannsson og Sigfinn Pálsson, sem létust úr krabbameini fyrr á árinu.

Í kvöld koma fram Of Monsters & Men, sem sigraði í Músíktilraunum fyrr á árinu, Valdimar, Sky Reports og Ástþór Óðinn. Annað kvöld stíga á svið Klassart, Lifun, Reason to Believe og Heiður. Fyrirtækin Grágás, Hljóðkerfi.is og Geim-steinn eru á meðal styrktaraðila. Aðgangseyrir er 1.000 krónur og rennur allur ágóðinn til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.