Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Paris Hilton tvisvar mynduð í íslenskum skóm á röltinu Hótelerfinginn Paris Hilton gekk um götur Los Angeles og Salt Lake City í skóm frá Gyðju Collection í vikunni. Hönnuðurinn Sigrún Lilja fékk fréttirnar frá stílista Parisar og trúði varla sínum eigin augum þegar hún sá myndirnar. 5.2.2010 06:00
Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel. 5.2.2010 05:00
Mentell deyr í bílslysi Leikarinn William Shatner er afar sorgmæddir yfir dauða leikarans Justins Mentells sem lést í bílslysi á mánudag, aðeins 27 ára að aldri. Shatner lék á móti Mentell í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Boston Legal. „Það var mjög sorglegt að heyra um Justin Mentell. Hann hefði getað náð mjög langt. Ég vil senda samúðarkveðjur til fjölskyldu hans,“ skrifaði Shatner á Twitter-síðu sína. Mentell lék lögfræðinginn Garret Wells í Boston Legal frá 2005 til 2006. Hann lék einnig í nokkrum kvikmyndum, þar á meðal G-Force. Lögreglan í Iowa segir Mentell ekki hafa verið í bílbelti þegar bifreið hans skall á tré. 5.2.2010 05:00
Kolsvartur gleðileikur Ufsagrýlur, nýtt leikrit eftir Sjón, verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsi í kvöld. „Þetta er svartur gleðileikur, eins og sá sem við Íslendingar erum staddir í núna,“ segir Sjón. „Fjallar um trúnaðarbrestinn á milli þegnanna í litlu landi og hvernig hann fer með fólkið. Kannski ekki síst með þá sem brugðust. Það er verið að velta því fyrir sér hvort lækning sé möguleg.“ 5.2.2010 04:00
The Strokes í hljóðver á ný New York-sveitin The Strokes er byrjuð að taka upp sína fjórðu breiðskífu. Strákarnir hafa fengið í lið með sér upptökustjórann Joe Chiccarelli og upptökur fara að sjálfsögðu fram í stóra eplinu. 5.2.2010 04:00
Handtöskur fyrir Haítí Leikkonan Scarlett Johansson hefur hannað nýja tegund af handtöskum til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí. Töskurnar eru unnar í samstarfi við fyrirtækið Mango og koma í verslanir í mars. Allur ágóðinn af töskusölunni rennur til samtakanna Oxfam. „Ég er mjög ánægð með að starfa með Mango við að hanna neysluvöru sem vekur fólk til umhugsunar og um leið styrkja sjóð Oxfams vegna jarðskjálftanna á Haítí og með því að kaupa þessa tösku veitirðu fólki lífsnauðsynlega aðstoð,“ sagði Johansson. 5.2.2010 03:00
Benedikt ofkældist ekki „Við erum að reyna að gera sjósundið sem öruggast og leiðbeina þeim sem koma nýir inn í þetta,“ segir Benedikt Hjartarson, formaður Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur. 5.2.2010 03:00
Barði tilnefndur í Gautaborg Kvikmyndahátíðin í Gautaborg stendur nú yfir. Þetta er stærsta kvikmyndahátíðin á Norðurlöndum og ein af stærstu kvikmyndahátíðum í heimi. Verðlaun verða veitt annað kvöld í hinum ýmsu flokkum, meðal annars fyrir bestu tónlist í norrænni bíómynd. Þar er Barði Jóhannsson meðal fimm tilnefndra, en Barði er tilnefndur fyrir músíkina í kvikmynd Óskars Jónassonar, Reykjavík-Rotterdam. Það er til mikils að vinna, aðalverðlaunin eru eitt hundrað þúsund sænskar krónur, rúmlega 1.7 milljónir íslenskar. 5.2.2010 02:00
Ringo fann loksins Guð Bítillinn Ringo Starr segist loksins hafa fundið Guð eftir fjörutíu ára leit. Hann segir að sín andlega hlið fái að njóta sín á nýjustu plötu sinni Y Not. 5.2.2010 01:00
