Barði tilnefndur í Gautaborg 5. febrúar 2010 02:00 Ekki í kjólfötum Barði Jóhannsson er á Gautaborgarhátíðinni þar sem hann er tilnefndur fyrir tónlistina í Reykjavík Rotterdam.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg stendur nú yfir. Þetta er stærsta kvikmyndahátíðin á Norðurlöndum og ein af stærstu kvikmyndahátíðum í heimi. Verðlaun verða veitt annað kvöld í hinum ýmsu flokkum, meðal annars fyrir bestu tónlist í norrænni bíómynd. Þar er Barði Jóhannsson meðal fimm tilnefndra, en Barði er tilnefndur fyrir músíkina í kvikmynd Óskars Jónassonar, Reykjavík-Rotterdam. Það er til mikils að vinna, aðalverðlaunin eru eitt hundrað þúsund sænskar krónur, rúmlega 1.7 milljónir íslenskar. „Það er eitthvað,“ segir Barði, sem er kominn til Gautaborgar. „Þetta er í fyrsta skipti sem þessi verðlaun eru veitt á hátíðinni og þetta er mjög skemmtilegt fyrir mig.“ Barði fékk Edduverðlaun fyrir sömu músík árið 2008. „Þá var ég spila í útlöndum og gat ekki tekið á móti verðlaununum. Gat hvorki þakkað Óskari né Einari Tönsberg, sem á stóran hlut í þessari músík. Ég er ekki búinn að undirbúa ræðuna og kann hvorki sænsku né finnsku. Ég kann reyndar nokkur orð í latínu.“ Barði segist ekki ætla að vera í kjólfötum þegar hann mætir á verðlaunaafhendinguna á laugardalskvöldið - „enda getur James Bond bara séð um það. Ég er alltaf í sömu fötunum á svona hátíðum, gömlum seventís jakkaföt sem ég keypti einhvern tímann.“ Nýjustu verkefni Barða eru að gera músík í nýrri syrpu af Rétti á Stöð 2 og svo gerir hann músík fyrir bandaríska heimildarmynd um brimbrettasportið. Á Gautaborgarhátíðinni er kvikmynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, einnig tilnefnd. Dagur Kári hefur verið sigursæll á hátíðinni. Árið 2003 hlaut mynd hans Nói Albinói þrenn verðlaun og Voksne Mennesker hlaut aðalverðlaunin árið 2006. - drg
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira