Fleiri fréttir

Fjölskyldan syngur með Regínu

Regína Ósk Óskarsdóttir heldur tvenna jólatónleika um helgina. Þar mun hún koma fram ásamt stúlkna- og barnakór auk þess sem eiginmaður hennar og dóttir munu syngja á tónleikunum.

Milli himins og jarðar

Nú standa yfir æfingar á sviðsetningu Vesturports og Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi á Faust. Leikmyndina fyrir sýninguna gerir Axel Hallkell Jóhannesson en hún er afar sérstök og mótar í raun þessa aldagömlu arfsögn vestrænnar menningar alveg upp á nýtt. Sá Faust sem leikhúsgestir munu sjá frá frumsýningunni þann 15. janúar verður allt allt öðruvísi en leikhúsgestir hafa til þessa séð og þótt víðar væri leitað.

Seabear lýsir eftir upphitun

Norðrið nefnist tónleikaröð sem Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) og Iceland Express standa saman að. Nú er auglýst eftir upphitunaratriði fyrir fjórðu tónleikaferðina, sem leidd verður af hljómsveitinni Seabear. Markmiðið er að styðja við bakið á íslenskum tónlistarmönnum og hljómsveitum sem eru að hasla sér völl í Þýskalandi.

Elin skilur við Tiger

Tímaritið People vill meina að Elin Nordegren, eiginkona Tiger Woods, hafi ákveðið að skilja við kylfinginn strax eftir jól. Ástæðan fyrir því að hún mun ekki flytja út fyrr er sú að hún vill að börnin fái að njóta jólanna með báðum foreldrum.

Brotnaði saman í Soweto

Ungfrú Ísland, Guðrún Dögg Rúnarsdóttir, er nýkomin heim eftir sex vikna ævintýri í Suður-Afríku þar sem hún tók þátt í keppninni Ungfrú heimur. Guðrún Dögg segir að það hafi verið mjög góð reynsla að taka þátt í keppninni en engu að síður erfitt. „Við fengum ekki mikinn svefn. Við vorum alltaf uppstrílaðar og fínar allan daginn. Þetta var rosalega mikil keyrsla," segir hún.

Hrifinn af leikkonu

Rapparinn P. Diddy fór um víðan völl í nýlegu viðtali við tímaritið Playboy. Þar segist hann hafa misst sveindóminn þrettán ára og að hann hafi verið heltekinn af stúlkum og kynlífi á þeim aldri. Í viðtalinu viðurkennir hann einnig að hafa átt í ástarsambandi við fræga leikkonu en neitar að segja hver hún er.

Ekkert að spá í sigurgönguna

Nú er víða verið að gera upp áratuginn sem er að líða. Þegar plötur áratugarins eru teknar saman er nánast öruggt að einhver plata með Sigur Rós ratar á listann. Þótt Ágætis byrjun hafi komið út árið 1999 og tilheyri því síðustu öld í íslenskum annálum kom hún út árið 2000 á alþjóðamarkaði. Síðan komu ( ), Takk og Með suð í eyrum við spilum endalaust, auk ýmissa aukaplatna.

Spennt fyrir Hangover 2

Heather Graham segist ekki geta beðið eftir að leika í framhaldsmynd af kvikmyndinni The Hangover. Leikkonan segist eiga eftir að sjá handritið, en hlakkar til að leika óléttan strippara. Í viðtali við vefsíðuna Eonline.com segist leikkonan þegar vera farin að gefa handritshöfundinum Todd Phillips hugmyndir fyrir karakter sinn, Jade.

Fyrsta jólalag leynigestsins

Hljómsveitin Ullarhattarnir heldur sína tólftu Þorláksmessutónleika á Nasa næstkomandi miðvikudag þar sem spiluð verða jólalög í bland við þekktar dægurperlur. „Þetta er búið að vera ótrúlega vinælt,“ segir Eyjólfur Kristjánsson.

Jónsi og Alex sætastir

Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag er Sigur Rós víða með plötur á listum yfir bestu plötur áratugarins. Jónsi kemur sterkur inn sjálfur með Alex Somers kærastanum sínum, en þeir eru valdir sætasta parið af tímaritinu Out, vinsælasta tímariti samkynhneigðra í Bandaríkjunum.

