Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
14 ára drengur stingur önd 14 ára drengur er grunaður um að hafa stungið kvenkyns önd á Huntington Beach í Kaliforníu í síðustu viku. Öndin sást fyrst á fimmtudaginn í síðustu viku þar sem hún vappaði um bæinn með vasahníf í bakinu. 31.5.2007 17:51
Paris Hilton er hætt að borða Paris Hilton, sem þykir nokkuð spengileg fyrir, er nú hætt að borða vegna álagsins sem fylgir því að vera á leið í fangelsi. Hilton hefur afplánun á 23 daga fangelsisvist á þriðjudaginn. Hún var upphaflega dæmd til 45 daga fangelsisvistar fyrir að brjóta skilorð þegar hún keyrði drukkin, en dómurinn var mildaður. 31.5.2007 17:23
Bosnísk kýr drukknar í fjöldagröf Bóndi í Bosníu stendur í harðvítugum deilum við yfirvöld vegna dauða kýrinnar sinnar sem hann segir hafa drukknað í fjöldagröf. Í fyrra voru jarðneskar leifar 50 Bosníu-múslima grafnar upp úr fjöldagröfinni, sem var frá árunum 1992 til 1995, og segir bóndinn að stjórnvöld hafi ekki gætt að því að fylla aftur upp í hana að því loknu. 31.5.2007 16:37
Hvernig var Rúdí ? Þýski múrarinn Werner Brenner þoldi ekki Rúdí, naggrísinn sem kærastan hans hún Lara Hochner var alltaf að kela við. Þau Lara voru búin að vera saman í þrjú ár og rifrildum þeirra um Rúdí fjölgaði stöðugt. Werner fannst Lara sýna Rúdí miklu meiri ást og umhyggju en sjálfum sér. Loks var svo illa komið að það stefndi í sambandsslit. 31.5.2007 15:33
Cowell öskrar eigið nafn í rúminu Idol-dómarinn Paula Abdul gerir kollega sínum Simon Cowell stóran grikk í heimildarþætti um þann síðarnefnda sem sýndur verður í Bretlandi um helgina. Brot úr þættinum hafa lekið út til fjölmiðla og talar Abdul þar meðal annars um hið margfræga sjálfsálit Cowell og hvernig það endurspeglast í kynlífi kappans. 31.5.2007 10:00
Íslenskur ferskleiki í Loftkastalanum í kvöld Tískuviðburðurinn Made in Iceland fer fram í Loftkastalanum í kvöld en þar munu alls sex ungir og upprennandi fatahönnuðir sýna hönnun sína. Það eru fyrirtækin Eskimo og Basecamp sem standa fyrir kvöldinu. 31.5.2007 09:30
Íslenska áralaginu teflt gegn því færeyska „Við á Finsen landshöfðingja förum með hinu hefðbundna íslenska lagi,” segir siglingameistarinn Ísleifur Friðriksson. 31.5.2007 09:15
Kærasti Lindsay í kókaíni Kvennabósinn Calum Best er háður kókaíni og stundar hópkynlíf með vændiskonum. Þetta kom fram í breska dagblaðinu The Sun í gær en blaðið birti myndir af Best í félagsskap vændiskvenna þar sem hann neytti kókaíns. Best, sem er sonur knattspyrnuhetjunnar George Best heitins, komst nýverið í fréttirnar fyrir að slá sér upp með leikkonunni Lindsay Lohan. 31.5.2007 07:30
Innlent efni aukið Heimasíðan kvikmynd.is, sem nýtur sívaxandi vinsælda, hefur aukið til muna áherslu sína á íslenska þætti. „Við sendum út bréf á dögunum og auglýstum eftir þáttum og þáttagerðarfólki og fengum fín viðbrögð. Þetta er allt í raun hluti af þeim viðbrögðum,“ segir Þóroddur Bjarnason, annar eigenda kvikmynd.is. 31.5.2007 06:30