Orkudrykkur Völu Matt og Sollu Eiríks Súkkulaði-orkudrykkur 1 banani (gott að kæla hann í ísskáp eða taka úr frysti) 1 bolli haframúslí eða tröllahafrar 3-4 lífrænar döðlur ½ til 1 bolli lífrænar möndlur ¼-½ bolli kókosmjöl eða kókosflögur 2-3 tsk. lífrænt kakó Kalt vatn eftir smekk 4-5 klakar Allt sett í blandara og þeytt saman. Ef blandarinn er ekki mjög kröftugur þá er ráð að setja fyrst banana og múslí og hræra saman. Setja svo restina í blandarann og hræra allt saman í lokin. Vatn er sett eftir smekk eftir því hvað þið viljið hafa drykkinn þykkan. Njótið svo vel, því hér er hollt sælgæti á ferð! 4.2.2010 19:30
Bo á Akureyri um helgina „Ég mun taka úrval af lögunum mínum sem ég hef hljóðritað í gegnum tíðina. Af nóg er að taka," svarar Björgvin Halldórsson sem spilar með hljómsveitinni VON á veitingahúsinu Vésmiðjunni á Akureyri laugardagskvöldið 6. febrúar næstkomandi. „Ég hef nokkrum sinnum spilað sem gestur með þessum strákum. Fín hljómsveit," bætir hann við. Á að skella sér á skíði í leiðinni? „Ég hef aldrei komið á skíði á æfinni og mun ekki byrja núna. En Akureyrarbær er sjarmerandi bær eins og Hafnarfjörður og hefur upp á margt að bjóða," svarar Björgvin. „Ég mun ekki hafa tíma til að slappa af mikið en mun njóta hverrar mínútu," segir Björgvin. 4.2.2010 12:30
Þessar lýtaaðgerðir hljóta að kosta - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá Pamelu Anderson, 42 ára, ásamt lífverði í næturklúbb í Hollywood helgina sem leið. Hún vinnur sér inn aura með því að mæta á ýmsar uppákomur gegn greiðslu enda kominn timi til að hún vinni sér inn aura til að greiða skuldahalasúpuna sem hún dregur á eftir sér. 4.2.2010 09:30
Freddy Krueger mesta illmennið Freddy Krueger hefur verið kosinn mesta illmenni hvíta tjaldsins í nýrri könnun tímaritsins SFX. Krüger gerði garðinn frægan í hryllingsmyndinni The Nightmare on Elm Street. Næst á eftir Krueger komu Pinhead úr Hellraiser og Michael Myers úr Halloween. 4.2.2010 06:30
Best í myrkraherberginu Jóna Þorvaldsdóttir sýnir um þessar mundir ljósmyndir í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur í Grófarhúsi. Sýninguna nefnir hún Skynjanir. Jóna notar aðferðir frá upphafsárum ljósmyndatækninnar. 4.2.2010 06:30
Býst ekki við styttu James Cameron, leikstjóri stórmyndarinnar Avatar, býst ekk við að fá Óskarsverðlaunin fyrir bestu myndina í ár, þrátt fyrir að myndin sé tilnefnd. Hann vonar að fyrrverandi eiginkona sín, Kathryn Bigelow, fái styttuna, en hún leikstýrði The Hurt Locker – sem þykir afar sigurstrangleg. 4.2.2010 06:30
Gunnar leitar að Sollu Stirðu „Það verða opnar prufur og þær fara fram laugardaginn 13. febrúar á Hilton Nordica-hóteli við Suðurlandsbraut. Hefjast stundvíslega klukkan tíu og fólk á að mæta tímanlega því við finnum fyrir miklum áhuga og búumst við miklum fjölda,“ segir Gunnar Helgason, leikstjóri Latabæjarskemmtunarinnar sem fram fer í Laugardalshöll hinn 27. mars. 4.2.2010 06:15
Áfram munaðarlaus „Þetta hefur gengið mjög vel. Við náðum að borga upp yfirdráttinn eftir síðustu helgi,“ segir Hannes Óli Ágústsson, einn leikaranna sem standa að leiksýningunni Munaðarlaus sem hefur verið sýnt í Norræna húsinu undanfarið. „Þessi sýning er kannski vonarneisti fyrir aðra nýútskrifaða leikara. Það sést allavega að það er hægt að gera svona án styrkja og láta það ganga upp með hagsýni.“ 4.2.2010 06:00
