Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvær tónlistarhátíðir um ferðahelgi Tvær tónlistarhátíðir verða haldnar á Akureyri og í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina, þessa fyrstu stóru ferðahelgi ársins. Önnur heitir AIM-festival en hin Norden Blues Festival. 27.5.2009 04:30
Kylie gengur í það heilaga Ástralska söngstjarnan Kylie Minogue er farin að búa sig undir væntanlegt brúðkaup því spænski kærastinn hennar, Andreas Velencoso, hefur beðið hana um að giftast sér. Andreas bar upp bónorðið yfir rómantískum kvöldverði í New York og samkvæmt heimildum Grazia-tímaritsins svífa ástríðurnar yfir vötnum hjá turtildúfunum. 27.5.2009 04:15
Morrissey aflýsir tónleikum vegna veikinda Breski tónlistarmaðurinn Morrissey hefur þurft að aflýsa þremur tónleikum síðustu daga vegna veikinda. Hann hefur neyðst til að fresta eða aflýsa fjölda tónleika eftir að listamaðurinn hóf tónleikaferð sína í febrúar. Morrissey tróð upp í Laugardalshöll árið 2006. 26.5.2009 21:15
Iðnaðarráðherra er sápuóperufíkill sem elskar þýska boltann Sýnd var nærmynd af Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra í Íslandi í dag fyrr í kvöld. Þar kom fram að Katrín er meðal annars sápuóperufíkill sem elskar þýska boltann, þá aðallega liðið Kaiserslautern. 26.5.2009 19:52
Nýjasta mynd Bens Stillers feikivinsæl Nýjasta kvikmynd bandarísku stjörnunnar Bens Stillers, Night at the Museum: Battle of the Smithsonian, er feikivinsæl vestanhafs og sáu fleiri myndina nú um helgina frekar en nýjustu myndina um sjálfan Tortímandann, Terminator Salvation. 26.5.2009 19:00
Maddy segir tærnar hafa kalið á Íslandi „Það var algjörlega stórkostlegt að fara til Íslands og ég er svo ánægð með að ég lét verða af því að fara þangað," segir Maddy, ein af þátttakendunum í Britain´s Next Top Model í samtali við Digital Spy slúðurvefinn. 26.5.2009 15:46
Lúðrasveitir blása lífi í borgina Reykvíkingar munu á næstunni verða varir við lúðrasveitir á göngu víðsvegar um borgina. Þar er á ferðinni verkefnið "Blásum lífi í borgina" sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lúðrasveitar verkalýðsins. Á heimasíðu Lúðrasveitar verkalýðsins segir að hugmyndin að þessu verkefni hafi kraumað meðal ráðamanna Lúðrasveitar verkalýðsins síðan um síðasta sumar. 26.5.2009 15:27
Dóttir Tysons í bráðri lífshættu Fjögurra ára gömul dóttir Mikes Tysons hnefaleikakappa slasaðist alvarlega á heimilinu sínu í gær. Fox fréttastofan segir að 7 ára gamall bróðir stúlkunnar, sem heitir Exodus, hafi komið að henni þar sem hún hékk í snúru sem tengd var í hlaupabretti. Hún er nú í bráðri lífshættu á St. Josephs spítalanum. 26.5.2009 14:55
Tekur Svía framyfir Íslendinga Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisionstjarna er á leið til Svíþjóðar til fundarhalda og samningaviðræðna ásamt umboðskonu sinni, Maríu Björk Sverrisdóttur. 26.5.2009 11:28
Auddi á úrslitaleikinn í Róm „Ég hlakka mikið til, þetta verður stemning,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal sem er á leiðinni til Rómar þar sem úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram á milli Manchester United og Barcelona á miðvikudag. Ekki er um vinnuferð að ræða heldur ætlar Auddi eingöngu að mæta til að styðja við bakið á sínum mönnum í United. 26.5.2009 08:15