Daryl vill enga plastbolla

Daryl Hannah vill að allir hætti að nota plastbolla. Leikkonan, sem er 49 ára, er mikill náttúruverndarsinni og hefur nokkrum sinnum verið handtekin fyrir róttækar aðgerðir. Í viðtali við breska dagblaðið The Sun segist hún vilja að fólk fari að verða meðvitaðra um umhverfi sitt og trúir því að það þurfi aðeins litlar breytingar til að hafa áhrif.

Indí í Háteigskirkju

Í Háteigskirkju í kvöld ætla ungir og framsæknir listamenn að koma saman og flytja frumsamið efni. Þetta eru hljómsveitirnar Útidúr og Stórsveit Mukkaló, söngvaskáldið Júníus Meyvant og ljóðskáldið Ingunn Huld.

Fuller með nýjan þátt

Tónlistarmógúllinn Simon Fuller er að undirbúa nýjan raunveruleikaþátt sem verður sendur út á netinu og í útvarpinu. Þátturinn nefnist If I Can Dream, eða Ef ég gæti látið mig dreyma, og fjallar um líf þriggja ungra leikara, tónlistarmanns og fyrirsætu.

Kýr sparkaði í Parker

Sarah Jessica Parker, sem er þekktust fyrir leik sinn í Sex and the City, lenti í því að kýr sparkaði í hana við tökur á myndinni Did You Hear about the Morgans? Atvikið var notað í loka­útgáfu myndarinnar, Parker til mikillar óánægju. „Mér fannst ekki gaman að reyna að mjólka kú, fara á hestbak eða skjóta úr riffli. Mér finnst ýmislegt annað skemmtilegra," sagði hún. „Kýrin sparkaði í mig í miðju atriði og þeir settu það í myndina. Það geta allir séð það. En ég finn til með kúnni. Ég átti ekkert að vera þarna og hún vissi það."

Basterds fékk tilnefningar

Kvikmyndirnar Inglorious Basterds, Precious og Up in the Air hlutu þrjár tilnefningar hver til hinna Screen Actors Guild-verðlaunanna, sem bandarískir kvikmynda- og sjónvarpsleikarar standa á bak við.

Aftur hættur í Chili Peppers

Gítarleikarinn John Frusciante er hættur í hljómsveitinni Red Hot Chili Peppers. Hann segist á heimasíðu sinni í raun hafa hætt fyrir ári. „Þegar ég hætti í hljómsveitinni fyrir rúmu ári vorum við komnir í frí um óákveðinn tíma," skrifaði Frusciante. „Það var engin dramatík eða reiði í gangi og hinir strákarnir voru mjög skilningsríkir. Þeir skilja að ég vil gera það sem gerir mig hamingjusaman og þannig líður mér líka gagnvart þeim. Tónlistin sem ég aðhyllist núna hefur einfaldlega leitt mig í aðra átt," skrifaði hann og bætti við:

Stónsmenn bragða kæsta skötu

Hljómsveitin Stóns heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri fara fram í kvöld á Græna hattinum á Akureyri og þeir seinni annað kvöld á Sódómu í Reykjavík. Blaðamaður hitti þá á Þremur frökkum og lét þá smakka kæsta skötu. Enda ekki á hverjum degi sem Stóns fá sér skötu.

Keyrði á

Peaches Geldof, dóttir tónlistarmannsins Bob Geldof, var á leið til Disneylands ásamt vinum sínum þegar þau lentu í hörðum árekstri. Bíllinn skemmdist illa en vinahópurinn slapp þó með skrekkinn og eftir að hafa skoðað skemmdirnar tóku þau til Twittersins og deildu reynslunni með umheiminum. „Ég trúi ekki að við skulum enn vera á lífi. Bíllinn er skemmdur en við höldum ferðinni áfram til Disneylands," ritaði stúlkan.

Kaupir skáldsögu

Leikstjórinn Steven Spielberg hefur keypt kvikmyndaréttinn að skáldsögunni Warhorse eftir Michael Morpurgo sem kom út árið 1982.

