Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki nógu svekktur, pirraður og reiður til að blogga „Ég byrjaði að blogga á sínum tíma en svo nennti ég því ekki. Ég var ekki nógu svekktur, pirraður og reiður til að halda úti bloggsíðu." 16.1.2009 16:08
Klæðnaður Evu og Ragnhildar Steinunnar leyndó „Fólk var að tala um að við höfðum ekki verið nógu hátíðlegar í klæðnaði síðasta laugardag," segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona þegar Vísir ber undir hana umtal um mynstruðu lopapeysurnar sem hún og samstarfskona hennar, Eva María Jónsdóttir, klæddust síðasta laugardag í fyrsta þætti af fjórum í undankeppni Júróvisjón í ár. „Við ætlum að taka það til greina í næsta þætti. En við viljum samt ekki segja hvað eða hvernig," segir Ragnhildur leyndardómsfull. „Við erum spenntar að heyra öll hin lögin í keppninni. Það er ekki vinnufriður hérna í Efstaleiti því við hlæjum svo mikið við að skoða gömlu Júróvisjónlögin," segir Ragnhildur áður en kvatt er. Þátturinn er á dagskrá RÚV klukkan 20:10 annað kvöld. 16.1.2009 14:49
Karlarnir hafa grennst rosalega, segir Jónína Ben „Það liggur beinast við að koma með svona starfsemi til Íslands á erfiðum tímum," svarar Jónína Benediktsdóttir sem er stödd í Póllandi aðspurð út í detoxmeðferðir sem hún starfrækir hér á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. „Það ætti hvergi annarsstaðar að vera betra en að hreinsa sig á Íslandi þar sem mengunin er minnst," bætir hún við. „Ég vinn með pólska lækninum og við vinnum á netinu og verðum í skype-sambandi. Við tölum saman í gegnum internetið," svarar Jónina spurð hvort hún flytji detox-fagfólk með sér hingað frá Póllandi. „Nokkrir íslenskir læknar ætla að kynna sér starfsemina. Þá kemur í ljós hvort þeir eru tilbúnir að viðurkenna detoxmeðferðina sem læknismeðferð eða ekki. Ég geri þetta ekki án lækna það er alveg víst," segir Jónina. 16.1.2009 13:32
Tók viðtal við hund Björn Þorláksson þáttastjórnandi Sjónvarps Norðurlands og fréttamaður hjá Stöð 2 gerði í dag tilraun til að taka viðtal við hund í Föstudagsþætti N4. Björn spurði hvað hundinum fyndist um ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar og velti upp þeirri spurningu hvort það að fá hund í settið væri verri hugmynd en að fá stjórnmálamenn í spjall, stjórnmálamenn sem margir hverjir virðast sekir um lýðskrum og ábyrgðarleysi gagnvart almenningi. 16.1.2009 12:55
Óþolandi ástand - myndband Orðrómur hefur verið uppi um að kærusturnar Lindsay Lohan og Samantha Ronson sem gerðu tilraun til að versla eins og meðfylgjandi myndband sýnir, væru hættar saman. 16.1.2009 11:47
Breytingar hjá Birtíngi - Mannlíf í útgáfuhlé Forsvarsmenn Birtíngs útgáfufélags segjast í ljósi aðstæðna neyðast til þess að gera skipulagsbreytingar á útgáfustarfsemi félagsins. Kostnaður á pappír og öðrum aðföngum er sagður hafa hækkað meira en nokkrun gat órað fyrir auk þess sem sala hefur dregist saman hjá félaginu. Í pósti frá Elínu Ragnarsdóttur, framkvæmdarstjóra félagsins segir að sú blanda sé banvæn ef ekkert sé að gert. 16.1.2009 11:24
Pamela til varnar flækingshundum Baywatch stjarnan Pamela Anderson berst nú fyrir lífi flækingshunda í Mumbai á Indlandi. Í bréfi sem hún sendi borgaryfirvöldum segir hún að gera ætti hundana ófrjóa í stað þess að drepa þá. 16.1.2009 10:29
Í prufum fyrir þrjá söngleiki á Broadway Stefán Karl Stefánsson leikari er um þessar mundir í prufum fyrir þrjá stóra söngleiki á Broadway. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur Stefán fengið lofsamlega dóma fyrir hlutverk sitt sem Trölli í söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum. Sú sýning hefur verið sýnd víða um Bandaríkin undanfarna mánuði og vakið mikla athygli. Stefán Karl nýtur nú góðs af þessari athygli. „Ég get ekkert tjáð mig um þetta, ég er bara í prufum og þetta er allt óráðið,“ sagði Stefán í samtali við Fréttablaðið í gær. 16.1.2009 08:00