Mel Gibson á von á afkvæmi Ástralski leikarinn Mel Gibson hefur játað að nýja unnustan, hin rússneska Oksana Grigorieva, beri barn hans undir belti og eigi von á sér í haust. 26.5.2009 07:26
Hugleikur aftur í Símaskrána „Mér fannst ég ekki vera búinn að klára þessar persónur,“ segir Hugleikur Dagsson, sem hefur annað árið í röð samið myndasögu fyrir Símaskrána. „Ég reyndi að gera þetta eins sjálfstætt framhald og ég gat en sagan er samt framhald af atburðum fyrri bókar.“ 26.5.2009 07:00
Einstæðar mæður skrifa leikrit fyrir Borgarleikhúsið „Þetta er svona Full Monty, nema bara fyrir leikhúsið og það er engin sem fækkar fötum,“ segir Auður Jónsdóttir, rithöfundur og leikritaskáld. Hún var leiðbeinandi tveggja hópa í Kvennasmiðju námsflokka Reykjavíkur í skapandi skrifum en nemendurnir voru átján einstæðar mæður. Útgefendur skyldu hafa augun hjá sér og fylgjast vel með hópnum því einn þekktasti rithöfundur síðari tíma, J.K. Rowling, var einmitt einstæð móðir þegar hún skrifaði sögurnar um Harry Potter. 26.5.2009 06:00
James Bond leyfð öllum en Madagascar 2 bönnuð Tómas Valgeirsson, einn af stjórnendum síðunnar Kvikmyndir.is og starfsmaður raftækjadeildar Hagkaupa sem selur DVD-diska, segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum sé bagalegt. Tómas ætlar að koma á fót aðgengilegum og öflugum gagnagrunni á síðunni kvikmyndir.is sem foreldrar geta stuðst við í framtíðinni vilji þeir kaupa eða leigja mynd fyrir börnin sín. 26.5.2009 05:15
Nýjasta plata Eminem beint á toppinn í Bretlandi Nýjasta platan með bandaríska rapparanum Eminem, Relapse, er þessa stundina vinsælsta platan í Bretland en hún rauk á toppinn þegar hún kom í nýverið í verslanir. Þetta er fyrsta plata listamannsins í sem kemur út í fjögur ár. 25.5.2009 21:06
Hrafna syngur "Alla leið" - Myndband Idolstjarnan Hrafna sem sigraði hug og hjörtu Íslendinga í úrslitum keppninnar á dögunum hefur sent frá sér myndband sem hægt er að horfa á á YouTube. Þar flytur hún lagið "Alla leið" sem þeir félagar Örlygur Smári og Páll Óskar Hjálmtýsson sömdu sérstaklega fyrir keppnina. 25.5.2009 16:22
Ólafur Ragnar fær eintak af hljóðbók MND félagsins "Björt framtíð" er safn greina eftir 49 höfunda sem komin er út á hljóðbók á vegum MND félagsins. Höfundar greinanna koma úr ýmsum áttum en meðal þeirra eru: forseti og biskup Íslands, bæjarstjórar, húsmóðir, prófessorar, verkstjórar, iðnaðarmaður, forstjórar, klæðskeri og prestar. Í tilefni af útgáfunni bauð MND félagið greinahöfundum og aðstandendum verksins til fundar í Fjörugarðinum í Hafnarfirði í hádeginu í dag þar sem Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands var afhent fyrsta eintakið af hljóðbókinni. 25.5.2009 14:46
Dylan varar við nútímatækni Hinn margrómaði söngvari Bob Dylan ráðleggur ungu fólki að nota sem minnst nútímatækni eins og iPod, tölvuleiki eða farsíma. 25.5.2009 14:20
Bacon elti vasaþjóf Hollywoodleikarinn Kevin Bacon elti vasaþjóf sem stal farsímanum hans í neðanjarðarlest í New York á laugardaginn. Kevin hljóp á eftir þjófnum í gegnum mannmergð en gafst fljótlega upp og kallaði á lögregluna. 25.5.2009 10:31