Týnt viðtal við Lennon birt

Viðtal sem var tekið við John Lennon og Yoko Ono árið 1968 hefur loksins verið birt í heild sinni, 41 ári síðar. Það voru breski háskólaneminn Maurice Hindle og skólafélagi hans sem tóku viðtalið, sem hefur nú verið birt í blaðinu New Statesman. Það var John Lennon sjálfur sem sótti nemana tvo á lestarstöð skammt frá heimili sínu í Surrey.

Þrír tenórar með stórtónleika

„Ég hef aldrei séð eins flott prógram. Þetta verða gríðarlega flottir tónleikar,“ segir tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Hann, ásamt tenórunum Kolbeini Ketilssyni og Snorra Wium, syngur á stórtónleikum í Háskólabíói 3. janúar. Með þeim á sviðinu verður Sinfóníuhljómsveit Íslands og karlakórinn Fóstbræður.

Dikta á flugi

Hljómsveitin Dikta er á miklu flugi þessa dagana. Nýja platan Get it together er uppseld frá útgefanda en nýtt upplag er væntanlegt í dag. Hljómsveitin smekkfyllti Vídalínskirkju í Garðabæ á dögunum og spilaði þar með Ourlives og Pétri Ben. Í kvöld spilar Dikta á Xmas-tónleikum Xins á Sódómu og heldur svo útgáfutónleika á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld.

Love úthúðar dóttur sinni á internetinu

Dóttir söngkonunnar Courtney Love fór fram á að föðuramma sín fengi forræði yfir henni þar til hún yrði sjálfráða. Dómur var felldur í málinu í vikunni þar sem föðurömmu Francis Bean Cobain var veitt forræði yfir stúlkunni þar til í vor, en þá verður Francis Bean átján ára gömul og sjálfráða. Þetta er í annað sinn sem Love missir forræðið yfir Francis Bean.

Martröð Beckhams

Fótboltakappinn David Beckham var viðmælandi í spjallþætti George Lopez í vikunni. Aðspurður sagði hann það vera martröð líkast stundum að snæða með Tom Cruise og eiginkonu hans Katie Holmes.

Watson með hæstu launin

Emma Watson er hæst launaða leikkona áratugarins. Watson leikur Hermione Granger í kvikmyndunum um Harry Potter sem hófu göngu sína 2001. Hún er með hærri laun en leikkonur á borð við Juliu Roberts, Halle Berry og Cameron Diaz og er nú komin í heimsmetabók Guinness fyrir vikið.

Pirraður - myndir

Breski söngvarinn var umvafinn félögum sínum fyrir utan upptökuver í London. „Það er ekkert vit í að sjá eftir hlutum. Lífið er of stutt til að hafa áhyggjur af einhverju sem þú sagðir eða gerðir," sagði Robbie. Eins og myndirnar sýna var Robbie pirraður þegar hann kom auga á ljósmyndarana sem mynduðu hann.

Býður UNICEF að nota lagið sitt

Matthías Ægisson, yngsti bróðir Gylfa Ægissonar, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu, Vegferð. Á plötunni eru tíu lög af fjölbreyttum toga sem voru samin á 33 ára tímabili.

Sigourney snýr aftur

James Cameron, leikstjóri Avatar, var sniðugur þegar hann taldi Sigourney Weaver á að leika dr. Grace Augustine í myndinni. Dr. Augustine er sú sem hannar Avatar-líkamana sem gerir mönnunum kleift að rannsaka hina forboðnu plánetu Pandora og komast í kynni Na'vi-þjóðflokkinn.

Þrjár systur með jólatónleika

„Við höfum ekki sungið saman í dágóðan tíma og þetta er alveg æðislegt,“ segir leik- og söngkonan Þórunn Lárusdóttur. Hún syngur ásamt systrum sínum Ingibjörgu og Dísellu á jólatónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudagskvöld.