Britney Spears rænulaus á karlaklósetti Britney Spears sletti vel úr klaufunum síðastliðið sunnudagskvöld. Eftir eingöngu klukkutíma dvöl á Sky Bar Mondrian hótelsins í Los Angeles fannst poppstjarnan nánast rænulaus inni á karlaklósettinu, þar sem hún kastaði viðstöðulaust upp. 31.5.2007 06:00
Ráðherra sló ritarann fyrir álfi „Þetta telst eitt af mínum allra fyrstu embættisverkum. Og það geri ég með mjög glöðu geði,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Í gær keypti Guðlaugur fyrsta álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ sem nú fer fram í 18. sinn. 31.5.2007 05:30
Reykingar kvaddar með stæl Forráðamenn veitinga- og skemmtistaða landsins munu margir hverjir eyða deginum í að syrgja reykingar, en sem kunnugt er verða þær bannaðar á slíkum vettvangi frá og með morgundeginum. Margir staðir keppast því við að tæma sígarettulagerinn og hafa sumir þeirra tekið upp á því að vera með eins konar reykingaþema í dag. 31.5.2007 03:00
Pamela segir börnunum frá kynlífsmyndbandinu Pamela Anderson hefur neyðst til að segja börnum sínum frá kynlífsmyndbandinu fræga sem hún gerði á sínum tíma með fyrrum eiginmanni sínum, rokkaranum Tommy Lee. 31.5.2007 02:00
Skaut vaktstjóra á Wendy's vegna chilisósudeilu Vaktstjóri á Wendy's veitingastað á Miami var skotinn ítrekað í handlegginn eftir að hann neitaði að gefa viðskiptavini aukaskammt af chili-sósu. 30.5.2007 17:32
Tvífari Parisar Hilton leysir hana af í samkvæmislífinu Svissnesk stúlka, sem er sláandi lík Paris Hilton hefur boðist til að leysa hana af í samkvæmislífinu á meðan hún dvelur í fangelsi. 30.5.2007 15:49
Getur þú hjálpað Hillary Clinton með kosningalag? Öldungardeildarþingmaðurinn Hillary Clinton biðlar nú til almennings að hjálpa sér að velja kosningalag. Clinton, sem sækist eftir því að verða forsetaefni Demókrata í Bandaríkjunum auglýsir á vefsíðunni YouTube eftir hugmyndum að kosningalagi. Fleiri en 130 þúsund manns hafa kosið frá því kosningin hófst um miðjan maí og er niðurstöðu að vænta fljótlega. 30.5.2007 09:00
Stökkbreyttar kýr framleiða léttmjólk Vísindamenn líftæknifyrirtækisins ViaLactica reyna nú að rækta hjörð kúa sem framleiðir léttmjólk. Kýrin Marge uppgötvaðist árið 2001 við rannsóknir á Kúastofni á Nýja-Sjálandi. Stökkbreyttur litningur veldur því að mjólk hennar inniheldur aðeins 1 prósent fitu, en venjuleg mjólk er um 3.5 prósent feit. 29.5.2007 19:51
Tíu þúsund ára fjárfesting Fasteignakaup eru langtímafjárfesting. En á fáum stöðum jafn mikil og á Lo’ihi eldfjallinu á Havaí. Þarlend fasteignasala, Lo'ihi Development Co. ætlar á næstunni að hefja sölu á lóðum á Lo'ihi. Lóðirnar sem eru allar með glæsilegu sjávarútsýni eru á kynningartilboði og kosta um 2500 krónur. Áætluð afhending er þó ekki fyrr en eftir 10 þúsund ár hið minnstam en lóðirnar eru sem stendur um kílómetra undir sjávarmáli. Eigendur fyrirtækisins, Norm Nichols og Linda Kramer, segja þetta að mestu til gamans gert. Þau sjá fyrir sér samfélag eigenda á netinu þar sem væri rætt um allt frá götunöfnum til ríkisstjórnar eyjunnar. Þá vilja þau halda eigendafund 1. apríl ár hvert á báti yfir eldfjallinu. Vísindamenn vita ekki hvort, og þá hvenær, eldfjallið rís úr Kyrrahafinu. Margir þeirra reikna með því að það séu um tíuþúsund ár þangað til, þó það gæti verið mun lengur. 29.5.2007 17:29
París, lemdu einhvern París Hilton er á leið í fangelsi, eins og öll heimsbyggðin veit. Stúlkan ku kvíða því nokkuð og hefur leitað ráða um hvernig hún á að hegða sér. Leikarinn Ice-T sem meðal annars leikur í Law & Order sjónvarpsþáttunum gaf henni einfalt ráð. Hann sagði henni að lemja einhvern um leið og hún kæmi innfyrir múranna. Eftir það yrði hún sett í svokallaða verndurnarvist og gæti dúllað við að lakka á sér neglurnar þartil henni verður sleppt. 29.5.2007 15:45
Papparassar bauluðu á Pamelu Ljósmyndarar á kvikmyndahátíðinni í Cannes bauluðu á Pamelu Anderson þegar hún mætti of seint í myndatöku hjá þeim og stoppaði aðeins í nokkrar mínútur. Anderson var mætt til þess að kynna nýjustu mynd sína "Blond and Blonder." Það mun vera gamanmynd sem kynnt er sem "Dumb and Dumber" hitta "Legally blond." 29.5.2007 12:00
Drottningin heiðrar House Elísabet Englandsdrottning hefur heiðrað breska leikarann Hugh Laurie með því að veita honum OBE orðuna. OBE stendur fyrir Order of the Birtish Empire. Laurie hefur slegið í gegn í sjónvarpsþáttunum um doktor Gregory House; skapstirðan snilling í læknavísindum. Fyrir leik sinn í þeim þáttum hefur hann hlotið tvenn Golden Globe verðlaun. 29.5.2007 11:15
Lohan ákærð fyrir að aka undir áhrifum Ungstirnið Lindsey Lohan hefur fetað í fótspor vinkonu sinnar Parísar Hilton og verið ákærð fyrir að aka undir áhrifum. Hún lenti í óhappi á sportbílnum sínum á Sunset Boulevard Í Los Angeles og þegar lögregla kom á staðinn fannst efni í bíl hennar sem talið er vera kókaín. 27.5.2007 17:12
36 pylsur á 12 mínútum Bandaríkjamenn keppa í öllu á milli himins og jarðar og engum þarf að koma á óvart að þessi mikla matarþjóð gerir pylsuát að æsispennandi keppni. Helstu pylsuætur Fíladelfíu öttu kappi í gær og eftir mikið át stóð Sonya nokkur Thomas uppi sem sigurvegari. 27.5.2007 13:45
Geimfari ástarþríhyrnings hættir hjá Nasa William Oefelein geimfari hefur verið fluttur til í starfi og hættir hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna. Hann var flæktur í ástarþríhyrning sem leiddi til uppgjörs á milli tveggja kvenna. Oefelein mun hefja störf hjá sjóhernum þar sem hann gegndi áður stöðu. Lisa Nowak geimfari og ein tveggja kvenna sem Oefelein átti í ástarsambandi við, bíður nú réttarhalds vegna ákæru um mannrán og líkamsárás. 26.5.2007 16:08
Heimsótti þriggja ára krabbameinssjúkan aðdáanda sinn „Við höfum fengið ansi mikið af svona tölvupóstum þar sem börn hafa hellt sér af fullum krafti útí Latabæjar-lífstílinn," segir Magnús Scheving. Í helgarútgáfu breska blaðsins Sunday People var sagt frá hinum tveggja ára gamla Cody McCaffrey sem slapp frá leiksskólanum sínum og lagði af stað í mikla hættuför heim til sín. Móðir drengsins lýsti því síðan yfir að hún væri viss um að Cody hefði þarna verið að herma eftir hetjunni sinni, sjálfum Sportacus eða Íþróttaálfinum úr Latabæ. „Hann elskar ekki bara Latabæ, Latibær er lífið sjálft," sagði móðirin. 26.5.2007 15:00