Fyrirtæki Tiger-tryggð Fyrirtæki sem fá frægar Hollywood-stjörnur sem talsmenn eru byrjuð að tryggja sig fyrir ýmsu sem getur gerst í einkalífi stjarnanna. Þetta gera þau til að tryggja sig fyrir fjárhagslegu tjóni eins og fyrirtækin sem styrktu Tiger Woods urðu fyrir í kjölfarið á því að upp komst um hjásvæfur hans. 4.2.2010 06:00
FM Belfast á Hróarskeldu Hljómsveitin FM Belfast spilar á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í byrjun júlí. Áður hafði þungarokksveitin Sólstafir fengið boð um að spila á hátíðinni. Íslensk atriði hafa aldrei verið fleiri en tvö á hátíðinni og því verður forvitnilegt að sjá hvort fleiri bætist við þegar nær dregur. Í fyrra stigu þar á svið hljómsveitirnar Hjaltalín og Kira Kira. Alls hafa 26 hljómsveitir verið tilkynntar á hátíðina í ár, þar á meðal Muse, Pavement og Jack Johnson. 4.2.2010 06:00
Tvö höfuð Jóhannesar Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur Þorgeir Hávarsson í leikritinu Gerplu sem frumsýnt verður 12. febrúar. Leikmunadeild Þjóðleikhússins er tilbúin með fremur óhefðbundinn leikmun tengdan honum. 4.2.2010 06:00
Svavar spilar fyrir Ástrala Trúbadorinn Svavar Knútur er nú á ferðalagi um Ástralíu og sefur í heimahúsum hjá vinum og kunningjum. Platan Kvöldvaka selst eins og kaldur frostpinni í heitri Suðurálfunni. 4.2.2010 06:00
Söngskólinn með Djammstaff Nemendaópera Söngskólans sýnir óperuna Don Djammstaff í samvinnu við Íslensku óperuna. Óperan er samsett úr sautján atriðum úr fjórtán óperum eftir níu tónskáld og sungin á fjórum tungumálum. Söguþráðurinn snýst um ævintýri vampírunnar Don Djammstaff, sem er yfir sig ástfanginn af mennskri konu, Paminu, og setur allt í uppnám til að ná ástum hennar. Inn í framvinduna fléttast hefndir kvenna og vald örlaganna. 4.2.2010 06:00
Sigurhátíð sama hvernig fer „Við höldum sigurhátíð í Sjallanum á laugardagskvöldið sama hvernig fer,“ segir Valur Freyr Halldórsson, trommuleikari og söngvari Hvanndalsbræðra. Hljómsveitin flytur sem kunnugt er eitt laganna sex í úrslitum Söngvakeppninnar á laugardaginn. Það heitir Gleði og glens og er eina lagið í keppninni sem er sungið á íslensku. 4.2.2010 06:00
Solla og Vala í sjónvarpiðdag Valgerður Matthíasdóttir og Sólveig Eiríksdóttir verða með vikulega uppskrift í Fréttablaðinu á fimmtudögum. Sólveig sýnir síðan réttu handtökin sama kvöld í Íslandi í dag á Stöð 2. 4.2.2010 06:00
Empire velur verstu myndirnar Lesendur kvikmyndatímaritsins Empire hafa valið verstu kvikmyndir Hollywood og á toppnum tróna góðkunningjar sambærilegra lista. Sú kvikmynd sem þykir allra verst er Batman & Robin með George Clooney í 4.2.2010 06:00
Þóra framleiðir myndir í Noregi „Ég var boðuð í atvinnuviðtal um leið og mér var sagt upp á RÚV,“ segir Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi sjónvarpsmaður í Kastljósinu. 4.2.2010 05:00
Gerir mynd um Richards Leikarinn Johnny Depp er að undirbúa heimildarmynd um Keith Richards, gítarleikara Rolling Stones. Þeir tveir hafa verið vinir í nokkurn tíma og Depp hefur viðurkennt að hafa byggt persónu sína í myndunum Pirates of the 4.2.2010 05:00
Fox ræðir við Conan Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox hefur rætt við Conan O"Brien um að hann stjórni spjallþætti á stöðinni. Stutt er síðan Conan yfirgaf kvöldþátt 4.2.2010 05:00