Gísli Örn og Nína fá sinn drykk Öldurhúsið Vickery‘s í Charleston, Suður Karólínu, hefur ákveðið að bjóða upp á sérstakan drykk sem er tileinkaður leiksýningunni Don John en aðalhlutverkin í henni leika þau Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir. Hefur honum verið gefið nafnið The Union Jack. Frá þessu er greint í staðarblaðinu Charleston City Paper. Fram kemur í fréttinni að drykkurinn samanstandi meðal annars af kanadísku viský, grenadine og trönuberjasafa og kemur fram að hann sé nokkuð sterkur. Jafnframt er greint frá því að leikhópurinn hafi tekið nokkuð ástfóstri við kránna og ef að gestir og gangandi séu heppnir geti þeir jafnvel komið auga á aðalstjörnu sýningarinnar; Gísla Örn. 25.5.2009 07:00
Húsmæður í skoskum smábæ brjálaðar út í Magnús Scheving Skoskar húsmæðir í smábænum Hamilton á Skotlandi urðu heldur betur hvumsa þegar þær mættu með börnin sín og ætluðu að leyfa þeim að sjá hetjuna þeirra úr sjónvarpi; Sportacus eða Íþróttaálfinn. Samkvæmt skipulagðri dagskrá mikillar matarhátíðar átti Sportacus að mæta á svæðið og sýna listir sínar. Mæðurnar létu ekki rigningu á sig fá enda krakkarnir alveg óðir af spenningi yfir því að sjá íslensku ofurhetjuna. „Við urðum alveg rosalega reiðar þegar við sáum að þetta var ekki Magnus Scheving heldur einhver ástralskur táningur í ljótum búningi með yfirvaraskegg sem var alltaf að detta,“ segir Mairi Breen í samtali við staðarblaðið The Hamilton Advertiser. 25.5.2009 06:00
-sme með nýtt blað Tryllingsleg reið Sigurjóns M. Egilssonar um fjölmiðlamarkaðinn hefur nú farið í einskonar hring – nýtt blað í hans ritstjórn um sjávarútveg er í vinnslu og er væntanlegt í byrjun júní. 25.5.2009 05:00
Stefán Karl kemur heim til Búðardals „Þetta er fyrsta aðalhlutverkið mitt í íslenskri bíómynd og þótt víðar væri leitað,“ segir Stefán Karl Stefánsson, stórleikari í Los Angeles. Hann leikur aðalhlutverkið í nýjustu kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Laxdæla Lárusar Skjaldarsonar, sem fer í tökur í sumar. Stefán leikur þar áðurnefndan Lárus, borgarbarn með allt niðrum sig. Hann ákveður að breyta um umhverfi, flytjast vestur og taka að sér uppbyggingu Sláturhússins í Búðardal. „Mér líst bara ljómandi vel á þetta, ég verð á landinu í sumar við að kynna plötuna mína þannig að þetta hentaði mér bara mjög vel,“ segir Stefán. Annars ganga upptökur á plötunni ganga vel, meira að segja fyrrum trommuleikari Dobbie Brothers og Neil Diamond hefur lamið húðirnar í sumum lögunum en hún kemur út þann 23.júní. 25.5.2009 04:00
Augu Hollywood til Íslands Sex af fremstu tökustjórum Hollywood eru væntanlegir til landsins í dag og hyggjast skoða náttúru Íslands í fylgd íslenskra framleiðslufyrirtækja. Tökustjórar (e. location managers) eru hálfgerð augu Hollywood en þeirra hlutverk er að finna heppilegustu tökustaðina fyrir stórmyndir frá kvikmyndaborginni. 25.5.2009 03:30
Hætta við skilnað - aftur Óskarsverðlaunahafinn Sean Penn sótti sum skilnað frá Robyn Wright Penn eiginkonu sinni í síðasta mánuði en þau hafa verið gift í þrettán ár. Hann bað hinsvegar dómstóla um að fella málið niður á þriðjudag. „Þetta voru hrokafull mistök," sagði Penn við fjölmiðla í kjölfarið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hjónin hætta við skilnað. 24.5.2009 17:00