Aðdáendur Ásdísar á Facebook Stofnuð hefur verið aðdáendasíða á Facebook tileinkuð fyrirsætunni Ásdísi Rán Gunnarsdóttur. Á annað hundrað einstaklingar eru nú skráðir í grúppuna. ,,Ásdís er fáránlega heit. Ef þú ert sammála ættir þú að gerast meðlilmur. Ef ekki ertu annað hvort hommi eða öfundsjúkur," segir á síðunni. 15.1.2009 20:46
Sameinast sjóðheitir í Ísland í dag Auðunn Blöndal sjónvarpsmaður og Logi Geirsson sem leikur með Lemgo í Þýskalandi verða gestir í sjónvarpsþættinum Ísland í dag strax að loknum fréttum í kvöld. 15.1.2009 17:33
Sölvi snýr aftur á skjáinn Sölvi Tryggvason snýr aftur í skjáinn á mánudag þegar að hann og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, stjórna sínum fyrsta dægurmálaþætti á Skjá einum. 15.1.2009 17:19
Heiður fyrir mig, segir Yesmine „Þeir hringdu í mig og báðu mig að hitta þá. Ég var mjög hissa því þeir voru búnir að kaupa bókina. Maður er alltaf hræddur hvað fagfólki finnst og þetta er bara heiður fyrir mig,“ svarar Yesmine Olsson en hún er gestakokkur á veitingahúsinu Veisluturninnn á Smáratorgi þar sem uppskriftir eftir hana eru matreiddir fyrir gesti staðarins. 15.1.2009 16:26
Freyja Haraldsdóttir fékk styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen Freyja Haraldsdóttir hlaut styrk að upphæð 350 þúsund krónur úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra í Höfða í síðustu viku. Það var Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sem afhenti stykinn við hátíðlega athöfn. 15.1.2009 15:47
Alíslenskt undanúrslitakvöld Annað undanúrslitakvöldið í Eurovisionforvalinu brestur á eftir Spaugstofuna á laugardaginn. Okkur er boðið upp á fjögur lög, það fyrsta, "Fósturjörð“, er eftir Einar Scheving. Einar hefur verið í fremstu röð íslenskra trommara lengi og vakti mikla athygli nýlega fyrir jazzplötuna Cycles. Lagið hans er dramatískur ættjarðaróður sem Páll Rósinkranz syngur hnarreistur. 15.1.2009 06:00
Borðar bara grænmeti fyrir Júróvisjónkeppnina „Ég var tólf sinnum í ræktinni í síðustu viku og borða bara grænmeti," svarar Jógvan Hansen sem sigraði X-factor keppnina árið 2007 þegar Vísir spyr hann út í undibúning hans fyrir í undankeppni Júróvísjón í ár. 14.1.2009 15:28
Síðasta serían af Prison Break Á sama tíma og áhorfendur Stöðvar 2 eru að missa sig yfir spennunni í Prison Break berast váleg tíðindi frá Ameríku. Fox sjónvarpsstöðin sem framleiðir þættina gaf það út í dag að framleiðslu þáttanna verði hætt að lokinni þessari seríu. 14.1.2009 14:50
Á von á Júróvisjónstelpu í maí „Mér líður rosavel. Ég á að eiga í maí," segir söngkonan Regína Ósk sem á von á stúlkubarni með eiginmanni sínum, Sigursveini Þór Árnasyni, fyrrverandi meðlim strákabandsins Luxor. „Þetta verður Júróvisjón barn," bætir Regína Ósk sem tók þátt í Júróvisjón fyrir Íslands hönd í Serbíu fyrra með lagið This is My Life eftir Örlyg Smára. Regína Ósk á 7 ára stúlku, Anítu. 14.1.2009 13:46
Beckham á brókinni - myndir Victoria Beckham situr fyrir ein síns liðs í undirfataauglýsingum Giorgio Armani. Ítalski fatahönnuðurinn Giorgio Armani fékk Victoriu, 34 ára, til að sitja fyrir fáklædd eins og meðfylgjandi myndir sýna í nærfataherferð sinni. 14.1.2009 12:32
Haugadrukkin Macy Gray - myndband Tónlistarkonan Macy Gray var mynduð þegar hún yfirgaf næturklúbb í Hollywood og svaraði spurningum paparazzana. 14.1.2009 10:51
Vandræðalegur Ryan Seacrest - myndband Áttunda árið í bandarísku Idol-stjörnuleitinni hófst í gær. Það sem vekur athygli er þegar sjónvarpsmaðurinn Ryan Seacrest gerði tilraun til að „fimma" blindan keppanda eins og meðfylgjandi myndband sýnir. 14.1.2009 10:22
Safna ullarvörum fyrir bresk gamalmenni Í bítinu á Bylgjunni í morgun kom upp sú hugmynd að setja af stað söfnun fyrir bresk gamalmenni. Heimir Karlsson annar stjórnandi þáttarins segir að í Bretlandi sé reiknað með að tólf gamalmenni deyji á hverjum klukkutíma, yfir kaldasta vetrartímann, úr kulda eða sjúkdómum tengdum kulda. Stjórnendur þáttarins ætla því að safna íslenskum lopavörum og senda til gamalmenna í Bretlandi. Heimir ætlar persónulega að fara með eina peysu til Gordons Brown. 14.1.2009 09:40
Eiríkur og Reynir gera góðverk „Þetta er útvarpsþáttur. Við Reynir erum að vinna góðverk. Allur ágóði af þættinum rennur til góðgerðamála," svarar Eiríkur Jónsson ritstjóri aðspurður um nýjan þátt sem hann bloggaði nýverið um og hverjir hafa umsjá með honum. „Ágóðinn af launum og auglýsingum verður gefinn því það eru margir sem eiga um sárt að binda. Þetta hefur aldrei verið gert. Þetta er okkar framlag til nýja Íslands," segir Eiríkur. 13.1.2009 16:12
Familjen væntanlegur til landsins Johan T. Karlsson eða Familjen eins og hann er betur þekktur, er væntanlegur hingað til lands þann 6. febrúar n.k. þar sem hann mun koma fram á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll. 13.1.2009 15:50
Kynþokkafyllsta konan þráir ný brjóst - myndband Meðfylgjandi má sjá viðtal við Megan Fox sem var kosin kynþokkafyllsta kona í heimi, ef marka má lesendur FHM tímaritsins. Fox, sem er þekktust fyrir leik sinn í Transformers, skaust upp fyrir bombur á borð við Angelinu Jolie, Kim Kardashian og vinningshafa síðasta árs, Jessicu Alba. 13.1.2009 10:28
Hinn íslenski Harry Potter Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir á næstunni rokksöngleik um galdrastrákinn Harry Potter. Albert Hauksson fer með aðalhlutverkið en hann þykir ekkert sérstaklega líkur Harry Potter úr kvikmyndunum. 13.1.2009 07:00
Troða upp í Þýskalandi og Hvíta-Rússlandi Eurobandið hefur vakið mikla athygli eftir þátttöku sína í Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarspsstöðva 2008 með laginu This is my life og ekki bara á Íslandi þar sem plata þeirra seldist í um 15 þúsund eintökum, heldur hefur tvíeykið Friðrik Ómar og Regína Ósk verið pantað víða um Evrópu og fengin til að syngja við hinar ýmsu uppákomur. 12.1.2009 20:37
Fylgst með skurðaðgerð í Kompás í kvöld Sömu sjúkdómarnir herja á manninn og besta vin hans. Krabbamein er algengasta dánarorsök hunda en tíðni krabbameins í hundum er álíka há og tíðni krabbameins hjá fólki. Tíkin Trinity greindist nýverið með krabbamein í júgri og Kompás fékk að fylgjast með þegar æxlið var fjarlægt. 12.1.2009 10:49
Fjórir tebollar fyrir frumsýningu Sólskinsdrengurinn var frumsýnd í Smárabíói á föstudagskvöldið að viðstöddu margmenni. 12.1.2009 05:00
Stórfyrirtæki slást um Sportacus Warner Bros. og Sony, eru meðal þeirra framleiðslufyrirtækja sem Magnús Scheving hefur rætt við um gerð kvikmyndar byggðri á Latabæ. Þetta hefur breska blaðið Daily Telegraph eftir Magnúsi Scheving í frétt sem birtist á laugardaginn. Jafnframt er greint frá því að myndin hafi þegar hlotið nafnið Sportacus sem er enska heitið yfir Íþróttaálfinn. 12.1.2009 04:30
Fréttastjóri lærir guðfræði „Ég verð vel geymdur þarna,“ segir Steingrímur Sævarr Ólafsson, fyrrum fréttastjóri Stöðvar 2, sem hefur skráð sig í nám í elstu deild Háskóla Íslands, guðfræði. Steingrímur hefur látið lítið fyrir sér fara eftir brotthvarfið af Stöð 2 en töluvert hefur verið slúðrað um það á vefsíðum að hann hafi verið stjórnendum gömlu viðskiptabankanna innan handar í kjölfar efnahagshrunsins. Steingrímur vísar því alfarið á bug, segist bara hafa verið að undirbúa sig fyrir námið í háskólanum. „Mér skilst að þetta sé rétti tíminn til að fara í nám, allavega hefur aðsóknin í Háskólann verið góð.“ 12.1.2009 04:00
Stillir til friðar á Gaza „Ég hef alltaf farið í frí eftir jólavertíðina til að ná mér aðeins niður,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann er á leiðinni til Egyptalands með fjölskyldu sína, lands sem margir myndu kannski hugsa sig tvisvar um að heimsækja í ljósi ástandsins í nágrannalandinu Palestínu. „Jú, það verður alveg að viðurkennast að Egyptaland var ekki fyrsti valkostur. Þegar bankarnir hrundu og gengið með þá tók ég eiginlega þá ákvörðun að leggja af þessa árlegu utanlandsferð. Mér þótti það bæði siðlaust og óverjandi að kaupa gjaldeyri á því verði sem hann er á í dag,“ útskýrir Jóhann og augljóst að honum er létt við að komast burt frá landinu. 12.1.2009 04:00
Vill vingast við Aniston Jennifer Connelly hafði mjög gaman af því að leika með Jennifer Aniston í myndinni He"s Just Not That Into You. Vonast hún til að þær geti orðið góðar vinkonur í framtíðinni. 12.1.2009 03:30
Drottningin stendur undir nafni „Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur kom út í gær í kilju í Bretlandi. Stærsta bókabúðakeðjan þar í landi, Waterstone’s, gerir henni sérstaklega hátt undir höfði; hún er sumsé Waterstone’s Crime Booksellers’ Choice í janúar,“ segir útgefandinn Pétur Már Ólafsson. 12.1.2009 03:00
Neitar framhjáhaldi Brad Pitt neitar því að hafa nokkurn tíma haldið fram hjá fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Jennifer Aniston, með Angelinu Jolie. Pitt og Jolie kynntust við tökur kvikmyndarinnar Mr and Mrs Smith þegar hann var enn giftur Friend leikkonunni. Eftir að Pitt og Jolie fóru að vera saman spruttu fljótt upp sögusagnir þess efnis að leikarinn hefði haldið framhjá Jennifer Aniston. 12.1.2009 03:00
McDonalds-martröð Pink segist fá martraðir um að hún vinni á McDonalds. Söngkonan, sem heitir réttu nafni Alicia Moore, vann á skyndibitastaðnum í heimabæ sínum Doylestown í Pennsylvaníu áður en hún komst á samning hjá plötufyrirtæki sem meðlimur stelpuhljómsveitarinnar Choice, sextán ára gömul 12.1.2009 02:00
Össur með kosningahroll Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er kominn með kosningahroll ef marka má nýjustu mælingar með nýjustu tækni. Össur greinir frá því á blogginu sínu að hann hafi hitt frumkvöðulinn og eðlisfræðinginn Kristinn Johnsen hjá Mentis Cura sem komst að þessari niðurstöðu. Mentis Cura er fyrirtæki sem hefur þróað tækni til að greina Alzheimers og ADHD með því að mælad heilabylgjur. 11.1.2009 20:30
Áheyrnarprufum fyrir Söngvaseið lokið Áheyrnaprufum fyrir Söngvaseið lauk í dag í Borgarleikhúsinu. Alls hafa fjögur þúsund börn keppst við að krækja í þau 12 hlutverk sem eru í boði. Guðný Helga hitti hæfileikaríka æsku í Borgarleikhúsinu í dag 11.1.2009 19:37
Jóhanna og Edgar áfram í Eurovision Lögin The kiss we never kissed í flutningi Edgars Smára og Is it true með Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttir urðu í kvöld þau fyrstu til að komast áfram í úrslit söngvakeppni Sjónvarpsins. 10.1.2009 21:26
Sverrir: Klúðurslegt og viðvaningslegt Júróvision Vísir hafði samband við Júróvisionfarann Sverri Stormsker og bað hann hlusta á lögin sem keppa í undanúrslitum Eurovision í kvöld og fræða lesendur Vísis hvað honum finnst. Sverrir tók vel í það, gagnrýndi lögin og gaf þeim stjörnur. Lögin má heyra hérna: 1. The kiss we never kissed (4 stjörnur af 5 mögulegum) Lag: Heimir Sindrason. Texti: Ari Harðarson. Flytjandi: Edgar Smári. „Heimir Sindrason er góður lagasmiður. Hver kannast til dæmis ekki við Hótel Jörð sem hann samdi við ljóð Tómasar. Þetta nýja lag lans The kiss we never kissed er vel samin ballaða. Fastmótuð melódía. Engin rembingur og tilgerð. Bara einfalt og fallegt, sem er alveg meir en nóg til að halda uppi einu lagi. Útsetningin er af gamla skólanum, látlaus og laus við alla stæla og eitthvað sem á að virka gasalega nútímalegt og „töff." Gríðarlegir „töffarar" sem eru of cool fyrir „væmni" ættu ekki að hlusta á þetta lag. „Ég veit akkúrat engin deili á söngvaranum, Edgari Smára, en hann kemst verulega vel frá þessu. Þarna er greinilega á ferðinni mjög góður söngvari með orginal rödd og sérstaka raddbeitingu og karakter í röddinni sem mér finnst mjög áríðandi. Ekkert varið í að hlusta á góða söngvara ef karakterinn vantar. Edgar virkar soldið einsog 14 ára strákpatti í þessu lagi og það gefur þessu ákveðinn sjarma. Kannski á þetta lag frekar heima í teiknimyndasöngleik einsog til dæmis Lion King en í Júróinu. Veit það ekki. En við eigum ekki að hugsa um það, heldur að velja einfaldlega gott lag og það er einmitt það sem þetta lag er," segir Sverrir. 2. Dagur nýr (ein stjarna) Lag: Halldór Guðjónsson. Texti: Íris Kristinsdóttir. Flytjandi: Heiða Ólafs. „Melódían í A-kaflanum er reikul og flöktandi og það er stólað á að hinn klassíski spánski fjórhljómagangur haldi henni á flöti, en hún sekkur, því miður. Er ekki nógu afgerandi. Viðlagið er dæmigert Sálarpopp (til dæmis Eltu mig uppi) sem maður hefur heyrt all oft áður, svona einsog 100 þúsund sinnum en samt ekkert óheyrilega leiðinlegt, bara svona frekar sjálfsmorðshvetjandi. Halldór húsasmiður hefur samið mun betri lög en þetta." 10.1.2009 18:05
Bono pistlahöfundur hjá New York Times Popparinn og mannréttindafrömuðurinn Bono verður dálkahöfundur hjá stórblaðinu New York Times. Fram kom í blaðinu að fyrsti dálkur Bono birtist á sunnudaginn, og verður einnig hægt að nálgast hann á hlaðvarpi á heimasíðu blaðsins. 10.1.2009 14:20
James Blunt tekinn saman við Íslandsvin Íslandsvinurinn og hjartaknúsarinn James Blunt er sagður hafa tekið saman við annan Íslandsvin, listakonuna Natöshu Archdale. Sú er fyrrverandi sundfatafyrirsæta, en gerir nú klippimyndir af nöktum líkömum úr dagblaðasnifsum. 10.1.2009 11:20
Ekki fara í sleik við Simma og Jóa í Idol áheyrnaprufunum Þeir sem vita að þeir komast ekki áfram í Idol en vilja gjarnan upplifa þriggja mínútna frægð með þátttöku í keppninni geta til ýmissa ráða gripið. Þeir sem ætla að ná langt í keppninni ættu hins vegar að forðast eftirfarandi hefðun á meðan að á vali keppenda stendur. 9.1.2009 21:39
Enginn tengir mig við íslenska útrásargengið Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir syngur lagið Someday í úrslitaþætti dönsku Evróvisiónkeppninnar sem fram fer í danska Ríkissjónvarpinu 31.janúar næstkomandi. Vísir hafði samband við Heru Björk sem er stödd í Danmörku. 9.1.2009 14:48
Missti vinnuna, konuna, íbúðina og stoltið Bjartmar Guðmundsson er 34 ára gamall smiður sem lætur erfiðleika ekki stöðva sig. Fyrir nokkrum mánuðum vann hann við viðbyggingu á Egilshöll á milli þess sem hann dittaði að nýrri íbúð sem hann hafði keypti með eiginkonu sinni. Þau eiga átta mánaða gamlan son. Bjartmar hefur nú missti vinnuna, íbúðina, konuna og stoltið. Hann hefur gist á sófum hjá vinum og vandamönnum og betlar peninga hjá Félagsþjónustunni. 9.1.2009 13:39
Kannski finnum við nýjan Kalla Bjarna Áheyrnarprufur fyrir Idol Stjörnuleit fara fram á morgun á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Vísir hafði samband við annan kynninn Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktan sem Jóa, og dómarann Jón Ólafsson. „Ég er rígspenntur alveg. Er að búa mig undir hópfaðmlög, gleði, svita og tár," svarar Jói aðspurður hvernig honum líður en rúmlega 2000 manns hafa nú þegar skráð sig í keppnina. „Ég held að morgundagurinn verði erfiðasti 9.1.2009 13:23