Endalaus sambandsslit Í kvöld frumsýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk, Endalaus eftir Alan Lucien Öyen, þrjátíu og tveggja ára norskan danshöfund á uppleið. Hann kom hingað í boði Kristínar Hall hjá dansflokknum í byrjun desember og samdi verkið á meðan hann dvaldist hér. 4.2.2010 05:00
Sjálfkrafa á jaðarinn Í kvöld heldur Þorvaldur Þór Þorvaldsson tónleika á Café Rosenberg ásamt hljómsveit. Með honum leikur djasslandsliðið; þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Óskar Guðjónsson á saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa. Leikin verður tónlist af plötu Þorvaldar sem kom út fyrir síðustu jól og heitir í höfuðið á tónlistarmanninum. 4.2.2010 04:00
Erótík í þrívídd Leikstjórinn Tinto Brass lýsti því á blaðamannafundi í Róm að hann langaði til að gera erótíska kvikmynd í þrívídd og nota sömu tækni og var notuð í Avatar. 4.2.2010 04:00
Átti að setja Björgvin á róandi lyf - myndband Snemma kom í ljós að Björgvin Páll Gustavsson landsliðsmaður í handbolta var afar fyrirferðarmikið barn. Eins og móðir hans lýsir í nærmynd sem Ísland í dag gerði um kappann. „Þegar hann var níu ára komu upp allskonar vandamál í skóla og á skóladagheimili sem hann var á og eins bara í hverfinu... og það var ákveðið að senda hann í greiningu." Björgvin dvaldi á barna- og unglingageðdeild í sex vikur en fékk að fara heim um helgar. Hann var talinn á mörkum þess að vera ófvirkur og mælst var til þess að hann yrð settur á róandi lyf. 3.2.2010 08:30
Baltasar gerir kvikmynd eftir einleik Jóns Atla Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpinu. Hann sótti innblásur sinn til ótrúlegrar þrekraunar Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að skip hans, Hellisey VE-503, fórst við Vestmannaeyjar aðfaranótt 11.mars árið 1984. Fjórir vinir Guðlaugs fórust en hann komst einn lífs af eftir að hafa synt rúma fimm kílómetra og verið sex tíma í ísköldu Atlantshafinu. 3.2.2010 05:45
Gulljakkinn varð bronsjakki „Eigum við ekki að segja að jakkinn sé bronslitaður,“ segir varnarjaxlinn Ingimundur Ingimundarson. 3.2.2010 05:00
Kaffibarssjósund endaði á spítala „Það endaði einn á spítala síðast – ofkældist næstum því. Það var reyndar ég. Ég fór aðeins of langt út í,“ segir Karl West, formaður sjósundsselskapar Kaffibarsins. 3.2.2010 03:00
Broderick í sjónvarpið Gæðaleikarinn Matthew Broderick hefur tekið að sér að leika aðalhlutverkið í nýjum gamanþáttum NBC-sjónvarpsstöðvarinnar. Þeir heita Beach Lane og fjalla um þekktan rithöfund sem tekur að sér að ritstýra dagblaði í smábæ. Broderick bauðst hlutverkið fyrir ári en ákvað loks að láta slag standa eftir að hafa lesið handritið, að því er kemur fram í Hollywood Reporter. Væntanlega hefur það síðan ekki skemmt fyrir að eiginkona Brodericks, Sarah Jessica Parker, hefur átt farsælan feril í sjónvarpinu, í þáttunum Sex and the City. 3.2.2010 03:00
Bíður eftir Michael Janet Jackson, systir hins látna Michaels Jackson, bíður enn eftir því að heyra röddina hans í símanum sínum. Þetta kemur fram í viðtali við söngkonuna í tímaritinu Wonderland. „Stundum hringir síminn og þá vona ég að þetta sé hann,“ segir Janet í viðtalinu en hún hefur haldið sig til hlés eftir að bróðir hennar fór yfir móðuna miklu og aðeins birst opinberlega til að styðja við bakið á börnum Jacksons. „Fólk syrgir bara á mismunandi hátt.“ 3.2.2010 02:00