Hudson hafði betur gegn Diaz Það verður líklega langt í að þær stöllur Cameron Diaz og Kate Hudson stilli sér saman upp á rauða dreglinum eftir að sú síðarnefnda hafði betur í baráttunni um hlutverk í dansmynd sem Cameron vildi ólm hreppa. 24.5.2009 15:00
Vill giftast og eignast börn með nýja kærastanum Glamúrgellan og hótelerfinginn Paris Hilton hefur verið á föstu með sjónvarpsstjörnunni Doug Reinhardt undanfarna fimm mánuði. Þau hafa undnfarið verið á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem þau hafa meðal annars sótt sömu veislur og Björgólfur Thor Björgólfsson og eiginkona hans. 24.5.2009 13:00
Myndaði bresku topp módelin í Bláa Lóninu Nú fer að hefjast ný þáttaröð af bresku þáttunum, Britain´s Next Top Model en nýjasta þáttaröðin hefst þar í landi á morgun. Daily Mail segir frá myndatöku sem hin íslenska Huggy Ragnarsson tók í Bláa Lóninu á dögunum og verður í þættinum. Blaðakona blaðsins fylgdist með myndatökunni þar sem hitastigið féll á sama tíma og keppnin hitnaði. 24.5.2009 11:30
Katie Price: Langar aftur í Pete-inn sinn Hin nýeinhleypa Jordan hefur lýst því yfir að hún vilji fá eiginmann sinn, Peter Andre, til baka. Hún hefur nú viðurkennt að hafa gert „stærstu mistök ævi minnar“ þegar hún ákvað að láta eiginmanninn sér úr greipum ganga. 24.5.2009 09:56
Með lag í So you think you can dance Emiliana Torrini á lag í fyrsta þætti af nýjustu þáttaröðinni af bandarísku þáttunum, So you think you can dance, sem sýndir hafa verið á Stöð 2 í gegnum árin. Nú fer að hefjast fimmta þáttaröðin af þessum vinsælu þáttum og spennan er farin að magnast. 23.5.2009 19:00
Nýtur aðstoðar lögfræðings Paul McCartney Fyrirsætan Jordan eyddi afmælisdegi sínum í að ræða við skilnaðarlögfræðing Paul McCartney en hún varð 31 árs gömul í gær. Einnig kom í ljós að hún er með húðflúrað nafn eiginmannsins á handleggnum. 23.5.2009 13:01
Lúxus á árlegri aðdáendahátíð EVE online Þrátt fyrir að enn séu fjórir mánuðir til stefnu eru tölvuleikjaunnendur vestan hafs byrjaðir að ræða árlega aðdáendahátíð hins íslenska EVE online. Fáir leikir sem þessir halda aðdáaendahátíðir sínar utan Bandaríkjanna en hátíð EVE er alltaf haldin í Reykjavík. Í ár fer hún fram 1.-3. október á þessu ári. Þrátt fyrir erfiðleika í efnahagsmálum virðist hátíðin í ár ætla að verða sú allra flottasta. 23.5.2009 10:47
Þvottalaugaganga í dag Listahátíð í Reykjavík og listamannahúsið START ART standa fyrir glæsilegum gjörningi tileinkuðum þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lilstahátíð í Reykjavík. 23.5.2009 10:34
Akranesmær Ungfrú Ísland 2009 Guðrún Dögg Rúnarsdóttir 18 ára stúlka frá Akranesi var kjörin Fegurðardrottning Íslands 2009, en keppnin fór fram á Broadway í gærkvöldi. Guðrún Dögg lenti í öðru sæti í keppninni um Ungfrú Vesturland 2009. 23.5.2009 09:43
Amy Winehouse aflýsti fyrirhuguðum tónleikum Vandræðagemsinn Amy Winehouse hefur aflýst fyrirhuguðum tónleikum í Bretlandi, samkvæmt upplýsingum frá talsmönnum hennar. 22.5.2009 19:09
Léttklæddar fegurðardrottningar í Nauthólsvík - myndir Keppendur í Ungfrú Ísland fegurðarsamkeppninni léku sér í strandbolta og frisbee í fyrradag í Nauthólsvíkinni. Veðurblíðan var með eindæmum góð og einbeitingin skein úr augum stúlknanna þegar þær öttu kappi. Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins stóðst ekki mátið og tók nokkrar myndir af fljóðunum fögru. 22.5.2009 15:45
Jóhanna Guðrún með tónleika í Laugardalshöll Söngkonan unga og Eurovisonfarin Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem unnið hefur hug og hjörtu Íslendinga og heillað fjölmarga í Evrópu með frábærum söng og fallegri framkomu kemur fram á tónlekum í Laugardalshöll 4. júní. 22.5.2009 14:27
Guðmundur fjallar um leiðina að silfrinu í Skemmtigarðinum Skemmtigarðurinn í Grafarvogi var nýverið opnaður formlega. Í garðinum er boðið upp á margs konar skemmtun fyrir allar gerðir hópa sem vilja bregða á leik, efla andann og eiga eftirminnilegan dag í ævintýralegu umhverfi. Meðal þess sem boðið er upp á er fyrirlestur landsliðsþjálfarans, Guðmundar Guðmundssonar. 22.5.2009 13:59
Ungfrú Ísland: Keppendur í fínu formi í ár „Ég er búinn að vera að vinna heilmikið með þeim og aðstoða og það er bara búið að vera ægilega gaman. Þær eru mjög jafnar í ár," segir Heiðar. 22.5.2009 10:28
Grimmdarleg hefnd Audda Vinnustaðahrekkur Sveppa tókst vonum framar og hefnd Audda reyndist brútal. 22.5.2009 08:30
Nýr liðsmaður Esju Englendingurinn Smutty Smiff, fyrrverandi meðlimur rokkabillísveitarinnar The Rockats sem var vinsæl á áttunda áratugnum, hefur gengið til liðs við hljómsveitina Esju. 22.5.2009 07:00
Selur börnin í auglýsingar „Ég myndi aldrei setja þau í námugröft. Eða láta þau í að draga kerrur í álveri. En ef þeim býðst auðveld vinna við leik – þá telst það ekki barnaþrælkun,“ segir Gunnar L. Hjálmarsson tónlistarmaður – betur þekktur sem neytendafrömuðurinn Dr. Gunni. 22.5.2009 06:30
Stofutónleikar í stórborginni Hljómsveitirnar Amiina og Bloodgroup ásamt tónlistarmönnunum Jóni Ólafssyni og Ólöfu Arnalds verða á meðal þeirra sem koma fram á stofutónleikum Listahátíðar Reykjavíkur frá föstudegi til sunnudags. 22.5.2009 06:00
Ensími spilar Kafbátamúsík Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni Manstu ekki eftir mér fara fram á Nasa 11. júní. Í tónleikaröðinni koma fram þekktar íslenskar hljómsveitir og flytja sígildar eigin hljómplötur í heild sinni. Hljómsveitin Ensími ríður á vaðið og leikur lög af plötunni Kafbátamúsík sem kom út hjá útgáfufélaginu Dennis árið 1998. Platan hlaut gríðarlega góðar viðtökur þegar hún kom út og fékk Ensími tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum. Miðasala á tónleikana er hafin á Midi.is. 22.5.2009 06:00
Twilight í fjórða sinn Fjórða vampírumyndin í Twilight-seríunni er í bígerð og verður hún byggð á bók Stephenie Meyer, Breaking Down. Þetta staðfesti leikarinn Robert Pattinson á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Tökum á annarri myndinni, New Moon, er að ljúka um þessar mundir á Ítalíu og tökur á þeirri þriðju, Twilight: Eclipse, hefjast í október. Fyrsta Twilight-myndin naut mikilla vinsælda víða um heim þegar hún var frumsýnd á síðasta ári og er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir framhaldsmyndunum. Myndirnar fjalla um ástarævintýri unglingsstúlkunnar Bellu og vampírunnar Edwards, sem Pattinson leikur. 22.5.2009 03:00