Keira fær bætur Leikkonan Keira Knightley hefur unnið skaðabótamál sem hún höfðaði gegn breska slúðurblaðinu The Daily Mail vegna fréttar þar sem gefið var í skyn að hún ætti þátt í dauða nítján ára stúlku sem lést úr átröskun. Jafnframt var því haldið fram að Knightley þjáðist sjálf af átröskun, sem hún hefur þvertekið fyrir. 26.5.2007 14:30
Þægilegt skal það vera Það er ýmislegt í tísku núna sem hentar ekki beinlínis í vinnunna. Mínístuttbuxur, korselett og gallabuxur með háu mitti eru smart í kokteilboðin eða út á lífið en eru ekki praktískur kostur á skrifstofunni. Það sem er búið að heilla mig sérstaklega í vor eru þessar skemmtilegu útgáfur af stuttum skokkum sem eru frekar lausir í sniðinu og virka bæði einir og sér eða yfir gallabuxur eða leggings. 26.5.2007 14:00
Fór á kostum í keilu „Þetta var eiginlega hálf ótrúlegt, Sigurjón gerði fellu í hverri einustu tilraun,“ segir Ólafur Jóhannesson, leikstjóri kvikmyndarinnar Stóra planið, en nýverið var tekið upp atriði þar sem persónur þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Péturs Jóhanns Sigfússonar voru á æfingu hjá keilufélaginu Mjöll. Að sögn leikstjórans fer eitthvað færri sögum af hæfileikum Péturs Jóhanns í keilunni en tökuliðið var agndofa yfir hæfni Sigurjóns. 26.5.2007 13:00
KR-útvarpið á tímamótum KR-útvarpið verður með sína 200. útsendingu á mánudagskvöld þegar KR og Víkingur eigast við í Landsbankadeild karla. „Við vorum að leita leiða til að bæta við stuðningsmannastarfið og þá kviknaði þessi hugmynd,“ segir Höskuldur Höskuldsson, sérlegur útvarpsstjóri KR. 26.5.2007 12:30
Eyþór senuþjófur í Cannes Athafnamaðurinn Eyþór Guðjónsson hefur látið lítið fyrir sér fara að undanförnu eftir að hafa verið í sviðljósinu í kringum Hostel-hryllingsmyndina sem sló eftirminnilega í gegn. 26.5.2007 11:00
Árleg tískuhátíð í líkingu við Airwaves Basecamp og Eskimo standa fyrir viðamikilli tískusýningu í næstu viku, sem vakið hefur áhuga erlendra fjölmiðla. „Þetta er í fyrsta skiptið sem við gerum eitthvað þessu líkt,“ sagði Andrea Brabin, framkvæmdastjóri Eskimo. „Þetta er ekki Icelandic Fashion week eða neitt í þá áttina. Við erum frekar að lyfta fram grasrótarhönnuðum, sem eru að byrja,“ sagði hún. 26.5.2007 08:00
Hanna Björk talar frá Teheran: Bíó og brjálæði! Jæja, þá er ég komin frá Teheran til meginlands Evrópu. Ég fékk meira menningarsjokk við að lenda í Cannes heldur en í Teheran fyrir fjórum mánuðum. Cannes er mjög fallegur staður og ströndin og sólin lofuðu góðu. En svo fór ég á hátíðarsvæðið og geðveikin byrjaði. Fólk, fólk, fólk alls staðar. Höstl og læti. 26.5.2007 00:01
Hæ, ég er pabbi hennar Stellu ... Paul McCartney tókst að fá leikkonuna Natalie Portman til að koma fram í nýjasta myndbandi sínu, þökk sé Stellu dóttur hans. McCartney er að gefa út plötuna "Memory Almost Full," sem þykir jafnast á við bestu verk hans. Natalie Portman kemur fram sem draugur í fyrsta myndbandinu af plötunni. 25.5.2007 22:52
Fasteignasala með risabrjóst sagt upp störfum Þýskum fasteignasala sem átti sér draum um að vera með stærstu brjóst í Evrópu hefur verið sagt upp. Annina Ulrich sem stundar líka fyrirsætustörf, viðurkennir að hún sé háð brjóstastækkunum en brjóst hennar eru nú af skálastærð 42H. 25.5.2007 17:22