Baltasar hræðist ekki Mel Gibson

„Nei, ég held að þetta sé ekkert ssamsæri gegn mér, þessir menn hafa eitthvað annað við tímann að gera. En þetta eru stór nöfn til að fara í samkeppni við," segir Baltasar Kormákur, kvikmyndaleikstjóri.Nýverið var tilkynnt að sjálfur Mel Gibson hyggðist gera víkingamynd og hefði fengið Leonardo DiCaprio í aðahlutverkið. Stór nöfn, svo ekki sé meira sagt. Baltasar hefur, eins og Fréttablaðið hefur greint frá, einnig verið að undirbúa risastóra víkingamynd sem taka á upp hér á Íslandi. Um yrði að ræða dýrustu kvikmynd Íslandssögunnar og hafa samningaviðræður um framleiðslu og dreifingu staðið yfir við eitt af stærri framleiðslufyrirtækjum Hollywood að undanförnu.

Skrifuð í gegnum tölvupóst

„Ég er búin að vera að lesa í yngri bekkjum grunnskóla í fæðingarorlofinu mínu og það er alveg magnað hvað þau taka vel í þetta,“ segir Ingibjörg Vilbergsdóttir, annar höfundur bókarinnar Flugvélakossar. Bókina skrifaði hún með tengdamóður sinni Nancy Myer sem er búsett í Bandaríkjunum, en bókin fjallar um Daníel og ömmu hans sem hann saknar mikið þegar hún er fjarri, svo hann lærir leið til að senda henni flugvélakossa.

Óvænt nöfn á toppnum fyrir bókajólin

Fáir hrukku í kút þegar Arnaldur Indriðason þeyttist á topp metsölulista Eymundssonar hinn 1. nóvember með bókinni Svörtuloft. En sá maður er ríkur í dag sem veðjaði á að honum yrði velt úr sessi af sjálfshjálparbókinni Meiri hamingja eftir Tal Ben-Shahar og að fast á hæla hans í þriðja sætinu sæti sjálfur Egill „þykki“ Einarsson með Mannasiðabókina sína. Þegar jólaverslunin fikrar sig nær hámarkinu má flestum vera ljóst að miðað við bókainnkaupin vill íslenska bókaþjóðin annaðhvort verða hamingjusöm á ný eða læra mannasiði að hætti Gillzenegger.

Mannfræðingur með myndavél

„Námið sem ég var í tvinnar saman ljósmyndun og borgarskipulag, það er að segja hvernig fólk nýtir almenningsrými á mismunandi vegu og fleira í þeim dúr. Ég er menntaður mannfræðingur en hef alltaf haft áhuga á ljósmyndun líka og fannst skemmtilegt að blanda ljósmyndun saman við félags- og mannfræðilegar rannsóknir," útskýrir Kolbrún Vaka Helgadóttir, sem lauk nýverið meistaranámi við Goldsmiths-háskólann í London.

Stjarnfræðilegur Cameron

Peningamönnum í Hollywood rennur kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þeir heyra James Cameron nefndan á nafn. Kannski er það engin furða, því Cameron hikar ekki við að reyna að breyta kvikmyndasögunni einn síns liðs.

Börnin breyttu lífssýn Lopez

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez segist líta lífið öðrum augum eftir að hún eignaðist tvíburana Max og Emme fyrir 21 mánuði. Hún segir einnig að eiginmaður hennar, söngvarinn Marc Anthony, sé gríðarlega mikilvægur hlekkur í sínu lífi. „Að eignast börnin hefur breytt mér upp að vissu marki. Það fékk mig til að líta í eigin barm og lagfæra það sem ég þurfti að bæta. Ég þurfti að læra að elska sjálfa mig og hugsa betur um mig," sagði Lopez.

Nýjar stórstjörnur

Á vefsíðu Forbes er spáð fyrir um stjörnur næsta árs. Árið 2009 var einstakt ár fyrir nýstirnin Robert Pattinson og Kirsten Stewart sem léku saman í kvikmyndinni Twilight sem sló svo eftirminnilega í gegn. Forbes spáir því þó að tveir meðleikarar þeirra verði brennheitir á nýju ári.