Hera Björk: Auðvitað bregður manni „Auðvitað bregður manni svona fyrst en svo er þetta nú fljótt að jafna sig. Sérstaklega þegar maður minnir sjálfan sig á í hvaða keppni maður er," segir Hera Björk Þórhallsdóttir. 2.2.2010 10:30
Lagið hans Bubba líka stolið? Á meðfylgjandi link má hlusta á samanburð á lögunum One more day sem Jogvan Hansen syngur í forkeppni Eurovision og Svefnljóð með Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Erindin í lögunum eru nauðalík eins og heyra má hér. „Mér finnst þetta varla svara vert. Þetta er árleg uppákoma sem tengist þessari keppni," sagði Örlygur Smári í samtali við Vísi í gær þegar við höfðum samband til að fá endanlega úr því skorið hvort lag hans og Heru Bjarkar, Je ne sais quoi, sé stolið eins og haldið er fram. 2.2.2010 06:15
Stoltur af kjúklingnum Egill Einarsson hefur verið stoppaður úti á götu, knúsaður og kysstur fyrir framgöngu Arons Pálmarssonar á EM. Egill segir Aron skólabókardæmi um mann sem nær sínum markmiðum. 2.2.2010 06:00
Anita á frumsýningu með Fergie Íslenska leikkonan Anita Briem var meðal stjarnanna í Hollywood þegar kvikmyndin When in Rome var frumsýnd. Aðdáendur flykktust að stjörnunum þegar þær mættu prúðbúnar í El Capitan-kvikmyndahúsið á miðvikudaginn í síðustu viku. When in Rome hefur reyndar ekki fengið rosalega góða dóma en hún skartar Kristen Bell, sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur ættu að kannast við úr Gossip Girls, og Josh Duhamel, eiginmanni Fergie úr The Black Eyed Peas, í aðalhlutverkum auk Anjelicu Houston og Jon Heder, nördaleikarans geðþekka úr Napeolon Dynamite og Blades of Glory. 2.2.2010 06:00
Norðurlöndin í sérflokki Jóhannes Steinn Jóhannesson, matreiðslumeistari á veitingastaðnum VOX, tók þátt í hinni árlegu kokkakeppni Nordic Chef of the Year sem fram fór í Herning í Danmörku á miðvikudag. Tíu kokkar tóku þátt í keppninni og lenti Jóhannes Steinn í fjórða sæti. „Þetta er ein erfiðasta kokkakeppni í heimi og eru það kokkar ársins frá hverju landi sem taka þátt. Mér gekk ekki nógu vel því ég lenti í tímahraki með aðalréttinn,“ segir Jóhannes, sem var valinn matreiðslumeistari ársins 2009, annað árið í röð. 2.2.2010 06:00
Bronser-gel keppir við Silver Vinirnir Logi Tómasson og Kolbeinn Þórðarson sem eru í 4. bekk í Digranesskóla hafa búið til sitt eigið hárgel sem nefnist Bronser. Fetar það í fótspor gelsins Silver sem silfur- og bronsdrengirnir Logi Geirsson og Björgvin Páll Gústafsson framleiða. 2.2.2010 04:30
Google kjaftaði frá Söngkonan Kate Perry komst að því í gegnum google.com að unnusti hennar, Russell Brand, hyggðist biðja hennar. Hún viðurkenndi í samtali við fjölmiðla að hún gúgglaði stundum sjálfa sig og sá þar að vefmiðlar voru farnir að fjalla um hvers vegna Russell væri að kaupa hringa. „Þetta er bara svona, því miður,“ sagði Kate. 2.2.2010 03:00
Skaut krókódíl með skammbyssu „Það þurfti bara eitt skot við brosið í munnvikinu,“ segir Páll Reynisson, eigandi Veiðisafnsins á Stokkseyri. Hann fór til Suður-Afríku í nóvember þar sem hann veiddi í fyrsta sinn krókódíl með skambyssu. Auk þess sem hann felldi hann strút með skambyssu og nokkrar tegundir af antílópum. Honum tókst þó ekki að klófesta híenu þrátt fyrir að hafa legið í leyni í þrjár nætur, tilbúinn með byssuna. 2.2.2010 02:30