Bankaræningi hættir við Bankaræningja sem hugðist ræna banka í Stephenville í Texas snerist hugur þegar á hólminn var komið. Hann gekk inn og krafðist peninga, en bað gjaldkerann að því loknu að hringja í lögreglu - hann myndi bíða úti á stétt. 25.5.2007 16:32
Sér grefur gröf Hann varð svo reiður út í kærustuna sína eftir rifrildi að hann skildi hana eftir í bílnum á lestarteinum rétt utan við Los Angeles í gær. Rétt í því sem lestin kom æðandi. Hann stökk svo til hliðar og beið eftir að sjá bílinn tætast í sundur og kærustuna deyja. 25.5.2007 16:32
Átta ára dóttir Steve Irwin með sinn eigin sjónvarpsþátt Bindi Irwin dóttir Steve Irwins, krókódílaveiðarans heitna, er að byrja með sinn eigin sjónvarpsþátt. Þátturinn heitir ,,Bindi: The Jungle Girl" og verður frumsýndur 9. júní á Discovery Kids sjónvarpsstöðinni. 25.5.2007 14:50
Kona fæðir barn á tveimur mínútum. Vediku Vyas lá á að komast í heiminn. Móðir hennar, hin þrítuga Palak Vyas, fæddi hana aðeins tveimur mínútum eftir að hún missti vatnið. 25.5.2007 14:20
Spítala lokað vegna manns með gervifót Spítali í Washington fylki í Bandaríkjunum var girtur af og vopnuð lögregla leitaði í húsinu eftir að starfsmaður tilkynnti að maður með riffill gengi laus í sjúkrahúsinu. 25.5.2007 13:31
Faðernismáli gegn Paul McCartney hætt Rannsókn á máli 44 ára þýskrar konu sem heldur því fram að Paul McCartney sé faðir hennar, en hafi svindlað á faðernisprófi hefur verið hætt. Konan, Bettina Huber, segir að McCartney og móðir hennar, sem var gengilbeina á Starlight klúbbnum Hamborg, þar sem McCarney spilaði, hafi átt í þriggja ára löngu ástarsambandi á árunum 1959 til 1962, þegar Huber fæddist. 25.5.2007 12:16
Kynhneigð hefur áhrif á lestur landakorta Kynhneigð hefur áhrif á getu fólks til að lesa af landakortum. Gagnkynhneigðir karlmenn eru þannig bestir í kortalestri, en gagnkynhneigðar konur verstar. 25.5.2007 11:37
Hélt sér vakandi í ellefu daga Rúmlega fertugur breskur maður sló í morgun heimsmetið í að halda sér vakandi. Tony Wright hóf tilraun sína þann 14. maí klukkan sex að morgni og er því búinn að vera vakandi í ellefu daga samfleitt. 25.5.2007 10:55
Magnús Lúðvíksson yngsti sigurvegari Meistarans frá upphafi Hinn 18 ára gamli Magnús Þorlákur Lúðvíksson varð fyrr í kvöld 5 milljónum króna ríkari er hann fór með sigur af hólmi í spurningaþættinum Meistaranum sem verið hefur á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. 25.5.2007 09:23
Eyþór aftur undir stýri „Nú verð ég að passa mig á bæði bílum og brennivíni,“ segir tónlistarmaðurinn Eyþór Arnalds sem hefur endurheimt bílpróf sitt eftir hrakfarir á síðasta ári. Að auki mun hann á næstunni hella sér af fullum krafti út í bæjarpólitíkina í Árborg. 25.5.2007 08:00
Big brother keppanda verður ekki sagt frá láti föður síns Emmu Cornell 24 ára keppanda í Big Brother raunveruleikaþættinum í Ástralíu verður ekki sagt frá því að pabbi hennar sé nýlátinn úr krabbameini því hann vildi ekki eyðileggja möguleika hennar á frægð og frama. 24.5.2007 17:21