Styttist í Bjarnfreðarson

Fáheyrt er að beðið sé eftir íslenskri bíómynd með jafn mikilli eftirvæntingu og beðið er eftir Bjarnfreðarsyni.Myndin verður forsýnd um helgina í Sambíóunum og verður miðasala á sýningarnar þar. Myndin tekur upp þráðinn þar sem Fangavaktin skildi við hana eða þegar Georg losnar úr fangelsi og reynir að hefja nýtt líf. Jafnframt verður brugðið upp svipmyndum af æsku Georgs sem var í meira lagi undarleg og stjórnað af baráttukonunni Bjarnfreði.

Ari Eldjárn gerir gríndisk

Platan Grín skrín með gamanmálum Ara Eldjárn kemur út í dag og verður til í Eymundsson. Þar eru grínatriði sem Ari hefur verið að troða upp með á þessu ári, bæði í útvarpi og á sviði. „Þarna eru nokkrir sketsar, meðal annars Bubbi á færibandi, og heilt uppistand. Þar er fjallað um Björgvin G. Sigurðsson, Búsáhaldabyltinguna, Hr. Hafnarfjörð, leðurhomma, Bubba í Idol 1980, Þursaflokkinn í Playstation og fleira,“ segir Ari.

Bókalestur og jólaglögg

Bókaupplestur er orðinn að árlegum viðburði fyrir jól á skemmtistaðnum Boston. Upplesturinn fer fram á laugardag og eru það rithöfundarnir Oddný Eir Ævarsdóttir, Huldar Breiðfjörð, Kristín Ómarsdóttir, Jón Karl Helgason og Snorri Ásmundsson sem munu lesa upp úr bókum sínum.

Högni grínast fyrir Snorra

Snorri Helgason heldur útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Upphaflega stóð til að Ríó tríóið og Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar myndu hita upp, en Sigríður forfallaðist. Þá kom félagi hennar í Hjaltalín, kammergoðið Högni Egilsson, sterkur inn og var vélaður til að hlaupa í skarðið.

Dæmd á skólabekk

Lindsay Lohan verður að sækja áfengisfræðslutíma vikulega. Leikkonan, sem er á skilorði vegna ölvunaraksturs, hefur nú verið dæmd til að sækja fræðslu um áhrif áfengis og verða fræðslutímarnir að vera algjört forgangsatriði hjá henni. Dómurinn var kveðinn upp í dómsalnum í Beverly Hills á þriðjudag og samkvæmt slúðurvefsíðunni TMZ sagði dómarinn Marsha Revel að það væri sama hvað kæmi upp hjá Lohan, hvort sem það tengdist vinnu eða ekki þá yrði hún að mæta í tímana.

Enn vinir

Leikararnir Jake Gyllenhaal og Reese Whitherspoon eru hætt saman. Tímaritið People flutti fyrst fréttir af þessu fyrir nokkrum vikum síðan en talsmenn leikaranna vísuðu á bug þeim sögusögnum. Nú hafa talsmenn þeirra þó ákveðið að þegja og þykir það staðfesta orðróminn.

Crazy er besta lagið

Nú hefur tímaritið Rolling Stone fylgt eftir lista sínum yfir bestu plötur áratugarins með lista yfir 100 bestu lögin. Ekkert íslenskt lag er á þessum lista en eins og kunnugt er voru þrjár íslenskar plötur á listanum yfir bestu plöturnar. Það er alls kyns vinsældapopp og rokkslagarar sem spekingar Rolling Stone velja á listann, en besta lagið er Crazy með Gnarls Barkley.

Tvær spila á Jólagraut

Hljómsveitirnar Hjálmar og Hjaltalín leiða sama hesta sína og fagna jólahátíðinni með tónleikum á Nasa á laugardagskvöld. Samkoman er haldin undir merkjum tónlistarveislunnar Jólagrautsins sem hefur verið haldin í kringum hátíðirnar frá árinu 2005. Þá léku Hjálmar, Mugison og Trabant á eftirminnilegum tónleikum. Hjálmar eru að fagna nýrri plötu sinni sem nefnist IV og Hjaltalín gaf á dögunum út sína aðra plötu, Terminal. Miðaverð á tónleikana er 2.000 krónur í forsölu en verður 2.500 krónur við hurð á tónleikadag. Miðar fást í Skífunni og á Midi.is.

Sjá næstu 50 fréttir